Hagnaður Arion banka 21,7 milljarður króna

Hagnaður Arion banka á árinu 2016 nam 21,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 49,7 millj­arða króna árið 2015. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá bank­anum. Hösk­uldur Ólafsson, banka­stjóri, segir upp­gjörið við­un­andi. 

Hann gagn­rýnir stjórn­völd í land­inu fyrir að fram­lengja banka­skatt­inn svo­nefnda og segir hann fyrst og fremst stuðla að hærra vaxta­stigi í land­inu. Sér­stak­lega víkur hann að íbúða­lána­mark­aði þar sem hann segir sam­keppn­is­stöðu ekki vera jafna. „Bankar keppa á inn­lendum mark­aði við líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að veit­ingu íbúða­lána en líf­eyr­is­sjóðir greiða hvorki tekju­skatt né fjár­sýslu- eða banka­skatt. Ljóst er að sam­keppn­is­staðan á þessum mark­aði er ekki jöfn og aðgerðir stjórn­valda fela í sér ein­kenni­lega íhlutun á sam­keppn­is­mark­aði. Alls greiðir Arion banki um fimm millj­arða í skatta á árinu sem fyr­ir­tæki í öðrum atvinnu­greinum greiða ekki. Banka­skatt­ur­inn hefur haft tak­mörkuð áhrif á verð­lagn­ingu bank­anna hingað til enda átti hann að vera tíma­bund­inn. Þar sem skatt­ur­inn leggst á fjár­mögnun banka þá leiðir hann til kostn­að­ar­auka hjá við­skipta­vinum bank­anna og stuðlar þegar allt kemur til alls að hærra vaxta­stigi í land­inu. Mik­il­vægt er að þessi skatt­lagn­ing verði end­ur­skoðuð,“ segir Hösk­uldur.

Arðsemi eigin fjár bank­ans var 10,5 pró­sent á árinu sam­an­borið við 28,1 pró­sent árið 2015. Reikn­aður hagn­aður af reglu­legri starf­semi nam 9,7 millj­örðum króna sam­an­borið við 14,1 millj­arð á árinu 2015. Arðsemi eigin fjár af reglu­legri starf­semi nam 4,7% sam­an­borið við 8.7% á árinu 2015.

Heild­ar­eignir námu 1.036,0 millj­örðum króna sam­an­borið við 1.011,0 millj­arða króna í árs­lok 2015 og eigið fé hlut­hafa bank­ans nam 211,2 millj­örðum króna, sam­an­borið við 192,8 millj­arða króna í árs­lok 2015. Efna­hagur bank­ans er sterkur og á árinu 2016 var mikil áhersla lögð á trygga lausa­fjár­stöðu í aðdrag­anda afnáms fjár­magns­hafta, segir í til­kynn­ingu. 

Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans var í árs­lok 27,1% en var 24,2% í árs­lok 2015. Hlutfall eig­in­fjár­þáttar A hækk­aði og nam 26,5% sam­an­borið við 23,4% í árs­lok 2015.



Kaupþing á 87 pró­sent í bank­anum en ríkið 13 pró­sent. 

Til­kynn­ing Hösk­uldar Ólafs­sonar for­stjóra, vegna upp­gjörs­ins, fer hér á eftir:

„Afkoma Arion banka á árinu 2016 var við­un­andi og í takt við vænt­ingar. Grunn­starf­semi bank­ans stendur vel og fjár­hags­staða bank­ans heldur áfram að styrkj­ast. Eig­in­fjár­hlut­fall bank­ans er 27,1% og lausa­fjár­hlut­fall 171,3%, sem er vel yfir þeim kröfum sem gerðar eru til bank­ans og afar sterkt í alþjóð­legum sam­an­burði. Arion banki er í dag alhliða fjár­mála­fyr­ir­tæki með sterka stöðu bæði á ein­stak­lings- og fyr­ir­tækja­mark­aði og lána­safn bank­ans end­ur­speglar það vel. Sú trausta staða sem bank­inn nýtur á þeim mörk­uðum sem hann starfar á og það fjöl­breytta þjón­ustu­fram­boð sem bank­inn býður sínum við­skipta­vinum felur í sér jákvæða áhættu­dreif­ingu. Sterk eig­in­fjár­staða leiðir til þess að umtals­verðir mögu­leikar eru fyrir bank­ann til arð­greiðslu eða ann­arrar ráð­stöf­unar eigin fjár. Árið 2016 ein­kennd­ist af fjár­fest­ingum til fram­tíðar í þjón­ustu sem við­skipta­vinir bank­ans óska eftir. Kaup bank­ans á trygg­inga­fé­lag­inu Verði eru gott dæmi um það en þau gengu í gegn á árinu. Þar með bæt­ast skaða­trygg­ingar við þjón­ustu­fram­boð bank­ans. Staða Varðar á trygg­inga­mark­aði er góð, félagið er með um 10% mark­aðs­hlut­deild og nýtur vin­sælda meðal sinna við­skipta­vina. Þjónusta Varðar er því mik­il­vægur liður í því að veita við­skipta­vinum Arion banka alhliða fjár­mála­þjón­ustu.

Upp­lýs­inga­tækni skip­aði stóran sess í starf­semi bank­ans á árinu. Hugað var að skipan upp­lýs­inga­tækni­mála innan bank­ans og unnið að útvist­un­ar­samn­ingum við Nýherja sem lokið var í jan­úar 2017. Nýherji sem er eitt fremsta upp­lýs­inga­tækni­fyr­ir­tæki lands­ins sér nú um rekstr­ar­þátt upp­lýs­inga­kerfa bank­ans. Áfram starfar öfl­ugur hópur starfs­fólks á sviði upp­lýs­inga­tækni innan bank­ans en stærstur hluti þeirra sinnir hug­bún­að­ar­þróun, m.a. þróun nýrra staf­rænna lausna en á árinu kynnti Arion banki nokkurn fjölda nýrra staf­rænna lausna. Við­skipta­vinir bank­ans geta nú til dæmis fengið stað­fest greiðslu­mat á aðeins nokkrum mín­útum á vef Arion banka. Við munum halda ótrauð áfram á þess­ari braut enda óska við­skipta­vinir okkar eftir því að geta sinnt sínum fjár­málum þegar og þar sem þeim hentar og við munum leggja okkur fram um að koma til móts við þeirra óskir. Þannig er eft­ir­spurn eftir fjár­mála­þjón­ustu að þró­ast og breyt­ast og við leggjum áherslu á að breyt­ast með þeirri þróun.

Á vor­mán­uðum opn­aði Arion banki útibú í Flugstöð Leifs Eiríks­sonar á Kefla­vík­ur­flug­velli og tók þar með yfir alla fjár­mála­þjón­ustu á flug­vell­inum, einu stærsta mark­aðs­torgi lands­ins. Mikill vöxtur hefur verið í ferða­þjón­ustu hér á landi og er því um spenn­andi tæki­færi að ræða fyrir bank­ann.

Dótt­ur­fé­lög Arion banka eru mik­il­vægur þáttur í stefnu og þjón­ustu­fram­boði bank­ans. Auk Varðar þá eru sjóða­stýr­ing­ar­fyr­ir­tækið Stefnir og greiðslu­þjón­ustu fyr­ir­tækið Valitor mik­il­væg dótt­ur­fé­lög. Stefnir er stærsta sjóða­stýr­inga­fyr­ir­tæki lands­ins og greiðslu­þjón­ustu­fyr­ir­tækið Valitor er í mik­illi sókn í Danmörku og Bret­landi. Tekjur af alþjóð­legri starf­semi Valitor juk­ust um 50% á árinu 2016 og nema nú rúm­lega 60% af heild­ar­tekjum fyr­ir­tæk­is­ins. Félagið hefur um langt ára­bil haft umsvif á þessum mörk­uðum og er að skapa sér áhuga­verða stöðu. Með kaupum á Verði og fjár­fest­ingu í erlendri starf­semi Valitor er Arion banki að styrkja enn frekar fyr­ir­tækja­sam­stæðu bank­ans og búa undir fram­tíð­ina.

Arion banki gaf í tvígang út skulda­bréf í evrum til breiðs hóps fjár­festa á árinu. Í upp­hafi árs 2017 gaf bank­inn svo út við­bót­ar­út­gáfu við síð­ari útgáf­una, sem nú nemur 500 millj­ónum evra. Hafa kjör bank­ans á erlendum lána­mörk­uðum batnað mikið á und­an­förnum miss­erum sem er til marks um aukið traust skulda­bréfa­fjár­festa til bank­ans og íslensks hag­kerfis. Jafn­framt hækk­aði Standard & Poor´s á árinu láns­hæf­is­mat bank­ans úr BBB-/A-3 í BBB/A-2.

Það eru mikil von­brigði að stjórn­völd hafi ákveðið að fram­lengja banka­skatt­inn svo­kall­aða, sem átti að vera tíma­bund­inn en er nú hluti af lang­tíma rík­is­fjár­mála­á­ætlun. Banka­skattur er skattur á fjár­mögnun bank­anna. Sam­bæri­legur skattur leggst ekki á aðrar inn­lendar atvinnu­greinar né á erlenda banka sem eru með umsvif hér á landi og lána til íslenskra fyr­ir­tækja. Hér er á ferð­inni sér­tæk skatt­lagn­ing sem gerir bönkum erfitt um vik í sam­keppni, bæði á inn­lendum mark­aði en einnig í sam­keppni við erlend fjár­mála­fyr­ir­tæki á íslenskum mark­aði. Bankar keppa á inn­lendum mark­aði við líf­eyr­is­sjóði þegar kemur að veit­ingu íbúða­lána en líf­eyr­is­sjóðir greiða hvorki tekju­skatt né fjár­sýslu- eða banka­skatt. Ljóst er að sam­keppn­is­staðan á þessum mark­aði er ekki jöfn og aðgerðir stjórn­valda fela í sér ein­kenni­lega íhlutun á sam­keppn­is­mark­aði. Alls greiðir Arion banki um fimm millj­arða í skatta á árinu sem fyr­ir­tæki í öðrum atvinnu­greinum greiða ekki. Banka­skatt­ur­inn hefur haft tak­mörkuð áhrif á verð­lagn­ingu bank­anna hingað til enda átti hann að vera tíma­bund­inn. Þar sem skatt­ur­inn leggst á fjár­mögnun banka þá leiðir hann til kostn­að­ar­auka hjá við­skipta­vinum bank­anna og stuðlar þegar allt kemur til alls að hærra vaxta­stigi í land­inu. Mik­il­vægt er að þessi skatt­lagn­ing verði end­ur­skoðuð.

Síð­ast­liðið sumar sendu Kaupþing ehf., sem á 87% hluta­fjár Arion banka, og Arion banki frá sér til­kynn­ingu þar sem gerð var grein fyrir því að Arion banki og Kaupþing væru að meta þá mögu­leika sem fyrir hendi væru varð­andi eign­ar­hlut Kaup­þings í bank­anum. Jafn­framt var tekið fram að almennt hluta­fjár­út­boð væri meðal þeirra kosta sem verið væri að skoða. Þessi vinna varð­andi eign­ar­hlut Kaup­þings stendur enn yfir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár