Bjarni Ármannsson nýr forstjóri Iceland Seafood International

Stjórn Iceland Seafood International ákvað í dag að ráða Bjarna Ármanns­son sem for­stjóra félags­ins en hann tekur við starfi Helga Antons Eiríks­sonar.

Bjarni Ármannsson
Bjarni Ármanns­son Mynd: Aðsend mynd

Stjórn Iceland Seafood International ákvað í dag að ráða Bjarna Ármanns­son sem for­stjóra félags­ins. Bjarni sem stígur nú úr stjórn félags­ins hefur verið stjórn­ar­for­maður ISI frá sept­em­ber 2018 og tekur við starfi Helga Antons Eiríks­sonar sem hefur óskað eftir að stíga til hliðar eftir níu ár í stóli for­stjóra.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Iceland Seafood International í dag.

Þá hefur Lee Camfield, COO einnig óskað eftir að láta af störfum hjá félag­inu. Bæði, Helgi og Lee, munu starfa náið með nýjum for­stjóra næstu mán­uði.

„Helgi hefur verið for­stjóri félags­ins frá 2010 og hefur leitt upp­bygg­ingu félags­ins sem alþjóð­legs fram­leið­anda á sjáv­ar­af­urðum, byggða á hinum sterka íslenska grunni félags­ins og í sam­starfi við íslenska fram­leið­endur. Félagið stendur eftir fjár­hags­lega sterkt og er til­búið fyrir enn frek­ari vöxt,“ segir Bjarni við til­efnið. Hann seg­ist jafn­framt vilja þakka Helga fyrir það mikla starf sem hann hafi innt af hendi við upp­bygg­ingu félags­ins.

„Það hefur leitt af sér mik­inn og eft­ir­tekt­ar­verðan árangur und­an­farin ár. Framundan eru spenn­andi tímar hjá Iceland Seafood International. Félagið hyggur á skrán­ingu á aðal­markað Kaup­hallar Íslands á þessu ári. Hjá félag­inu starfa 630 starfs­menn í níu dótt­ur­fé­lögum, mest­megnis í Evrópu. Sú mikla þekk­ing og reynsla sem teymi ISI búa yfir, víðs­vegar um heim, er það sem gerir fyr­ir­tækið vel í stakk búið til áfram­hald­andi vaxtar. Það er spenn­andi að leiða þennan góða hóp inn í þau mik­il­vægu verk­efni sem framundan eru og hlakka ég til þess,“ segir Bjarni.

Helgi seg­ist hreyk­inn og þakk­látur fyrir ár sín sem for­stjóri ISI. „Eftir tæpan ára­tug hjá félag­inu tel ég þetta réttan tíma­punkt til að stíga til hliðar og horfa til nýrra tæki­færa. Félaginu hefur vegnað vel und­an­farin ár og ber að þakka árang­ur­inn okkar frá­bæra starfs­fólki víða um heim og sterkum og traustum við­skipta­vinum okkar á Íslandi og erlendis. Iceland Seafood starfar í krefj­andi umhverfi alþjóð­legs sjáv­ar­út­vegs og félagið er vel í stakk búið til að halda áfram sínum kröft­uga vexti á næstu árum.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár