Vill að þingið taki fram fyrir hendur ráðherra

Páll Magn­ús­son, for­maður atvinnu­vega­nefndar, segir að ef Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, grípi ekki til aðgerða í sjó­manna­deil­unni verði þingið að gera það.

Ef fram­kvæmda­valdið grípur ekki inn í sjó­manna­deil­una verður lög­gjaf­ar­valdið að gera það. Þetta sagði Páll Magn­ús­son, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og for­maður atvinnu­vega­nefndar Alþingis, í Kast­ljósi í kvöld.

Krafa hefur komið fram um að fæðis- og dag­pen­ingar sjó­manna verði skatt­frjálsir. Þessu hefur Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, hafnað en lagt til að farið verið heild­stætt yfir það hvernig farið er með fæð­is­kostnað og greiðslur vegna fæðis almennt, í skatta­legu til­liti.

Haldinn verður sam­eig­in­legur fundur atvinnu­vega­nefndar og efna­hags- og við­skipta­nefndar Alþingis í fyrra­málið. Þor­gerður Katrín mun mæta á þann fund. Páll sagði að ef Þor­gerður Katrín myndi ekki koma með neina lausn á þeim fundi yrði lög­gjaf­ar­valdið, þingið, að grípa inn í.

„Þetta er auð­vitað mjög alvar­legt mál, að það skuli standa á stjórn­völdum eða þessum tveimur ráð­herraum sem með þetta höndla, sjáv­ar­út­vegs­ráð­herra og fjár­mála­ráð­herra. Stjórn­völd eru ábyrg fyrir því gagn­vart þjóð­inni að þessi auð­lind sé nýtt. Það má ekki standa upp á þessi sömu stjórn­völd að það séu þau sem komi í veg fyrir að flot­inn sigli úr höfn og til veiða.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár