Brim kaupir tvö sjávarútvegsfyrirtæki

Brim hf. hefur gert samn­ing um kaup á tveimur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum en sam­an­lagt kaup­verð er 3,1 millj­arður króna.

Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims.
Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims. Mynd: Brim Seafood

Brim hf. hefur gert samn­ing um kaup á tveimur sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum, Fisk­vinnsl­unni Kambur hf. sem rekur útgerð og fisk­vinnslu í Hafn­ar­firði og útgerð­ar­fé­lag­inu Grábrók ehf. sem einnig gerir út frá Hafn­ar­firði. Sam­an­lagt kaup­verð er 3,1 millj­arður króna.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá fyr­ir­tæk­inu til Kaup­hall­ar­innar.

Þá segir jafn­framt að fisk­vinnslan Kambur geri út króka­bát­inn Kristján HF 100 sem hafi verið smíð­aður í Trefjum hf. í Hafn­ar­firði á síð­asta ári og sé búinn öllum nýjasta tækja­bún­aði til veiða og afla­með­ferðar. Honum fylgi um 2.000 tonna króka­afla­mark að mestu í þorski.

Þá reki fyr­ir­tækið tækni­vædda fisk­vinnslu í eigin hús­næði við Óseyr­ar­braut í Hafn­ar­firði sem sé búin marg­vís­legum hátækni­bún­aði meðal ann­ars nýrri vinnslu­línu og vatns­skurð­ar­vél frá Völku hf. sem hafi verið tekin í notkun á síð­asta ári. Kaup­verðið nemi 2.3 millj­örðum króna og verði greitt að hluta með hluta­bréfum í Brimi hf. sem séu í eigu félags­ins og nemi um 1 pró­sent af heild­ar­hlutafé Brims að verð­mæti um 835 millj­ónir króna.

Grábrók ehf. geri út króka­bát­inn Stein­unni HF 108 sem hafi verið smíð­aður árið 2007 en honum fylgi um 850 tonna krókafla­mark að mestu í þorski. Kaup­verðið er 772 millj­ónir króna, sam­kvæmt til­kynn­ing­unni.

„Sam­komu­lagið er háð eðli­legum fyr­ir­vörum meðal ann­ars um fjár­mögnun, sam­þykki stjórnar Brims hf. og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits og eftir atvikum ann­arra eft­ir­lits­að­ila.

Gangi kaupin eftir fer Brim yfir lög­bundið kvóta­þak í króka­afla­marki en hefur lögum sam­kvæmt 6 mán­uði til að gera ráð­staf­anir sem koma félag­inu undir það þak,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Guð­mundur Krist­jáns­son, for­stjóri Brims hf., segir að með þessum kaupum séu þau að styrkja Brim sem alhliða fyr­ir­tæki í sjáv­ar­út­vegi. „Við viljum efla starf­semi Brims sam­hliða því að við höfum styrkt stöðu okkar í mark­aðs­setn­ingu og sölu á vörum félags­ins á erlendum mörk­uðum. Við bætum núna við okkur þorsk­veiði­heim­ildum, tækni­væddum vinnslu­ein­ingum og mannauð sem gerir félagið betur í stakk búið til að takast á við erlenda sam­keppni í vinnslu íslenskra sjáv­ar­af­urða. Kambur verður rek­inn áfram í hús­næði félags­ins sem sjálf­stætt dótt­ur­fé­lag Brims en við stefnum að góðu sam­starfi með aukna sér­hæf­ingu að mark­miði þegar fram líða stundir.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár