Íslandsbanki byrjar ekki að horfa til fasteignamats 2023 fyrr en á nýju ári

Bæði Lands­bank­inn og Arion banki byrja strax að horfa til fast­eigna­mats næsta árs við end­ur­fjár­mögnun hús­næð­is­lána. Íslands­banki hins vegar horfir ekki til nýja fast­eigna­mats­ins fyrr en það tekur gildi og segir það gert í ljósi aðstæðna í efna­hags­líf­inu.

Íslandsbanki ætlar ekki að byrja að taka tillit til nýs fasteignamats við endurfjármögnun húsnæðislána fyrr en nýja fasteignamatið hefur tekið gildi.
Íslands­banki ætlar ekki að byrja að taka til­lit til nýs fast­eigna­mats við end­ur­fjár­mögnun hús­næð­is­lána fyrr en nýja fast­eigna­matið hefur tekið gildi. Mynd: Íslandsbanki

Íslands­banki, einn stóru við­skipta­bank­anna þriggja, mun ekki byrja að taka mið af nýju og hærra fast­eigna­mati fyrir árið 2023 í lána­vinnslu sinni fyrr en í upp­hafi næsta árs. Sú ákvörðun var tekin, sam­kvæmt svari bank­ans til Kjarnans, í „ljósi aðstæðna í efna­hags­lífi og þrýst­ings á fast­eigna­mark­aði“.

Bæði Arion banki og Lands­bank­inn hafa hins vegar ákveðið að byrja strax að horfa til nýja fast­eigna­mats­ins, sem er að með­al­tali hátt í 20 pró­sentum hærra á lands­vísu. Munu við­skipta­vinir þeirra banka sem eru með fast­eigna­lán því geta end­ur­fjár­magnað lán sín með til­liti til þess aukna veð­rýmis sem mynd­ast.

End­ur­fjár­mögnun í ljósi auk­ins veð­rýmis gæti til dæmis verið mögu­leg hjá þeim lán­tak­endum sem eru með fleiri en eitt hús­næð­is­lán og vilja sam­eina lán til þess að minnka mán­að­ar­lega greiðslu­byrði sína.

Kjarninn veit um dæmi þess að við­skipta­vinur Íslands­banka hafi ætlað sér að ráð­ast í slíka aðgerð í dag, en orðið frá að hverfa vegna þeirrar ákvörð­unar bank­ans að byrja ekki strax að horfa til fast­eigna­mats árs­ins 2023.

Íslandsbanki horfir til verðmats við kaup á nýjum eignum

Í svari Íslands­banka til Kjarnans vegna fyr­ir­spurnar um þessi mál segir að fast­eigna­matið taki ekki gildi fyrr en á nýju ári og verði þá tekið inn í lána­vinnslu bank­ans.

Bankinn segir rétt að taka fram að við kaup á nýjum eignum sé nú horft til verð­mats eign­ar­innar og vísar svo til þess að eins og fram hafi komið hafi „Seðla­bank­inn ítrekað mik­il­vægi þess að sam­spil vaxta­hækk­ana og hertra lán­þega­skil­yrða þurfi til þess að hægja á verð­hækkun hús­næðis og inn­lendri eft­ir­spurn“.

Má skilja svör bank­ans til Kjarnans á þann hátt að hann sé að leggj­ast á árarnar með Seðla­bank­anum með þess­ari ákvörðun sinni, sem er, eins og áður segir, á skjön við það sem hinir tveir stóru bank­arnir á mark­aðnum ætla sér og einnig frá­vik frá því sem Íslands­banki sjálfur hefur gert á síð­ustu árum.

Landsbankinn byrjaður, Arion banki á morgun

Frá Arion banka feng­ust þær upp­lýs­ingar að fast­eigna­mat 2023 yrði komið inn í raf­rænt íbúða­lána­ferli bank­ans strax á morgun, 3. júní og Lands­bank­inn er þegar byrj­aður að horfa til fast­eigna­mats næsta árs við end­ur­fjár­mögnun lána.

„Já, þrátt fyrir að fast­eigna­mat 2023 taki ekki form­lega gildi fyrr en 31. des­em­ber 2022 og gildir fyrir árið 2023 þá heim­ilar Lands­bank­inn að tekið sé mið af því við beiðnum um end­ur­fjár­mögnun íbúða­lána strax og við birt­ingu þess eða frá og með 1. júní,“ segir í svari frá Lands­bank­anum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár