Gæti kostað 50-60 milljarða að gera 350 þúsund króna laun skatt- og skerðingalaus

Stað­reynda­vakt Kjarnans skoðar full­yrð­ingu Ingu Sæland um að færsla á per­sónu­af­slætti frá „þeim ríku“ til hinna efna­minni geti fjár­magnað 350 þús­und króna skatt­frjálsa fram­færslu.

Inga Sæland, formaður Flokks fólksins
Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins Mynd: Bára Huld Beck

Inga Sæland, for­maður Flokks fólks­ins, var gestur For­ystu­sæt­is­ins á RÚV fyrir helgi. Þar var hún spurð út í helstu til­lögur flokks­ins í efna­hags­málum, sem snú­ast meðal ann­ars um að lág­marks­fram­færsla verði 350 þús­und krónur skatta- og skerð­ing­ar­laus.

Þetta kosn­inga­lof­orð á að fjár­magna með því að „færa per­sónu­af­slátt­ur­inn frá þeim ríku til hinna efna­minni“.

Inga var spurð út í þessa aðgerð í þætt­inum og sagði að um ákveðið fallandi skatta­af­slátt­ar­kerfi væri að ræða til að rík­is­sjóður gæti náð að færa til kostnað svo hægt yrði að ná 350 þús­und króna skatta- og skerð­ing­ar­lausa mark­mið­inu. Það þyrfti því ekki að afla nýrra tekna til að ná mark­mið­inu heldur að færa til fjár­muni innan rík­is­sjóðs.

Inga sagði að per­sónu­af­sláttur ætti að byrja að skerð­ast í ríf­lega 700 þús­und króna launum á mán­uði og þegar fólk væri komið í efsta skatt­þrep, sem er af tekjum yfir 979.847 krónum á mán­uði, þá myndi það ekki vera með neinn per­sónu­af­slátt. „Þetta er í raun­inni 50-60 millj­arðar sem við erum að færa til inni í skatt­kerf­inu sjálfu sem að við teljum að séu mjög glaðir að fá að rétta þetta til fátækara fólks, fjöl­skyldna og barna sem eru hér stand­andi í bið­röð að betla mat.“

Kostar 168,3 milljarða króna

Lilja Rafney Magn­ús­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, spurði Bjarna Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að því fyrr á þessu ári hvað það myndi kosta að hækka per­sónu­af­slátt svo að 350 þús­und króna mán­að­ar­tekjur væru skatt­frjálsar.

Samkvæmt svari Bjarna þyrfti per­sónu­af­sláttur að vera 78 þús­und krónur á mán­uði til þess að mán­að­ar­tekjur að 250 þús­und krónum yrðu skatt­frjálsar. Slík hækkun myndi kosta rík­is­sjóð um 88 millj­arða króna, sem sam­svarar um 45 pró­sent af álagn­ingu tekju­skatts á ein­stak­linga í fyrra.

Til þess að mán­að­ar­tekjur að 350 þús­und krónum, sem er nálægt lág­marks­launum, verði skatt­frjálsar þyrfti per­sónu­af­slátt­ur­inn hins vegar að vera 110 þús­und krónur á mán­uði. Heild­ar­tekju­tap rík­is­sjóðs af því er metið á 168,3 millj­arða króna, en það sam­svarar 85 pró­sentum af tekju­skatts­stofn­inum.

Ef horft er til þess þess að ein­ungis lægstu þrjár tíundir skatt­greið­enda yrðu skatt­frjálsar þá myndi það kosta um 40-50 millj­arða króna. Samkvæmt svari Ásmundar Einars Daða­sonar, félags- og barna­mála­ráð­herra, við fyr­ir­spurn Ingu í apríl árið 2019, myndu tekjur rík­is­sjóðs skerð­ast um 16 millj­arða króna ef skerð­ingar ef frí­tekju­mark líf­eyr­is­tekna yrði fært í 100 þús­und krónur. Ef það yrði afnumið að öllu myndi kostn­að­ur­inn þó marg­fald­ast.

[adspot]Útreikn­ingar Kjarnans sýna að til­færsla á per­sónu­af­slætti allra skatt­greið­enda sem eru í efsta skatt­þrepi myndi skila rík­is­sjóði 34,5 millj­örðum króna í við­bót­ar­tekjur sem hægt væri að flytja til innan kerf­is­ins, og greiða fyrir skatt­leysi þeirra lægst­laun­uðu. Með­al­tekjur á síð­asta ári voru 676.256 krónur og ef per­sónu­af­slátt­ur­inn myndi byrja að skerð­ast þar til að tryggja skatt­leysi allra með undir 350 þús­und krónur muni, og allir innan þess hóps myndu helm­inga per­sónu­af­slátt­inn sinn, myndu það skila 11-15 millj­örðum króna í nýjar tekjur fyrir rík­is­sjóð. Heild­ar­tekjur rík­is­sjóðs vegna þess­arar aðgerðar eru því í besta falli í lægri mörkum þeirrar upp­hæðar sem Inga nefndi í For­ystu­sæt­inu, 50-60 millj­arðar króna.

Til að ná 55 millj­arða króna tekjum út úr aðgerð­inni þyrftu allir með tekjur frá 676.256 krónum á mán­uði og upp að 979.847 þús­und krónum á mán­uði að gefa eftir um 45 þús­und krónur á mán­uði að jafn­aði í per­sónu­af­slátt og allir sem eru með yfir seinni töl­una gæfu eftir allan per­sónu­af­slátt sinn, 50.792 krónur á mán­uði. Lægri tekju­hóp­ur­inn gæfi því eftir um 540 þús­und krónur á ári og sá hærri tæp­lega 610 þús­und krónur á ári.

Þessi lækkun myndi þýða 7-8 pró­senta sam­dráttur í kaup­mætti allra sem væru með tekjur yfir með­al­tekjur.

Hér eru ein­ungis bein áhrif metin af lækkun per­sónu­af­sláttar. Af henni gætu líka orðið nei­kvæð óbein áhrif þar sem fólk gæti dregið úr vinnu­fram­lagi sínu í kjöl­far hennar. Því gætum við verið að ofmeta tekjur rík­is­sjóðs af lækk­un­inni.

Niðurstaða Staðreyndavaktarinnar

Það kostar lík­lega um 50-60 millj­arða króna að lág­marks­fram­færsla upp á 350 þús­und krónur verði skatta- og skerð­ing­ar­laus, ef miðað er við að skerð­ing­ar­leysið feli í sér að skerð­ingar ef frí­tekju­mark líf­eyr­is­tekna yrði fært í 100 þús­und krónur. Ef skerð­ing­ar­mörkin yrðu hærri myndi sú upp­hæð þó hækka mikið.

Inga Sæland var því á réttri leið í For­ystu­sæt­inu fyrir helgi þegar hún sagði að fallandi per­sónu­af­slátt­ar­kerfið sem flokk­ur­inn talar fyrir geti fjár­magnað þessa aðgerð og að hægt væri að ná því mark­miði með til­færslu á fjár­munum sem þegar renna í rík­is­sjóð.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár