Bankarnir að taka yfir íbúðalánamarkaðinn

Hlut­deild óverð­tryggðra lána hefur tvö­fald­ast á rúm­lega tveimur árum. Bankar eru stór­tæk­astir en vextir á óverð­tryggðum lánum hafa hækkað und­an­farið. Þá hefur verð­mið­inn á því að tryggja sér fyr­ir­sjá­an­leika með föstum vöxtum til 3-5 ára líka hækkað.

Bank­arnir eru nú með 67 pró­sent af öllum útistand­andi lánum til íbúð­ar­kaupa. Þeir hafa stór­aukið mark­aðs­hlut­deild sína á einu ári, en í lok apríl í fyrra var hlut­deild þeirra af íbúða­lánum á Íslandi um 55 pró­sent.

[links]Þetta kemur fram í nýlegri mán­að­ar­skýrslu hag­deildar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar (HMS) fyrir júní­mánuð.

Þar segir enn fremur að hlut­deild óverð­tryggðra lána hafi vaxið hratt eftir því sem vextir á íbúða­lánum hafi farið lækk­andi. Þá lækkun má rekja til mik­illar lækk­unar á stýri­vöxtum Seðla­banka Íslands, en þeir fóru niður í 0,75 pró­sent í fyrra eftir að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn og höfðu aldrei verið lægri í Íslands­sög­unni. Fyrir vikið gátu bankar boðið upp á óverð­tryggða vexti sem höfðu ekki sést áður hér­lendis. Þeir fóru lægst í 3,3 pró­sent á breyti­legum lánum hjá Lands­bank­anum.

Þetta ástand leiddi til þess að lán­tak­endur flykkt­ust í óverð­tryggð lán bank­anna, enda mun hag­stæð­ari kostur en aðrir lána­mögu­leikar á mark­aðnum. Í lok apríl 2021 var hlut­deild þeirra komin upp í 46 pró­sent. Til sam­an­burðar var hlut­deild óverð­tryggðra íbúða­lána 23 pró­sent, eða helm­ingi minni, í byrjun árs 2019. Því átti sér stað eðl­is­breyt­ing á íbúða­lána­mark­aði und­an­farið ár sem sýndi að íslensk heim­ili eru mjög hreyf­an­leg í leit að bestu kjör­unum hverju sinni.

Hærri vextir bíta veskið hjá heimilum landsins

Stýri­vextir voru hækk­aðir í maí um 0,25 pró­sentu­stig og upp í eitt pró­sent. Það leiddi til þess að allir stóru bank­arnir þrír: Lands­bank­inn, Íslands­banki og Arion banki hækk­uðu óverð­tryggða vexti í kjöl­farið. Þeir lægstu sem í boði eru nú eru 3,45 pró­sent á breyti­legum lánum hjá Lands­bank­anum.

[adspot]Ljóst má vera að þessi hækkun mun hafa áhrif á veskið hjá mörgum heim­ilum í land­inu. Ný óverð­tryggð hús­næð­is­lán banka til heim­ila lands­ins námu til að mynda 169 millj­örðum króna á fyrstu fimm mán­uðum árs­ins 2021.

Frá upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins hér­lendis í mars í fyrra, þegar vextir tóku að hríð­ar­lækka sem leiddu til stór­auk­innar lán­töku til hús­næð­is­kaupa, hafa heim­ili lands­ins tekið 517 millj­arða króna í ný óverð­tryggð lán hjá Lands­banka, Íslands­banka og Arion banka að frá­dregnum upp­greiðslum og umfram­greiðslum.

Það er um 119 millj­örðum krónum meira en heim­ili lands­ins tóku í óverð­tryggð hús­næð­is­lán hjá bönk­unum þremur frá byrjun árs 2013 og til loka febr­úar 2020, eða á sjö árum og tveimur mán­uðum.

Munurinn milli breytilegra og fastra vaxta eykst

Í mán­að­ar­skýrslu HMS er bent á að til við­bótar við það að vextir séu að hækka á breyti­legum óverð­tryggðum lánum sé mun­ur­inn á föstum vöxtum, sem veittir eru á lán sem eru bundin til 3-5 ára, og breyti­legum vöxtum, sem breyt­ast mán­að­ar­lega, farin að vaxa. Við­skipta­vinir banka séu farnir að borga hærra verð fyrir fyr­ir­sjá­an­leik­ann sem felst í föstum vöxtum.

Sá munur er nú að jafn­aði um eitt pró­sentu­stig en var um hálft pró­sentu­stig í fyrra­vor. Hagdeild HMS telur að þetta aukna álag við að festa vext­ina í 3-5 ár gefi til kynna að vænt­ingar um vaxta­hækk­anir á þeim tíma fari vax­andi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár