Úr klósettinu í kranann

Okkur Íslend­ingum þykir sjálf­sagt að vatn, bæði heitt og kalt, streymi úr kran­anum þegar skrúfað er frá. Þótt hrepp­a­r­ígur geti komið við sögu þegar rætt er um vatnið er neyslu­vatn á Íslandi und­an­tekn­ing­ar­laust gott. Sú er ekki raunin alls staðar.

Skrifari þess­arar greinar bjó í London á átt­unda ára­tug síð­ustu aldar. Ein­hverju sinni var í breska sjón­varp­inu, BBC, þáttur um nýja skólp­hreins­un­ar­stöð í nágrenni borg­ar­innar. Hreins­un­ar­stöð þessi var sögð afar full­komin og „not­aða“ vatnið svo hreint eftir að hafa farið í gegnum stöð­ina að það var not­hæft til margra hluta, ekki þó til drykkjar, mat­reiðslu og steypi­baða. Gas sem mynd­að­ist við hreins­un­ina var nýtt til orku­fram­leiðslu í stöð­inni.

Sjón­varps­þátt­ur­inn vakti tals­verða athygli og nokkrir sér­fræð­ingar sem rætt var við í þætt­inum sögðu eitt­hvað á þá leið að vatnið væri gull fram­tíð­ar­innar. Ekki skildu allir þau ummæli. En nú er öldin önnur.

Singapúr Singapura Singapore

Borg­ríkið Singapúr, er í hópi minnstu ríkja heims. Að flat­ar­máli aðeins um 700 fer­kíló­metrar,til sam­an­burðar er höf­uð­borg­ar­svæðið (Reykja­vík og nágranna­sveit­ar­fé­lögin) rúmir 1000 fer­kíló­metrar. Í þessu litla landi búa um það bil 5.6. millj­ónir, stærstur hluti af kín­verskum upp­runa. Nær allir lands­menn búa á stærstu eyj­unni Singapúr, en alls sam­anstendur ríkið af rúm­lega 60 eyjum. Bretinn Stamford Raffles er tal­inn stofn­andi Singapúr, en árið 1819 stofn­aði hann þar umskip­unar- og frí­höfn.

Raffles var þá land­stjóri á Súmötru en Breta vant­aði um þetta leyti höfn á sigl­ing­ar­leið­inni til Kína. Umsvifin juk­ust hratt og íbú­unum fjölg­aði sömu­leiðis. Höfnin er nú meðal hinna stærstu í heimi, um hana fara dag­lega 90 þús­und vörugámar. Singapúr var löngum undir yfir­ráðum Breta og Japana, til­heyrði svo sam­bands­rík­inu Malasíu eftir að það varð sjálf­stætt árið 1957. Árið 1965 varð Singapúr til sem sjálf­stætt ríki í kjöl­far ósættis stjórna Singapúr og Malasíu.

Ferðamenn, viðskipti og peningar

Eyjan Singapúr, þar sem nær allir lands­menn búa, er í raun ein borg. Borgin er ein mik­il­væg­asta fjár­mála­mið­stöð heims, mjög mik­il­væg við­skipta­borg og eins og áður sagði er starf­semin í kringum höfn­ina geysi­mikil, á síð­asta ári var höfnin sú fimmta mest not­aða í heimi.

Verg þjóð­ar­fram­leiðsla er ein sú mesta í heimi, en launa­ó­jöfn­uður jafn­framt mik­ill og vinnu­dag­ur­inn langur. Ferða­mennska er mjög mik­il­væg tekju­lind, á síð­asta ári komu tæpar 13 millj­ónir ferða­manna til lands­ins. Singapúr er vin­sæll við­komu­staður, flestir ferða­menn stoppa í tvo daga og halda svo annað.

Glæra gullið

Árið 1965 Þegar Singapúr varð sjálf­stætt ríki gerði stjórn lands­ins sam­komu­lag við stjórn Malasíu um lagn­ingu vatns­leiðslu. Með samn­ingnum, sem var til margra ára­tuga, var Singapúr tryggt til­tekið magn neyslu­vatns en auk þess komu Singapúrar upp bún­aði til að vinna fersk­vatn úr sjó. Með síauknum ferða­manna­straumi og þörf­inni fyrir vatn duga þessar ráð­staf­anir ekki og Singapúrar vilja gjarna verða að mestu sjálf­bjarga og ekki háðir Malasíu en milli þess­ara þjóða ríkir tak­mörkuð vin­átta. Nú hafa Singapúrar hleypt af stokk­unum risa­stóru verk­efni, verk­efni sem á sér vart hlið­stæðu.

Sewerage Superhighway holræsahraðbrautin

Nafnið á þessu risa­verk­efni er kannski ekki sér­lega aðlað­andi en hins vegar lýsandi. Singapúrar segja þetta verða eitt full­komn­asta hol­ræsa- og vatns­hreins­un­ar­kerfi sem fyr­ir­finn­ist í ver­öld­inni, en fram­kvæmd­irnar hófust í nóv­em­ber í fyrra. Hol­ræsa­hrað­brautin verður rúm­lega 30 kíló­metra löng og liggur 35 – 55 metrum undir yfir­borði jarðar. Í lögn­ina fer vatn (og annað) úr sal­ernum, vöskum nið­ur­falls­rörum, við hús og á götum og frá fyr­ir­tækjum. Hrað­braut er kannski ekki rétt­nefni en þessi langa lögn sam­anstendur af mörgum risa­stórum kerjum og hall­inn á lögn­inni sér til þess að það sem í rör­unum er fær­ist á milli kerj­anna, svipað og ger­ist í rot­þróm.

Margs konar hreinsi­bún­aður á hrað­braut­inni sér til þess að þegar komið er á leið­ar­enda rennur tand­ur­hreint vatn úr lögn­inni. Þetta end­ur­nýtta vatn fær heitið „NEWater“. Þess konar vatn fyr­ir­finnst nú þegar en til­raunir með „mini“ útgáfur af nýju lögn­inni hafa staðið yfir um nokk­urra ára skeið. Með þessu nýja hreins­unar- og end­ur­nýt­ing­ar­kerfi telja stjórn­völd í Singapúr að vatns­þörf lands­ins verði að mestu leyti full­nægt næstu ára­tug­ina. Hol­ræsa­hrað­brautin á að vera komin í gagnið árið 2025, kostn­að­ur­inn er áætl­aður jafn­gildi 900 millj­arða íslenskra króna.

NEWater í kranana og búðirnar?

Þegar umhverf­is­ráð­herra Singapúr kynnti Hol­ræsa­hrað­braut­ina drakk hann sjálfur „NEWater“ úr flösku og útdeildi flöskum með sams­konar vatni til við­staddra. Sumir dreyptu á vatn­inu og stað­festu full­yrð­ingar ráð­herr­ans um bragð­gæði vatns­ins. Þegar ráð­herr­ann var spurður hvort þetta end­ur­nýtta vatn myndi í fram­tíð­inni buna úr krön­unum á singapúrskum heim­ilum svar­aði hann ját­andi. „Flestir Singapúrar kaupa flösku­vatn til drykkjar“ sagði ráð­herr­ann „ég býst ekki við að það breyt­ist, að minnsta kosti ekki fyrst um sinn“. Ráð­herr­ann sagð­ist heldur ekki búast við að „NEWater“ á flöskum yrði til sölu í búðum „það er of stór biti í hugum flestra að drekka flösku­vatn, sem áður hefur verið sturtað niður úr kló­sett­inu heima.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár