Ýmsum athugasemdum mætt í endanlegri reglugerð um hlutdeildarlán

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra hefur birt end­an­lega reglu­gerð um útfærslu hlut­deild­ar­lán­anna. Þar er komið til móts við ýmsar þær athuga­semdir sem settar voru fram í umsögnum við drög að regl­unum og þær rýmkaðar tíma­bundið.

Ásmundur Einar Daðason er með húsnæðismálin á sinni könnu sem félagsmálaráðherra.
Ásmundur Einar Daðason er með hús­næð­is­málin á sinni könnu sem félags­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Út árið 2021 verður Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun heim­ilt að veita hlut­deild­ar­lán fyrir allt að 10 pró­sent dýr­ari íbúðum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu en kveðið er á um í reglu­gerð, en und­an­þágan er þó bundin við til­vik og svæði þar sem bygg­ing­ar­kostn­aður er hærri en almennt ger­ist vegna aðstæðna á bygg­ing­ar­stað eða skil­mála og bygg­ing­ar­reit.

Þetta kemur fram í end­an­legri reglu­gerð Ásmundar Einars Daða­sonar félags­mála­ráð­herra um útfærslu hlut­deild­ar­lán­anna, sem tók gildi í gær. Þ er einnig veitt heim­ild út árið 2021 til þess að lána fyrir íbúðum sem eru þegar komnar af stað í bygg­ing­ar­ferli núna við gild­is­töku reglu­gerð­ar­innar og eru í stærri kant­inum innan hvers stærð­ar­flokks íbúðar. Mega þær vera að hámarki 1,8 milljón dýr­ari en það hámarks­verð sem almennt er skil­greint í reglu­gerð­inni.

Íbúðir verði í takt við kröfur samtímans

Í end­an­legri reglu­gerð ráð­herra virð­ist tekið til­lit til ýmissa athuga­semda sem fram komu í umsögnum um reglu­gerð­ar­drögin, en þar er meðal ann­ars fallið frá því orða­lagi að hag­kvæmar íbúðir sem falli undir skil­yrði hlut­deild­ar­lána þyrftu að vera „ein­faldar að allri gerð“, en nú segir að þær skuli „útbúnar og inn­rétt­aðar í sam­ræmi við kröfur sam­tím­ans“ og að lóðir skuli hann­aðar með þarfir íbúa að leið­ar­ljósi. Íbúðir skulu þó sem áður vera hag­kvæmar sem frekast er kostur og rekstur þeirra á að verða hag­kvæmur, með til­liti til bæði orku- og við­hald­þarfar.

Nú segir í reglu­gerð­inni að leit­ast skuli við að hafa íbúðir „stað­settar í nálægð við góðar almenn­ings­sam­göngur, græn svæði til úti­vistar og nauð­syn­lega þjón­ustu,“ auk þess sem stuðlað verði að félags­legri blöndun, en í umsögnum Reykja­vík­ur­borgar og svæði­skipu­lags­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins og fleiri aðila voru settar fram áhyggjur af því að skil­málar hlut­deild­ar­lán­anna eins og þeir voru settir fram í drögum að reglu­gerð­inni myndu skapa hvata til þess að byggja hús­næði í útjaðri núver­andi byggðar, sem myndi hafa það í för með sér að íbúar gætu síður nýtt sér almenn­ings­sam­göngur.

Virðist reynt að koma til móts við þessar áhyggjur og fleiri með útfærslu end­an­legrar reglu­gerðar.

Ekki lengur kveðið á um hámarksstærð

Í reglu­gerð­inni, öfugt við reglu­gerð­ar­drögin, er ekki lengur kveðið á um hámarks­stærð íbúða í hverjum verð­flokki, sem ætti að auka sveigj­an­leika bygg­ing­ar­að­ila hag­kvæms hús­næðis. Sem dæmi, þá áttu þriggja svefn­her­bergja­í­búðir sam­kvæmt reglu­gerð­ar­drög­unum að vera 91-100 fer­metrar, en í end­an­legri reglu­gerð segir að slíkar íbúðir skuli vera 90 fer­metrar að lág­marki og engin efri stærð­ar­mörk eru til­greind.

Vaxtarsvæði utan höfuðborgarsvæðisins skilgreind

Samkvæmt reglu­gerð­inni eru áfram tvö mis­mun­andi verð­svæði fyrir utan höf­uð­borg­ar­svæðið, en lánað er fyrir dýr­ari íbúðum á svoköll­uðum „vaxt­ar­svæðum“ utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en alla jafna utan höf­uð­borg­ar­innar. Þessi vaxt­ar­svæði voru ekki skil­greind sér­stak­lega í reglu­gerð­ar­drög­unum, en eru það í end­an­legri reglu­gerð.

Samkvæmt reglu­gerð­inni telj­ast Akra­nes­kaup­staður, Akur­eyr­ar­bær, Grinda­vík­ur­bær, Hvera­gerð­is­bær, Reykja­nes­bær, Suð­ur­nesja­bær, Árborg, Vogar og Ölfus til vaxt­ar­svæða utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins.

Hægt að sækja um lánin nú þegar

Opnað var fyrir umsóknir um hlut­deild­ar­lán á sér­stöku vef­svæði í upp­hafi mán­að­ar­ins, en hlut­deild­ar­lánin eru nýlunda á íslenskum hús­næð­is­mark­aði og ætluð tekju­lágu fólki sem hefur ekki átt fast­eign und­an­farin fimm ár. Kaup­endur þurfa sjálfir ein­ungis að leggja fram 5 pró­sent af kaup­verði fast­eignar og fá 75 pró­sent íbúða­lán hjá fjár­mála­stofnun.

Ríkið stígur þannig í raun inn sem þög­ull með­fjár­festir í íbúðum með það eigið fé sem vantar upp á, en hlut­deild­ar­lánin bera hvorki vexti né afborg­anir. Láns­tím­inn er að jafn­aði 10 ár, en þó er hægt að fram­lengja lánin um fimm ár í senn þannig að lánin verði að hámarki 25 ár sam­tals.

Greiða þarf lánin til baka þegar íbúðin er seld og nemur end­ur­greiðslu­fjár­hæðin þá sama hlut­falli af sölu­verði hús­næð­is­ins og upp­haf­leg lán­veit­ing nam af kaup­verði.

Samkvæmt bráða­birgða­á­kvæði í reglu­gerð­inni verður heim­ilt að úthluta hlut­deild­ar­lánum tvisvar sinnum á þessu ári, en ann­ars á að úthluta þeim fjórum sinnum á ári. Í gær sagði Vísir frá því að hátt í eitt hund­rað umsóknir um lánin hefðu þegar borist.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár