Íbúðir á höfuðborgarsvæðinu seljast hratt og margar á yfirverði

Sölutími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur aldrei mælst styttri, auk þess sem hlut­fall þeirra sem selst á yfir­verði hefur aldrei verið hærra. Á sama tíma hefur leigu­verð á svæð­inu lækkað, átt­unda mán­uð­inn í röð.

Meðalverð íbúða hefur hækkað um tvær milljónir á fjórum mánuðum.
Með­al­verð íbúða hefur hækkað um tvær millj­ónir á fjórum mán­uðum. Mynd: Bára Huld Beck

Allir mæli­kvarðar Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unnar sýna mik­inn eft­ir­spurn­ar­þrýst­ing eftir íbúða­hús­næði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Fjöldi aug­lýstra eigna á svæð­inu er sögu­lega lít­ill, auk þess sem sölu­tími þeirra hefur aldrei mælst styttri og hlut­fall þeirra sem selst á yfir­verði hefur aldrei mælst hærra. Þetta kemur fram í nýút­gef­inni mán­að­ar­skýrslu stofn­un­ar­innar um hús­næð­is­mark­að­inn.

Mesta hækkunin á höfuðborgarsvæðinu

Samkvæmt skýrsl­unni hefur íbúða­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækkað um 11,6 pró­sent á milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Annars staðar á land­inu hefur íbúða­verð verið öllu stöðugra, en ef höf­uð­borgin og nágranna­sveit­ar­fé­lög hennar eru talin frá hefur íbúða­verð aðeins hækkað um 0,6 pró­sent á sama tíma­bili.

Sérbýli á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hækk­kaði nærri tvö­falt meira í verði á milli mán­aða en íbúðir í fjöl­býli, eða um ríf­lega 3,5 pró­sent á móti 1,6 pró­sent á milli mars og apríl. Miðgildi kaup­verðs í sér­býli var um 88 millj­ónir króna í apríl og hefur hækkað um tæpar fjórar millj­ónir frá árs­byrjun. Miðgildi íbúðar í fjöl­býli hefur einnig hækkað tölu­vert á þessu tíma­bili, eða úr rúmum 48 millj­ónum í jan­úar til 50 millj­óna í apríl.

Stuttur sölutími og líklegri að seljast á yfirverði

Á sama tíma heldur sölu­tími íbúða áfram að stytt­ast og hefur hann ekki verið styttri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en nú er hver íbúð sem skráð er þar að með­al­tali á sölu í 39 daga. Til við­mið­unar var með­al­sölu­tími íbúða á svæð­inu rúm­lega tvö­falt lengri árið 2016.

Einnig hefur aldrei verið lík­legra að íbúðir selj­ist á yfir­verði á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, en frá febr­úar til apríl var rúmur þriðj­ungur þeirra seldur yfir ásettu verði. Sam­svar­andi hlut­fall var undir tíu pró­sentum hjá íbúðum í fjöl­býl­is­húsi áður en far­ald­ur­inn skall á.

Öfug þróun á leigumarkaði

Þrátt fyrir þessa mikla hækkun hefur öfug þróun átt sér stað á leigu­mark­aði, en þar hefur leigu­verð lækkað um 2,4 pró­sent á milli apr­íl­mán­aða 2020 og 2021. Þetta er átt­undi mán­uð­ur­inn í röð þar sem árs­breyt­ingin á leigu­verði mælist nei­kvæð. Hins vegar virð­ist eft­ir­spurn eftir leigu­hús­næði ekki enn hafa minnkað ef miðað er við fjölda þing­lýstra leigu­samn­inga, en sam­kvæmt skýrslu HMS hafa þeir verið margir í vor miðað við árs­tíma.

Með­al­fjár­hæð greiddrar leigu í apríl nam 187 þús­und krónum á mán­uði og hefur hún lækkað um 20 þús­und krónur á síð­ustu tveimur árum. Með­al­stærð leigu­í­búða er 71 fer­metri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár