Misjafnt hvort lífeyrissjóðir byrja strax að horfa til nýs fasteignamats við lánavinnslu

Af sjö líf­eyr­is­sjóðum sem svör­uðu fyr­ir­spurn Kjarnans um hvort þeir tækju nýtt fast­eigna­mat strax inn í lána­vinnslu sína segj­ast þrír þeirra ætla að gera það nú þegar en fjórir ætla að bíða fram í des­em­ber eða jan­úar.

Misjafnt er hvort lífeyrissjóðir séu byrjaðir að taka mið af fasteignamati 2023 við vinnslu húsnæðislána.
Misjafnt er hvort líf­eyr­is­sjóðir séu byrj­aðir að taka mið af fast­eigna­mati 2023 við vinnslu hús­næð­is­lána. Mynd: 123rf.com

Allur gangur er á því er hvort líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, sem lána ein­stak­lingum fyrir hús­næð­is­kaupum, séu byrj­aðir að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við vinnslu fast­eigna­lána. Kjarninn sendi út fyr­ir­spurnir á flesta líf­eyr­is­sjóði sem lána fyrir hús­næð­is­kaupum og spurði hvort sjóð­ur­inn væri byrj­aður að horfa til nýja fast­eigna­mats­ins við vinnslu fast­eigna­lána og end­ur­fjár­magn­anir. Svör bár­ust frá sjö sjóðum.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna (LV), Brú og Lífsverk eru allir nú þegar byrj­aðir til að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við lána­vinnslu sína. Í svari frá LV segir að þetta hafi verið gert síð­ustu ár.

„Þetta hefur stundum verið rætt og nið­ur­staðan ávallt verið sú að gera það frá því að það er birt þar sem fast­eigna­mat næsta árs end­ur­speglar alltaf raun­virði fast­eigna,“ segir í svari sjóðs­ins til Kjarnans.

Í svörum frá Brú og Lífs­verki var vísað til til­kynn­inga á vefjum sjóð­anna um að sjóð­irnir horfi til nýja fast­eigna­mats­ins við lán­veit­ingar.

En ekki allir sjóð­irnir fara eins að. Í svari frá Birtu líf­eyr­is­sjóði segir að horft sé til þess að byrja að horfa til nýs fast­eigna­mats 1. des­em­ber næst­kom­andi.

„Birta hefur und­an­farin ár byrjað að styðj­ast við fast­eigna­mat næsta árs 1. des­em­ber ár hvert. Sjóð­ur­inn styðst við fast­eigna­mat í end­ur­fjár­mögn­un­ar­málum og við kaup­verð í fast­eigna­við­skiptum, með ákveðnum hlið­ar­skil­yrðum varð­andi lóða- og bruna­bóta­mat. Ég geri ráð að við­mið­un­ar­dag­setn­ingin í ár verði líka 1. des­em­ber, en þá hefur kæru­frestur vegna nýs fast­eigna­mats runnið út,“ segir Sig­ur­björn Ein­ars­son lána­stjóri sjóðs­ins í skrif­legu svari til Kjarnans.

Bæði LSR og Festa líf­eyr­is­sjóður segj­ast svo lána sam­kvæmt gild­andi fast­eigna­mati hverju sinni og að þeir byrji þess vegna ekki að miða við fast­eigna­mat 2023 fyrr en þann 1. jan­úar 2023. Gildi-líf­eyr­is­sjóður segir að eins og staðan sé í dag muni sjóð­ur­inn „ekki miða við fast­eigna­mat 2023 fyrr en í byrjun árs 2023.“

Bankarnir þrír ekki allir á sömu línu

Eins og Kjarninn sagði frá á fimmtu­dag­inn eru það ekki bara líf­eyr­is­sjóð­irnir sem mæta breyttu fast­eigna­mati með mis­mun­andi hætti, heldur líka stóru við­skipta­bank­arnir þrír.

Þar sker Íslands­banki sig frá hinum tveimur, Lands­bank­ans og Arion banka, með því að vera eini bank­inn sem ætlar ekki nú þegar að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023 við lána­vinnslu sína, heldur bíða til gild­is­töku nýja fast­eigna­mats­ins.

Nýja fast­eigna­matið er hart­nær 20 pró­sentum hærra en núgild­andi fast­eigna­mat að með­al­tali, eftir miklar hækk­unar hús­næð­is­verðs um land allt und­an­farin miss­eri.

Ein­hverjir lán­takar gætu nú horft til þess að nýta hið aukna veð­rými sem mynd­ast við hækkun fast­eigna­mats til þess að end­ur­fjár­magna lán sín, en við­skipta­vinir Íslands­banka þurfa öfugt við við­skipta­vini Arion banka og Lands­bank­ans að bíða með það fram yfir næstu ára­mót.

Fréttin var upp­færð með svari frá Gildi-líf­eyr­is­sjóði, sem barst eftir að fréttin fór fyrst í loftið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár