Innanríkisráðuneytið greiddi 2,4 milljónir fyrir fjölmiðlaráðgjöf vegna lekamálsins

Innan­ríkis­ráðuneytið greiddi Markaðs­stofunni Argus ehf. 2.394.300 krónur fyrir sértæka fjölmiðla­ráðgjöf vegna leka­málsins á síðasta ári. Þetta kemur fram í yfirliti yfir aðkeypta ráðgjöf innan­ríkis­ráðuneytisins á árunum 2013 og 2014 sem tekið var saman að beiðni Kjarnans.

Samkvæmt heimildum Kjarnans var Stein­grímur Sævarr Ólafsson, fyrr­verandi frétta­stjóri Stöðvar 2 og ritstjóri Pressunnar, á meðal þeirra sem veittu Hönnu Birnu Kristjáns­dóttur þáverandi innan­ríkis­ráðherra fjölmiðla­ráðgjöf fyrir hönd Argus.

Argus sérhæfir sig í fjöl­breyttri þekkingar-, þjónustu- og ráðgjafa­vinnu fyrir einstaklinga, stofnanir og opinbera aðila að því er fram kemur á vefsíðu fyrir­tækisins, og að það hafi margra áratuga reynslu meðal annars af markaðs­málum, fjöl­miðlum og samskiptum.

Þá kemur fram í yfirliti innan­ríkis­ráðuneytisins að ráðuneytið greiddi lögmanns­stofunni LEX 1.070.450 krónur vegna lögfræði­ráðgjafar í tengslum við lekamálið á síðasta ári. Beinn kostnaður ráðuneytisins vegna aðkeyptrar ráðgjafar á árinu 2014 vegna leka­málsins nam því tæpum 3,5 milljónum króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár