Flestir smitaðir eru á höfuðborgarsvæðinu og í kringum miðjan aldur

Á síð­unni covid.is, sem emb­ætti land­læknis og almanna­varna­deild rík­is­lög­reglu­stjóra standa að, er hægt að sjá alla helstu töl­fræði um útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19. Til dæmis á hvaða aldri smit­aðir eru og hvar á land­inu þeir búa.

Alls höfðu 161 ein­stak­lingur greinst smit­aðir af veirunni sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum í morgun. Allir ein­stak­ling­arnir eru í ein­angrun. Til við­bótar við þá sem greinst hafa með smit eru 1.512 í sótt­kví. Þetta kemur fram á síð­unni covid.is þar sem stjórn­völd birta reglu­lega upp­færðar tölur um stöðu mála þegar kemur að útbreiðslu yfir­stand­andi far­ald­urs.

Hvernig dreifast smit um landið?

Nánast allir sem hafa greinst eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 151 af þeim 161 sem greindir hafa verið.

[links]Það þýðir að tæp­lega 94 pró­sent greindra smita eru þar. Átta greind smit eru á Suð­ur­landi og einn hefur verið greindur á Suð­ur­nesjum.

Þá er einn smit­aður óstað­settur. Það þýðir að eng­inn smit hafa greinst á Aust­ur­land, Norð­ur­landi eystra og vestra, Vest­ur­landi og Vest­fjörðum. Fólk er hins vegar í sótt­kví á öllum þessum stöðum.

Hvar eru þeir staðsettir sem eru í sóttkví?

Lang­flestir þeirra sem eru í sótt­kví eru á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða 1.057 af þeim 1.512 sem eru í slíkri. Þeim sem eru í sótt­kví fjölg­aði umtals­vert á Suð­ur­landi í gær þegar á þriðja hund­rað nem­endur í Hvera­gerði í 1., 2., 4., 5., 6., 7. og 10. bekk voru settir í sótt­kví eftir að starfs­maður í skóla þeirra greind­ist með veiruna.

[adspot]Nú eru alls 371 ein­stak­lingar í sótt­kví þar.

Hvernig er aldursdreifing smita?

Einungis tveir ein­stak­lingar á aldr­inum núll til níu ára hafa greinst með kór­ónu­veiruna, sem þýðir að 1,2 pró­sent greindra eru í þeim ald­urs­flokki. Þá hafa ein­ungis tíu smit greinst í ald­urs­hópnum tíu til 19 ára.

Flestir sem hafa greinst eru á á ald­urs­bil­inu 40 til 49 ára (43) og 50 til 59 ára (34). Auk þess hafa 29 ein­stak­lingar á sjö­tugs­aldri greinst með veiruna en ein­ungis þrír á átt­ræð­is­aldri og engin yfir átt­rætt.

Hvar er fólk að smitast?

Framan af far­aldr­inum smit­uð­ust lang­flestir erlendis, aðal­lega í skíða­ferðum á Ítalíu eða í Aust­ur­ríki. Síðustu daga hefur fjöldi inn­an­lands­smita, bæði ann­ars stigs og þriðja stigs smita, auk­ist mikið og nú er svo komið að inn­an­lands­smitin eru orðin 45 pró­sent af öllum smitum. Kynja­hlut­fall þeirra sem smit­ast er nokkuð svipað, 51 pró­sent þeirra eru karlar en 49 pró­sent konur.

Hvað er búið að taka mörg sýni?

Í morgun var búið að vinna úr 1.545 sýnum en búast má við að þeim fjölgi hratt næstu daga, í kjöl­far þess að skimanir hófust á vegum Íslenskrar erfða­grein­ingar í Turninum, Smára­torgi 3 í Kópavogi, á föstu­dags­morgun. Þúsundir lands­manna hafa bókað tíma í skimun eftir COVID-19 eftir að opnað var fyrir skrán­ingar og reiknað er með að hægt sé að skima allt að þús­und manns á dag.

Hvernig er þróun smita?

Hún hefur verið upp og ofan milli daga frá því að fyrsta smit greind­ist 28. febr­úar, en stíg­andi í fjölda þeirra líkt og búist var við. Flest smit á einum degi greindust 11. mars síð­ast­lið­inn, eða 24. Daginn eftir greindust níu færri, eða 15. Á föstu­dag greindust 19 manns og í gær 17 manns. Sam­an­lagt hafa, líkt og áður sagði, 161 manns greinst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár