Telja áhrif þess að afnema stimpilgjald af íbúðarhúsnæði óveruleg

Átta þing­menn Sjálf­stæð­is­flokks lögðu í síð­asta mán­uði fram frum­varp um afnám stimp­il­gjalda. Það er í sjötta sinn sem frum­varpið er lagt fram. Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun telur afnámið lík­legt til að hækka íbúð­ar­verð.

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun telur stimp­il­gjald vegna kaupa ein­stak­linga á íbúð­ar­hús­næði vera til­tölu­lega hóf­legt hér­lendis í sam­an­burði við önnur lönd og að áhrifin af afnámi gjalds­ins yrðu því „lík­ast til óveru­leg“.

Þetta kemur fram í umsögn stofn­un­ar­innar um end­ur­flutt frum­varp átta þing­manna Sjálf­stæð­is­flokks­ins um afnám gjalds­ins. Þetta er í sjötta sinn sem frum­varpið er lagt fram.

Ein­stak­lingum ber nú almennt að greiða 0,8 pró­sent stimp­il­gjald vegna kaupa á íbúð­ar­hús­næði en þó er veittur helm­ings­af­sláttur þegar um fyrstu kaup er að ræða. Í stuttri grein­ar­gerð sem fylgir frum­varpi þing­mann­anna segir að mark­mið þess sé að auð­velda fólki að afla sér íbúð­ar­hús­næðis og auka skil­virkni og flæði á mark­aði með íbúð­ar­hús­næði. „Sýnt þykir að stimp­il­gjald hafi áhrif til hækk­unar fast­eigna­verðs, dragi úr fram­boði og rýri hlut kaup­enda og selj­enda. Af fram­an­greindu má ætla að afnám stimp­il­gjalds af fast­eigna­við­skiptum muni auð­velda verð­myndun á hús­næð­is­mark­aði með til­heyr­andi aukn­ingu á fram­boði sem hefur verið með minnsta móti und­an­farin ár.“

Húsnæðis- og mann­virkja­stofnun er ekki sam­mála þess­ari fram­setn­ingu að öllu leyti og vísar í umsögn Íbúða­lána­sjóðs, sem síðar rann inn í stofn­un­ina, frá árinu 2018 því til stuðn­ings. Í umsögn Íbúða­lána­sjóðs var farið yfir mögu­leg áhrif af afnámi stimp­il­gjalds­ins og vísað í rann­sóknir þess efnis. Þar sagði að ekki væri víst að mark­mið frum­varps­ins, að auð­velda fólki að eins og frekast er unnt að eign­ast íbúð­ar­hús­næði, muni nást með aðgerð­inni þar sem að íbúð­ar­verð gæti þvert á móti hækkað vegna afnáms gjalds­ins.

Til þess að ná því mark­miði væri mark­viss­ara að útvíkka þann afslátt sem nú gildir um stimp­il­gjald vegna fyrstu kaupa, ýmist með því að auka hann enn frekar eða með því að veita vissum félags­hóp­um, sem nú eiga sér­stak­lega erfitt með að kom­ast inn á fast­eigna­mark­að, sér­stakan afslátt. Í umsögn Húsnæðis- og mann­virkja­stofn­unar ný segir að hún ítreki fyrri umsögn.

Þar segir þó einnig að einn helsti ábati afnáms stimp­il­gjalds sé að minnka kostn­að­inn fyrir heim­ili við það að skipta um hús­næði og að það geti sér­stak­lega haft áhrif á eldri borg­ara sem vilja minnka við sig og yngri fjöl­skyldur sem vilja stækka við sig. „Því má segja að afnám gjalds­ins sé lík­legt til að hafa í för með sér sam­fé­lags­legan ábata. Hins vegar verður stimp­il­gjald ein­stak­linga hér á landi, í sam­an­burði við önnur lönd, að telj­ast til­tölu­lega hóf­legt og áhrifin af afnámi gjalds­ins því lík­ast til óveru­leg.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár