Þekkt en þó óþekkt

Flestir kann­ast við Einar Áskel, bursta­klippta strák­inn sem býr með pabba sínum. Færri þekkja hins­vegar nafn höf­und­ar­ins sem skrif­aði sög­urnar og teikn­aði mynd­irnar. Gunilla Bergström er látin.

Gunilla Bergström skrifaði hinar geysivinsælu bækur um Einar Áskel.
Gunilla Bergström skrif­aði hinar geysi­vin­sælu bækur um Einar Áskel. Mynd: Pål Andersson/Wiki Commons

Kjarn­inn end­­­­­­ur­birtir nú valda pistla Borg­þórs Arn­gríms­­­­­­sonar sem sam­hliða eru gefnir út sem hlað­varps­þætt­­­­­­ir. Frétta­­­­­­skýr­ingar Borg­þórs njóta mik­illa vin­­­­­­sælda og sú sem er end­­­­­­ur­birt hér að neðan var upp­­­­­­haf­­­­­­lega birt þann 29. ágúst 2021.

Flestir kann­ast við Einar Áskel, bursta­klippta strák­inn sem býr með pabba sínum. Færri þekkja hins­vegar nafn höf­und­ar­ins sem skrif­aði sög­urnar og teikn­aði mynd­irnar. Gunilla Bergström er látin.

Í útvarps­við­tali fyrir nokkrum árum sagði Gunilla Bergströ: „Mjög fáir þekkja nafn mitt en það líkar mér vel. En það þekkja aftur á móti margir hann Alfons Åberg enda kann hann að stela athygl­inni drengur sá.“ Gunilla Bergström tók ekki of djúpt í árinni þegar hún sagði að margir þekktu Alfons Åberg, eins og strák­ur­inn heitir á frum­mál­inu. Bækurnar um Einar Áskel, eins og hann heitir í íslensku þýð­ing­unni, eru sam­tals 26. Þær hafa verið gefnar út í að minnsta kosti 40 löndum og fjöldi seldra ein­taka nálg­ast 10 millj­ónir.

Gunilla Bergström fædd­ist í Gauta­borg í Svíþjóð 3. júlí 1942. Móðir hennar var kenn­ari en fað­ir­inn verk­fræð­ingur. Þau skildu nokkrum árum eftir að Gunilla fædd­ist, faðir hennar gift­ist danskri mynd­list­ar­konu og móð­irin tók saman við vinnu­fé­laga úr skól­anum. Gunilla sagði síðar frá því að hjá föður hennar og „nýju“ kon­unni hefði lífið verið allt öðru­vísi en hjá kenn­ur­unum, móður hennar og sam­býl­is­mann­inum. „Seinni konan hans pabba kenndi mér að bera virð­ingu fyrir lista­manns­starf­inu.“

Blaðamaður og fyrsta bókin

Árið 1966 útskrif­að­ist Gunilla Bergström úr blaða­manna­námi í Gauta­borg. Hún fékk strax vinnu og starf­aði næstu árin sem blaða­maður, hjá Dagens Nyheter og Afton­bla­det.

Árið 1968 tók hún við­tal við þrjár konur, sem allar voru frá­skildar. „Eftir á upp­götv­aði ég að við höfðum í þessum sam­tölum alveg gleymt börn­unum, það þótti mér ein­kenni­legt. Ég mundi svo vel skilnað for­eldra minna þótt það væru næstum liðin 20 ár síðan það gerð­ist.“ Í fram­haldi af við­töl­unum við kon­urnar þrjár skrif­aði Gunilla Bergström sína fyrstu bók, Pabbi Míu flytur. Þótt stúlkan í bók­inni héti Mía var þetta í raun saga Gunillu sjálfrar.

Þáver­andi maður Gunillu sagði að sagan um Míu væri fyrir börn og hún ætti að senda hana til útgef­anda. Gunilla þekkti lítið til bóka­út­gáfu en sendi hand­ritið til for­lags­ins Rabén og Sjögren en það for­lag gaf meðal ann­ars út bækur Astrid Lindgren.

Bókin Pabbi Míu flytur kom út 1971, með mynd­skreyt­ingum höf­und­ar­ins.

Alfons Åberg, Einar Áskell

Mynd­irnar sem Gunilla Bergström hafði teiknað í bók­ina um pabba Míu var, að hennar sögn, kveikjan að bók­unum um Einar Áskel. Hana lang­aði að gera bendi­bók, eins og hún komst að orði. Aðal­per­sónan skyldi vera ánægður strákur og ekki allt of mjúk­máll. Það tók Gunillu aðeins eina helgi að teikna mynd­irnar, sem áttu að vera aðal­at­riði bók­ar­innar. Sagan, sem var hálf­gert auka­at­riði í byrjun, fjallar um dreng sem býr hjá pabba sínum. Pabbinn leggur svo hart að sér við að fá dreng­inn til að sofna að sjálfur liggur hann að lokum örmagna á gólf­inu.

Bókin varð þó aldrei bendi­bók, því útgef­and­inn vildi fá mynda­bók með lengri sögu­þræði. Úr varð bókin Góða nótt Einar Áskell sem kom út árið 1972. Gunilla Bergström sagði síðar að hvorki sig né útgef­and­ann hefði grunað að bókin yrði jafn vin­sæl og raun varð á. Vin­sældir þess­arar fyrstu bókar köll­uðu á aðra bók og sam­tals urðu bæk­urnar um Einar Áskel 26 tals­ins. Sögurnar um bursta­klippta strák­inn og pabbann með píp­una höfð­uðu til barna um allan heim. „Einar Áskell er heims­maður,“ sagði höf­und­ur­inn ein­hverju sinni í við­tali.

Venjulegur strákur en ekki ofurhetja

Einar Áskell er ekki hetja og er í raun algjör and­stæða ann­arrar þekktrar per­sónu í sænskum barna­bók­menntum, Línu Langsokks. Einar Áskell er ekki sterkur, hann á hvorki hest né apa og býr í blokk en ekki stóru húsi. En hann spyr og leitar svara við spurn­ingum sem flest börn spyrja sig, hvort sem þau eru korn­ung eða að byrja í skóla.

Bækurnar um Einar Áskel eru í senn tíma­lausar en jafn­framt afsprengi mik­illa breyt­inga­tíma. Svíþjóð var meðal fyrstu landa í heimi þar sem hjóna­skiln­aðir töld­ust ekki til tíð­inda. Hlut­verka­skipt­ing kynj­anna var að breyt­ast. Gunilla Bergström sagði í við­tölum að eig­in­lega þætti sér vænst um föð­ur­inn í bók­unum um Einar Áskel. „Svolítið utan við sig, vin­gjarn­legur og ekki upp­fullur af hug­myndum um hvað væri hið eina rétta í upp­eld­inu. Öryggi frá þeim full­orðnu alltaf í bak­grunni, eins og þegar ég var barn.“

Kvartað yfir kvenmannsleysi og kvikmynd

Konur og stúlkur koma lítið við sögu í bók­unum um Einar Áskel. Það var fyrst í næst síð­ustu bók­inni, þeirri tutt­ug­ustu og fimmtu, að fyrst var minnst á mömmu Einars Áskels. Mjög stutt­lega þó.

Höf­und­ur­inn fékk ótal kvart­anir vegna þessa kven­manns­leysis í bók­unum en hélt sínu striki. For­leggj­ar­inn fékk líka kvart­anir en það breytti engu. Hins­vegar tók hann í taumana og fékk höf­und­inn til að breyta text­anum þar sem Einar Áskell drekkur app­el­sínusafa, eftir að hafa burstað tenn­urnar. Það þótti ekki æski­leg fyr­ir­mynd. Hins­vegar var höf­und­ur­inn ófá­an­legur til að láta pabbann hætta að reykja píp­una sem hann skildi aldrei við sig.

Einar Áskell hefur líka kom­ist á hvíta tjaldið. Meðal þeirra bóka sem gerðar hafa verið myndir eftir er Einar Áskell og ófreskjan. Sú mynd fjallar um að Einar Áskell fékk sam­visku­bit eftir að hafa slegið annan strák. Hann gat ekki sofið og fannst ófreskja vera undir rúm­inu. Ófreskjan hvarf ekki fyrr en Einar Áskell hafði beðið dreng­inn sem hann sló afsök­unar.

Eftir að myndin var sýnd á leik­skól­anum Sadelmakare­byns för­skola í Malmö fékk yfir­stjórn leik­skól­anna í Malmö kvörtun frá for­eldrum drengs í skól­anum. Hann gat ekki sofið eftir að hafa séð mynd­ina og fannst ófreskja vera undir rúm­inu sínu. Þegar þetta hafði gengið svona í viku kvört­uðu for­eldr­arnir. Sögðu mynd­ina ekki fyrir lítil börn og reyndar væri allt of mikið um kvik­mynda­sýn­ingar í leik­skól­anum. Skóla­stjóri leik­skól­ans ákvað í fram­haldi af þess­ari kvörtun að hætta, í bili, að sýna kvik­myndir í skól­anum. Benti jafn­framt á að ald­urs­tak­mörk vegna kvik­mynd­ar­innar um ófreskj­una væri 0 ár. Einn fram­leið­enda mynd­ar­innar sagði að millj­ónir barna um víða ver­öld hefðu séð mynd­ina um ófreskj­una en áður­nefnd kvörtun væri sú fyrsta sem hann hefði heyrt af.

Atvinnurithöfundur

Vin­sældir fyrstu bók­ar­innar um Einar Áskel gerðu Gunillu Bergström kleift að snúa sér alfarið að rit­störfum. Hún skrif­aði sam­tals rúm­lega 40 bækur, allar með eigin mynd­skreyt­ingum.

Þótt bæk­urnar um Einar Áskel hafi aflað höf­undi sínum mestra tekna eru þó aðrar bækur sem stóðu hjarta hennar nær. Árið 1972 eign­að­ist Gunilla Bergström dótt­ur­ina Boel, en þremur árum fyrr kom son­ur­inn Pål í heim­inn. Boel greind­ist ung með ein­hverfu og við það breytt­ist margt í lífi fjöl­skyld­unnar. Gunilla Bergström fyllt­ist þung­lyndi, og sá aðeins myrkur, eins og hún komst síðar að orði um ástand sitt. Með aðstoð tókst henni að kom­ast yfir þetta erf­ið­leika­tíma­bil, Boel var lífs­glatt barn þótt hún væri öðru­vísi en mörg önnur börn, eins og móðir hennar komst að orði.

Ætlaði ekki að skrifa um sín eigin börn

Gunilla Bergström hafði lofað sjálfri sér að skrifa aldrei um sín eigin börn. Þörfin fyrir að skrifa um að vera for­eldri ein­hverfs barns varð þó yfir­sterk­ari. Bókin sem til varð var eins­konar rímna­þulu­bók og hefði getað heitið Pål og Boel, eftir börn­unum, en fékk nafnið Ramsor og tramsor om Bill og Bolla. Síðar kom önnur bók um sama efni.

Vinsæll á Íslandi

Fyrsta bókin um Einar Áskel kom út á Íslandi árið 1980 í þýð­ingu Sigrúnar Árna­dóttur. Hún sagði frá því í við­tölum að það hefði ekki verið ein­falt að finna bursta­klippta og kringlu­leita stráknum íslenskt nafn. Einar Áskell hefði að lokum orðið fyrir val­inu „og ég held að það val hafi lukk­ast vel“. Flestir geta tekið undir það og bæk­urnar um Einar Áskel hafa notið mik­illa vin­sælda á Íslandi. Sigrún lést í síð­asta mán­uði.

Gunilla Bergström lést síð­ast­lið­inn mið­viku­dag, 25. ágúst, 79 ára að aldri. Hennar hefur verið minnst í fjöl­miðlum um allan heim. Í nýlegum tölum frá sam­tökum bóka­safna í Svíþjóð kom fram að á útlána­lista safn­anna þar í landi er aðeins Astrid Lindgren sem trónir ofar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár