Stjórnvöld á Nýja-Sjálandi banna sölu húsa og jarða til erlendra aðila

Nýsjá­lend­ingar eru sagðir orðnir leiðir á því að vera leigj­endur í eigin landi og hafa nú bannað erlendum aðilum að kaupa hús og land­ar­eignir.

Wellington, höfuðborg Nýja Sjálands.
Wellington, höf­uð­borg Nýja Sjálands. Mynd: Wiki Commons

Stjórn­völd á Nýja-Sjálandi hafa bannað sölu húsa til erlendra aðila. Þetta kemur fram í frétt The Guardian en þar segir að Nýsjá­lend­ingar séu þreyttir á að vera „leigj­endur í eigin landi.“ Bannið nær yfir allar aðrar þjóðir, fyrir utan Ástralíu og Singapúr.

David Parker, aðstoð­ar­ráð­herra fjár­mála á Nýja-Sjálandi, segir að afleið­ingar banns­ins verði þær að hús­næði muni verða við­ráð­an­legra í verði fyrir heima­menn og að fram­boð auk­ist.

„Við teljum að mark­að­ur­inn fyrir hús og bújarðir á Nýja-Sjálandi eigi að vera fyrir nýsjá­lenska kaup­endur, en ekki þá erlendu,“ segir Parker í við­tali við The Guardian.

Hann segir að bannið komi þeim til góða sem leggi hönd á plóg í efna­hags­kerfi lands­ins, borgi þar skatta og eigi fjöl­skyldur. Hann telur að erlendir efn­aðir ein­stak­lingar eigi ekki að geta yfir­boðið þetta fólk.

Í frétt­inni kemur fram að ein­ungis fjórð­ungur full­orð­inna ein­stak­linga á Nýja-Sjálandi eigi eigið hús­næði. Til sam­an­burðar er bent á að árið 1991 var það um helm­ingur og að síð­ustu fimm ár hafi heim­il­is­lausum fjölgað. Sumir Nýsjá­lend­ingar séu neyddir til að búa í bílum, skúrum og undir brúm.

Samkvæmt aðstoð­ar­ráð­herr­anum eru 10 pró­sent heim­ila á Queenstown Lakes-svæð­inu í eigu útlend­inga og 20 pró­sent í Auckland.

Í frétt The Guardian kemur enn fremur fram að sala á land­ar­eignum hafi einnig blómstrað undir stjórn síð­ustu rík­is­stjórnar en 465.863 hekt­arar voru seldir til erlendra aðila árið 2016, en það er næstum því sex­föld aukn­ing frá árinu áður. Það jafn­gildir 3,2 pró­sent af öllu rækt­ar­landi á Nýja-Sjálandi.

Erlendir aðilar munu þó enn keypt íbúðir í stórum fjöl­býl­is­fram­kvæmdum, sem eru hugs­aðar til að auka við gildi hús­bréfa Nýsjá­lend­inga.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár