Fjögur fóru með fleipur, jafnmörg sögðu hálfsannleik og tvær á réttri leið

Stað­reynda­vakt Kjarnans rýndi í tíu við­töl við leið­toga stjórn­mála­flokka sem fram fóru á sama vett­vangi. Hér má sjá nið­ur­stöð­urnar.

Formenn flokkanna sögðu nú sem betur fer að uppistöðu aðallega satt í viðtölunum sem Staðreyndavakt Kjarnans tók fyrir.
Formenn flokk­anna sögðu nú sem betur fer að uppi­stöðu aðal­lega satt í við­töl­unum sem Stað­reynda­vakt Kjarnans tók fyrir. Mynd: Kjarninn

Stað­reynda­vakt Kjarnans var end­ur­vakin núna í aðdrag­anda kosn­inga, enda sjaldan sem freistnin til þess að teygja á sann­leik­anum er meiri en þegar stjórn­mála­menn reyna að afla sér hylli kjós­enda.

Und­an­farnar vikur hefur rit­stjórn Kjarnans fylgst með for­mönnum og öðrum tals­mönnum stjórn­mála­flokk­anna tíu sem bjóða fram á lands­vísu mæta í For­ystu­sætið á RÚV, einn af öðrum og rýnt í orð þeirra á þeim vett­vangi.

Fleipur

Bjarni Bene­dikts­son var fyrstur í heim­sókn í þátt­inn og fór með fleipur er hann sagði að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hefði ekki fengið stig í mati Ungra umhverf­is­sinna fyrir að stefna að því að hætta að brenna olíu fyrst þjóða.

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son fór sömu­leiðis með fleipur er hann hélt því fram að íslenska banka­kerfið væri nú „enn og aftur að fær­ast í hendur erlendra vog­un­ar­sjóða“.

Guð­mundur Franklín Jónsson fór líka með fleipur er hann sagði að stöð­ug­leika­fram­lögin hefðu öll farið í hækkun á kostn­aði við rekstur emb­ættis- og þing­manna.

Halldóra Mogensen full­trúi Pírata fór með fleipur er hún sagði að kosn­inga­lof­orð Pírata væru full­fjár­mögnuð með nýjum tekju­öfl­un­ar­leiðum. Því höfðu Píratar reyndar ekki áttað sig á þegar Halldóra mætti í við­talið og þeir upp­færðu tekju­öfl­un­ar­leiðir sínar í kjöl­farið.

Hálfsannleikur

Sigurður Ingi Jóhanns­son setti fram hálf­sann­leik er hann lét að því liggja að Joe Biden Banda­ríkja­for­seti væri með svip­aðar áherslur í skatta­málum og Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn.

Gunnar Smári Egilsson full­yrti að íslenskt sam­fé­lag væri gjör­spillt og setti þar fram hálf­sann­leik. Samkvæmt við­ur­kennd­ustu mæl­ingu spill­ingar á alþjóða­vísu er Ísland 17. minnst spillta land í heimi, en vís­bend­ingar eru þó til staðar um að íslenskur almenn­ingur virð­ist upp­lifa tölu­verða spill­ingu.

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir setti einnig fram hálf­sann­leik er að hún sagði mögu­legt fyrir Ísland að gera sam­komu­lag við Seðla­banka Evrópu um að tengja krón­una við evru. Raunin er sú að það liggur ekk­ert fyrir um hvort það væri mögu­legt eða ekki.

[adspot]

Logi Ein­ars­son setti fram hálf­sann­leik er hann full­yrti að tekju­hæsta 1 pró­sent þjóð­ar­innar borgi „minna en allur almenn­ingur í land­inu, allur fjöld­inn“ í skatta. Hann var þó ekki langt frá því að vera á réttri leið, en skatt­byrði þeirra tekju­hæstu er ekki mikið mun hærri en íslensks almenn­ings að með­al­tali.

Á réttri leið

Katrín Jak­obs­dóttir var á réttri leið þegar hún tjáði sig um barna­bóta­kerfið og sagði að rík­is­stjórn hennar hefði aukið við barna­bóta­kerfið og tryggt að það nái til fleiri en það gerði er stjórnin tak við. Raun­virði bóta hefur þó nán­ast ekk­ert hækkað.

Inga Sæland var sömu­leiðis á réttri leið þegar hún sagði að færsla á per­sónu­af­slætti frá „þeim ríku“ til hinna efna­minni geti fjár­magnað 350 þús­und króna skatt­frjálsa fram­færslu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár