Þverpólitísk samstaða í Reykjavíkurborg um að taka á móti fleiri flóttamönnum

Á borg­ar­stjórn­ar­fundi, sem fer fram í dag klukkan 14, verður lögð fram til­laga með afbrigðum um við­brögð Reykja­vík­ur­borgar við þeim flótta­manna­vanda sem Evrópa stendur frammi fyrir. Samkvæmt til­lög­unni lýsir Reykja­vík­ur­borg því yfir að hún sé til­búin að taka á móti fleiri flótta­mönnum. Öll fram­boð sem eiga full­trúa í borg­ar­stjórn standa á bak­við til­lög­una. Þetta stað­festir Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri Reykja­víkur, í sam­tali við Kjarnann.

Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri í Reykjavík.
Dagur B. Egg­erts­son, borg­ar­stjóri í Reykja­vík.

Dagur segir að með til­lög­unni sé borg­ar­stjórn að ítreka það sem vel­ferð­ar­ráð borg­ar­innar er þegar búið að sam­þykkja. „Að borgin sé til­búin að taka á móti fleiri flótta­mönnum og að hún sé til­búin í við­ræður við ríkið um það.“ Dagur segir engar tölur um fjölda flótta­manna sem borgin sé til­búin að taka á móti liggja fyrir. Sveita­fé­lög lands­ins, sem mörg hver hafa lýst yfir vilja til að taka við fleiri flótta­mönnum, eigi að vinna málið í sam­eig­in­legu átaki og í sam­vinnu við Rauða kross Íslands.

Vel­ferð­ar­ráð Reykja­víkur sam­þykkti bókun á fundi sínum 27. Ágúst síð­ast­lið­inn um mót­t­töku flótta­fólks. Bókunin vel­ferð­ar­ráðs var svohljóð­andi: „Vel­ferð­ar­ráð fagnar því að íslensk stjórn­völd ætli að taka á móti flótta­fólki á þessu ári og því næsta og axla þannig ábyrgð til að létta á vanda fólks í brýnni þörf. Reykja­vík­ur­borg hefur tekið á móti flestum hópum flótta­manna á und­an­förnum árum með samn­ingum við vel­ferð­ar­ráðu­neytið. Vel­ferð­ar­ráð felur vel­ferð­ar­sviði að hefja við­ræður við ráðu­neytið um mót­töku þeirra flótta­manna sem hér vilja dvelja.“

Tillagan sem lögð verður fram í borg­ar­stjórn á eftir er svohljóð­andi: "Borg­ar­stjórn sam­þykkir að óska eftir við­ræðum við rík­is­valdið um hlut­verk og aðkomu borg­ar­innar að mót­töku flótta­fólks og lýsir sig reiðu­búna til að leggja sitt af mörkum til að tryggja sem flestum öruggt skjól. Borg­ar­stjóra er falið að hefja við­ræð­urnar, upp­lýsa borg­ar­ráð um fram­gang þeirra á meðan á við­ræð­unum stendur og leggja svo fram útfærða, tíma­setta og kostn­að­ar­metna áætlun þegar nið­ur­staða liggur fyrir."

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár