Stjórnendur Arion banka ræddu við lífeyrissjóði

Und­ir­bún­ingur sölu­fer­ils á Arion banka mið­ast við að sala fara fram í apríl.

Funda­höld áttu sér stað í síð­ustu viku með full­trú­um inn­lendra líf­eyr­is­sjóða þar sem Hösk­uldur Ólafsson banka­stjóri og Stefán Pét­urs­son fjár­mála­stjóri Ari­on banka kynntu starf­semi hans með aðkomu sjóð­anna fyr­ir aug­um, við sölu bank­ans. 

Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Ríkið á 13 pró­sent í Arion banka og Kaupþing 87 pró­sent. Horft er til tvö­faldrar skrán­ingar á bank­anum, í Svíþjóð og á Íslandi, eins og greint var frá á vef Reuters 18. jan­úar sl.

Und­ir­bún­ing­ur söl­unn­ar hef­ur staðið um langa hríð. Þau tölu­legu gögn sem lágu fyr­ir fund­in­um byggð­ust á síð­asta 9 mán­aða upp­gjöri bank­ans, sem til­kynnt var til Kaup­hall­ar um miðjan nóv­em­ber síð­ast­lið­inn, að því er segir í Morg­un­blað­inu.

Í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blað­inu í dag seg­ir, að ljóst þyki, að til­gang­ur funda­hald­anna sé að búa líf­eyr­is­sjóði und­ir að til þeirra verði leitað og þeim boð­inn hlut­ur í bank­an­um þegar kem­ur að sölu hans, sem sam­kvæmt því sem fram kom gæti orðið í apríl.

Hagn­aður Arion banka á árinu 2016 nam 21,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 49,7 millj­arða króna árið 2015. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­an­um sem send var út í gær.

Hösk­uldur Ólafs­son, banka­stjóri, segir upp­gjörið við­un­and­i. Hann gagn­rýnir stjórn­völd í land­inu fyrir að fram­lengja banka­skatt­inn svo­nefnda og segir hann fyrst og fremst stuðla að hærra vaxta­stigi í land­inu. Sér­stak­lega víkur hann að íbúða­lána­mark­aði þar sem hann segir sam­keppn­is­stöðu ekki vera jafna. „Bankar keppa á inn­lendum mark­aði við líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að veit­ingu íbúða­lána en líf­eyr­is­sjóðir greiða hvorki tekju­skatt né fjár­sýslu- eða banka­skatt. Ljóst er að sam­keppn­is­staðan á þessum mark­aði er ekki jöfn og aðgerðir stjórn­valda fela í sér ein­kenni­lega íhlutun á sam­keppn­is­mark­aði. Alls greiðir Arion banki um fimm millj­arða í skatta á árinu sem fyr­ir­tæki í öðrum atvinnu­greinum greiða ekki. Banka­skatt­ur­inn hefur haft tak­mörkuð áhrif á verð­lagn­ingu bank­anna hingað til enda átti hann að vera tíma­bund­inn. Þar sem skatt­ur­inn leggst á fjár­mögnun banka þá leiðir hann til kostn­að­ar­auka hjá við­skipta­vinum bank­anna og stuðlar þegar allt kemur til alls að hærra vaxta­stigi í land­inu. Mik­il­vægt er að þessi skatt­lagn­ing verði end­ur­skoð­uð,“ segir Hösk­uld­ur.

Arð­semi eigin fjár bank­ans var 10,5 pró­sent á árinu sam­an­borið við 28,1 pró­sent árið 2015. Reikn­aður hagn­aður af reglu­legri starf­semi nam 9,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 14,1 millj­arð á árinu 2015.

Arð­semi eigin fjár af reglu­legri starf­semi nam 4,7% sam­an­borið við 8.7% á árinu 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár