Ásmundur Einar vill verða þingmaður Reykjavíkur

Félags- og barna­mála­ráð­herra ætlar að söðla um og gefa kost á sér til þess að leiða Fram­sókn­ar­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í kom­andi kosn­ingum. Hann telur að Framsókn geti ekki orðið leið­andi afl kerf­is­breyt­inga án fót­festu í þétt­býli.

Ásmundur EInar Daðason félags- og barnamálaráðherra vill verða þingmaður Reykvíkinga.
Ásmundur EInar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra vill verða þing­maður Reyk­vík­inga. Mynd: Bára Huld Beck

Ásmundur Einar Daðason félags- og barna­mála­ráð­herra hefur ákveðið að gefa kost á sér til þess að leiða Framsók nar­flokk­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður í næstu Alþing­is­kosn­ingum. Frá þessu greinir hann á Facebookí dag, en Ásmundur Einar situr nú sem þing­maður Norð­vest­ur­kjör­dæmis og er búsettur í Borg­ar­nesi.

„Það kann að virð­ast sérstök ákvörðun að fara úr því sem næst öruggu þing­sæti í Norð­vest­ur­kjördæmi, þar sem Framsókn á sér langa og far­sæla sögu, í fram­boð þar sem flokk­ur­inn hefur glímt við ýmsar áskor­anir í und­anförnum kosn­ingum. Að baki þess­ari ákvörðun liggur metn­aður til að ná fram stórum pólitískum breyt­ingum í íslensku samfélagi,“ segir Ásmundur Einar í færslu sinni.

Ásmundur Einar segir í færslu sinni að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn muni ekki ná að verða leið­andi afl í stórum kerf­is­breyt­ingum sem hann telur að þurfi að eiga sér stað í íslensku sam­fé­lagi án þess að flokk­ur­inn nái að styrkja sig í þétt­býli og þá sér­stak­lega í Reykja­vík.

„Þetta verður áskorun en ég trúi á breyt­ingar og það er ástæða þess að ég er tilbúinn að leggja allt undir. Í baráttunni fram undan hlakka ég til að vinna með góðu fólki í Reykjavík og þá sérstak­lega með Lilju Alfreðsdóttur, okkar öfluga mennta- og menn­ing­armálaráðherra,“ skrifar Ásmundur Einar, en Lilja gaf það út nýlega að hún myndi áfram sækj­ast eftir því að leiða lista Fram­sóknar í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi suður.

Ásmundur beinir því til vina sinna, stuðn­ings­manna og kjós­enda Fram­sóknar í Norð­vest­ur­kjör­dæmi að þessi ákvörðun hafi verið mjög erfið. „Það auð­veldar hana hins vegar að hafa fengið að sjá og heyra af öllu því öfluga fólki sem er tilbúið til að starfa með Framsókn um allt Norð­vest­ur­kjördæmi. Nú hvet ég ykkur öll til að nýta tæki­færið, stíga skrefið og gefa kost á ykkur til for­ystu í kjördæm­inu. Ykkar og okkar er framtíðin,“ skrifar Ásmundur Einar.[links]

Framsókn á engan borgarfulltrúa í Reykjavík og bara einn þingmann

Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn hefur átt erfitt upp­dráttar í Reykja­vík und­an­farin ár. Í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður fékk flokk­ur­inn ein­ungis 5,3 pró­sent atkvæða og engan mann kjör­inn til Alþingis í kosn­ing­unum árið 2017. Flokk­ur­inn fékk síðan ein­ungis 3,2 pró­sent og engan borg­ar­full­trúa kjör­inn í sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ing­unum árið 2018.[links]

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um fylg­is­þróun flokks­ins á kjör­tíma­bil­inu í nóv­em­ber­mán­uði, en í könnun MMR sem umfjöll­unin byggði á sást að fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins hafði enn dalað á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þrátt fyrir að þar hafi Lilja Alfreðs­dóttir, sem er einn vin­sæl­asti stjórn­mála­maður lands­ins, staðið í stafni.

Hún er eini þing­maður flokks­ins í Reykja­vík og Willum Þór Þórsson sem leiddi flokk­inn í Suð­vest­ur­kjör­dæmi er hinn þing­maður flokks­ins á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, þar sem tveir af þremur íbúum Íslands búa.

Miðað við fylgiskönnun MMR frá því í haust er raun­hæfur mögu­leiki á að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn nái ekki inn manni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í næstu kosn­ing­um. Í því ljósi er óhætt að segja að ákvörðun Ásmundar Einars um að taka slag­inn í Reykja­vík­ur­kjör­dæmi norður sé póli­tískt djörf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár