Fyrstu kaupendur hafa aldrei verið hlutfallslega fleiri

Miklar verð­hækk­anir á íbúð­ar­hús­næði síð­ustu ár hefur ekki lækkað hlut­fall nýrra kaup­enda, heldur hefur það þvert á móti auk­ist umtals­vert. Íbúða­lána­sjóður segir þetta benda til þess að auð­veld­ara sé að safna fyrir íbúð.

Hlutfall fyrstu kaup­enda af heild­ar­fjölda íbúða­kaup­enda var 27,7 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi árs­ins. Það hefur aldrei verið hærra frá því að byrjað var að mæla hlut­fall þeirra. Til sam­an­burðar var hlut­fall fyrstu íbúð­ar­kaup­enda á sama árs­fjórð­ungi árið 2009 alls 7,9 pró­sent af öllum kaupum. Þetta kemur fram í nýrri mán­að­ar­skýrslu Íbúða­lána­sjóðs sem birt var í morgun.

Þar segir að þetta bendi til þess að nú sé auð­veld­ara en áður að safna fyrir íbúð og að athygli veki að mikil hækkun á fast­eigna­verði síð­ast­lið­inn ára­tug, þar sem það hefur rúm­lega tvö­fald­ast í krónum talið, hafi ekki haft áhrif á hlut­fall fyrstu kaup­enda á mark­að­inum.

Kaup­samn­ingum fækk­aði hins vegar í heild á fyrri helm­ingi árs­ins miðað við sama tíma­bil í fyrra, alls um fjögur pró­sent. Þeim fjölg­aði um sama hlut­fall á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, mest í Kópavogi (20 pró­sent) og í Reykja­vík (1,4 pró­sent). Í öðrum sveit­ar­fé­lögum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hefur hins vegar orðið sam­dráttur. Kaup­samn­ingum fækk­aði milli ára í Garðabæ um 37 pró­sent og um 31 pró­sent í Hafn­ar­firði og Mos­fellsbæ.

Á Vest­fjörðum fjölg­aði kaup­samn­ingum um 30 pró­sent og um átta pró­sent í Reykja­nesbæ. Í öðrum lands­hlutum mæld­ist fækkun.

Með­al­sölu­tími íbúða á höf­uð­borg­ar­svæð­inu var 160 dagar á fyrri hluta árs­ins 2019, sem er jafn langur tími og á sama tíma­bili í fyrra.

Dregið hefur úr 12 mán­aða hækk­unum ásetts verðs íbúð­ar­hús­næðis á land­inu öllu, en það hefur hækkað meira utan höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins en innan þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár