Sóttvarnalæknir hefur hækkað áhættumat fyrir Spán, Þýskaland og Frakkland í ljósi útbreiðslu COVID-19 í þeim löndum. Önnur slík svæði eru: Kína, Íran, Suður Kórea, Ítalía og skíðasvæði í Ölpunum.
Í tilkynningu frá almannavarnadeild rikislögreglustjóra segir að ástæða hækkunar á áhættumati sé mikil fjölgun sýktra og alvarlega veikra í þessum löndum. Spánn, þar á meðal Kanaríeyjar, Þýskaland og Frakkland teljast því nú til hááhættusvæða.
Það þýðir að Íslendingar sem koma frá Spáni og Frakklandi skulu fara í sóttkví í 14 daga frá og með deginum í dag 14. mars 2020. Farþegar sem koma frá Þýskalandi skulu fara í sóttkví í 14 daga frá og með 12. mars 2020.
Fyrr í dag hvöttu íslensk stjórnvöld Íslendinga sem eru á ferðalagi erlendis til að flýta heimför og réðu landsmönnum frá því að leggjast í ferðalög.
[adspot]Þetta kom fram í tilkynningu frá utanríkis- og þróunarsamvinnuráðuneytinu vegna tillögu Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, ráðherra málaflokksins, þess efnis í ljósi þeirra yfirgripsmiklu ráðstafana sem erlend ríki hafa gripið til til að hefta útbreiðslu COVID-19 og kunna að hafa áhrif á Íslendinga erlendis. „Víða eiga Íslendingar á hættu að verða innlyksa eða lenda í sóttkví við erfiðar aðstæður. Ekki er víst hvaða aðgang og réttindi Íslendingar munu hafa að heilbrigðisþjónustu auk þess sem heilbrigðiskerfi í mörgum ríkjum anna ekki álagi,“ segir Guðlaugur Þór „Í því ljósi höfum við ákveðið að ráða Íslendingum gegn ferðalögum erlendis og þeim sem eru á ferðalagi erlendis að íhuga að snúa heim fyrr en ella.“
Í tilkynningunni sagði einnig að mörg erlend ríki hefðu undanfarinn sólarhring gripið til þess að loka landamærum og skylda alla sem þangað koma í sóttkví. „Ekki er hægt að útiloka að fleiri ríki muni grípa til svipaðra ráðstafana á næstu dögum. Það er mat utanríkisráðuneytisins, að höfðu samráði við forsætisráðherra, heilbrigðisráðherra, sóttvarnarlækni og almannavarnir, að tímabært sé að ráða Íslendingum formlega frá því að leggja upp í ferðalög. Þá eru Íslendingar á ferðalagi erlendis beðnir að íhuga hvort ástæða sé til að flýta heimför með tilliti til ofangreindra þátta og Íslendingar búsettir erlendis hvattir til að kanna rétt sinn til heilbrigðisþjónustu.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir