Stöðugleikaframlögin fóru ekki öll í embættismenn og alþingismenn

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Guð­mundar Franklín Jóns­sonar um að stöð­ug­leika­fram­lögin hafi öll farið í hækkun á kostn­aði við rekstur emb­ættis- og þing­manna.

Guðmundur Franklín Jónsson formaður Frjálslynda lýðræðisflokksins í forystusætinu á RÚV í gærkvöldi.
Guð­mundur Franklín Jónsson for­maður Frjáls­lynda lýð­ræð­is­flokks­ins í for­ystu­sæt­inu á RÚV í gær­kvöldi. Mynd: Skjáskot/RÚV

Frjáls­lyndi lýð­ræð­is­flokk­ur­inn hefur hið gamla slag­orð „báknið burt“ á stefnu­skrá sinni. Í því felst meðal ann­ars sam­kvæmt útskýr­ingu flokks­ins, að öllum rík­is­stofn­unum verði gert að skila inn sparn­að­ar­til­lögum fyrir næstu ára­mót. Þá vill flokk­ur­inn leggja af styrki til stjórn­mála­flokka sem hann kallar spill­ingu af hæstu gráðu, sjálftöku og búi til rík­is­rekið stjórn­mála­bákn.

Guð­mundur Franklín Jónsson, for­maður flokks­ins, ræddi þessi mál í þætt­inum For­ystu­sætið á RÚV í gær­kvöldi.

Þar sagði hann meðal ann­ars að rík­is­út­gjöld hefðu hækkað um 25 pró­sent á verð­lagi árs­ins 2016. Síðan sagði Guð­mundur Franklín: „Stöð­ug­leika­sátt­mál­inn sem var gerður við erlendu bank­anna. hann er horf­inn. Þetta fór allt í hækkun emb­ætt­is­manna og alþing­is­manna.“ Í kjöl­farið sagði hann: „Stjórn­mála­menn. Millj­arðar á ári. Allir komnir með aðstoð­ar­menn.“

Stöðugleikaframlögin skiluðu að minnsta kosti 460 milljörðum

Í skýrslu sem Rík­is­end­ur­skoðun gerði um félagið Lind­ar­hvol, sem sá um umsýslu, fulln­ustu og sölu á eignum sem rík­is­sjóður fékk afhent vegna stöð­ug­leika­samn­ing­anna við slitabú föllnu bank­anna, og var birt í fyrra kom fram að stöð­ug­leika­fram­lagið hefði skilað 460 millj­örðum króna í rík­is­sjóð, eða 76 millj­örðum króna meira en upp­haf­legar áætl­anir gerðu ráð fyrir. Gera má ráð fyrir að þessi tala hafi hækkað eitt­hvað síðan þá, í ljósi þess að ein eign­anna sem ríkið fékk við gerð stöð­ug­leika­samn­ing­anna var Íslands­banki, sem var skráður á markað fyrr á þessu ári og hefur hækkað mikið í virði.

Þorri þeirra fjár­muna sem komu inn vegna sölu stöð­ug­leika­eigna var nýttur í að greiða niður skuldir rík­is­sjóðs og lækka með því vaxta­kostnað hans. Skuldir rík­is­sjóðs voru 65 pró­sent af vergri lands­fram­leiðslu árið 2009 en fóru undir 30 pró­sent árið 2019 og áætl­anir gera ráð fyrir að þær verði um 60 pró­sent árið 2025.

Kostnaður hefur hækkað, en ekki um 460 milljarða

Rík­is­út­gjöld hafa hækkað um 21 pró­sent á verð­lagi árs­ins 2016, frá árinu 2016. Sú full­yrð­ing Guð­mundar Frank­líns er því á réttri leið, þótt hún sé ekki rétt. Á því tíma­bili hækk­uðu rík­is­út­gjöldin úr 840 millj­örðum króna í 1.013 millj­arða króna á verð­lagi áður­nefnds árs. Upp­safn­aður við­bót­ar­kostn­aður í krónum talið er um 174 millj­arðar króna, eða um 38 pró­sent af þeim fjár­munum sem stöð­ug­leika­samn­ing­arnir skil­uðu sam­kvæmt því sem fram kom í skýrslu Rík­is­end­ur­skoð­unar í fyrra, og er hóf­leg.

Launa­kostn­aður rík­is­sjóðs hefur auk­ist um 67 millj­arða króna frá árinu 2016, eða um 44 millj­arða króna á verð­lagi þess árs.

Kjarninn greindi frá því í síð­asta mán­uði að í byrjun sum­ars 2016 hafi grunn­laun þing­manna á Íslandi verið 712.030 krónur á mán­uði. Nú, fimm árum síðar, eru þau 1.285.411 krónur á mán­uði. Þau hafa því hækkað um 573.381 krónur á tíma­bil­inu, eða um rúm­lega 80 pró­sent. Grunn­laun ráð­herra hækk­uðu enn meira í krónum talið. Þeir voru með 1.257.425 krónur í laun snemm­sum­ars 2016 en fá nú 2.131.788 krónur á mán­uði. Laun þeirra hafa því hækkað um 874.363 krónur á tíma­bil­inu, eða um 70 pró­sent.

Rekstur rík­is­stjórnar Íslands, sem í fel­ast launa­greiðslur ráð­herra og allra aðstoð­ar­manna þeirra, er áætl­aður 681,3 millj­ónir króna á þessu ári, sam­kvæmt fjár­lögum fyrir árið 2021 sem sam­þykkt voru í fyrra. Það er 48 pró­sent aukn­ing frá áætl­uðum kostn­aði á árinu 2018, sem var fyrsta heila ár rík­is­stjórn­ar­innar Katrínar Jak­obs­dóttur við völd, en kostn­aður vegna launa ráð­herra og aðstoð­ar­manna þeirra átti þá að vera 461 millj­ónir króna sam­kvæmt sam­þykktum fjár­lögum.

Hann reynd­ist hins vegar verða 597 millj­ónir króna á árinu 2018. Árið 2019 var hann svo undir áætlun en hækk­aði samt milli ára í 605 millj­ónir króna.

Í fyrra var hann áætl­aður 660 millj­ónir króna á fjár­lögum og í ár er hann, líkt og áður sagði, áætl­aður 681,3 millj­ónir króna.

Stjórn­mála­flokk­arnir átta sem eiga full­trúa á Alþingi munu fá sam­tals rúm­lega 2,8 millj­arða króna úr rík­is­sjóði á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili fyrir að vera til. Það er 127 pró­sent hærri upp­hæð en þeir hefðu fengið ef til­laga sex flokka sem sæti eiga á Alþingi um að hækka fram­lag rík­­­­is­ins til stjórn­­­­­­­mála­­­­flokka á árinu 2018 hefði ekki verið sam­þykkt í árs­lok 2017.

Niðurstaða Staðreyndarvaktarinnar

Það er nið­ur­staða Stað­reynda­vaktar Kjarnans að Guð­mundur Franklín Jónsson hafi farið með fleipur í For­ystu­sæt­inu á RÚV þegar hann sagði: „Stöð­ug­leika­sátt­mál­inn sem var gerður við erlendu bank­anna. hann er horf­inn. Þetta fór allt í hækkun emb­ætt­is­manna og alþing­is­manna.“

Þótt laun emb­ætt­is­manna og alþing­is­manna, og ýmis annar kostn­aður í kringum rekstur rík­is­sjóðs, hafi auk­ist umtals­vert þá liggur fyrir að sá kostn­aður er ekki nálægt þeim 460 millj­örðum króna sem stöð­ug­leika­fram­lögin skil­uðu í rík­is­sjóð, hvernig sem á það er litið. Það er hins vegar rétt hjá Guðmundi að allir þessir kostn­að­ar­liðir hafa hækkað umtals­vert á því tíma­bili sem hann nefndi í við­tal­inu og því er full­yrð­ingin ekki hauga­lygi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár