Kemur ekki til greina að greiða út arð úr Bláa lóninu á þessu ári

For­stjóri Bláa lóns­ins segir að um 65 pró­sent af arð­greiðslu fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra hafi skilað sér aftur óbeint til sam­fé­lags­ins. Það væri óábyrgt og ekki í sam­ræmi við sið­ferði ef þau fyr­ir­tæki sem nýti sér úrræði stjórn­valda myndu fara að borga sér arð.

„Það er ekki verið að fara að greiða arð út úr Bláa lón­inu á þessu ári. Það segir sig nú bara alveg sjálft og væri algjör­lega óábyrgt.“ Þetta sagði Grímur Sæmund­sen, for­stjóri og stærsti eig­andi Bláa lóns­ins, í við­tali við Morg­un­út­varp RÚV í morgun.

Hann sagði það alveg sjálf­sagt að setja kröfur á þau fyr­ir­tæki sem nýttu sér þær leiðir stjórn­valda sem settar hafa verið fram til að kom­ast í gegnum yfir­stand­andi stöðu, og munu kosta skatt­greið­endur tugi ef ekki hund­ruð millj­arða króna, að þau greiddu sér ekki út arð. „Það væri óeðli­legt að gera það ekki. Það væri algjör­lega óábyrgt og ekki í sam­ræmi við sið­ferði ef menn væru að nýta brú­ar­lán og gjald­daga­frest­anir og annað en færu svo að borga sér arð. Það er frá­leitt hugsun í mínum huga.“

Hann sagði að hluta­bóta­úr­ræðið, sem Bláa lónið hefur þegar nýtt sér fyrir 400 starfs­menn, yrði eina úrræðið sem fyr­ir­tækið myndi nýta sér af þeim leiðum sem stjórn­völd hafa kynnt.

„Þetta er ótrú­lega for­dæma­laus staða sem við stöndum frammi fyrir. Fyr­ir­tækið er tekju­laust. Það verður tekju­laust út apríl og það verður senni­lega tekju­lítið eða -laust í maí, að minnsta kosti. Það er auð­vitað ástæða þess að við gripum til þessa aðgerða.“

Grímur sagði að sú sviðs­mynd sem Bláa lónið væri að vinna með væri í takti við dekkri sviðs­mynd Seðla­bank­ans. Miðað við hana væri fyr­ir­liggj­andi að tekjur Bláa lóns­ins yrðu 50 pró­sent lægri í ár en gert var ráð fyrir, en fyr­ir­tækið var með 17,5 millj­arða króna í tekjur í fyrra. Samkvæmt þeirri sviðs­mynd munu tekj­urnar drag­ast saman um hátt í níu millj­arða króna í ár. „Það er mjög mik­il­vægt að hafa í huga að það sem við erum að gera núna er að við erum að búa í hag­inn fyrir að vera starfs­hæf út þetta ár.“ Í því felist að sinna við­haldi og við­skipta­þró­un­ar­verk­efnum og halda áfram staf­rænni þróun í fyr­ir­tæk­inu. Og vakta sölu- og mark­aðs­mál.

[adspot]Það væri gert til að sýna rekstr­ar­lega- og sam­fé­lags­lega ábyrgð til að reyna að vernda þau 600 störf sem eftir væru í fyr­ir­tæk­inu, en auk þeirra 400 sem settir voru á hluta­bóta­leið­ina eru 200 manns enn starf­andi í fullu starfi hjá Bláa lón­inu. 164 manns var sagt upp.

Um 65 prósent af arðgreiðslunni fór til samfélagsins

Rekstur Bláa lóns­ins hefur gengið afar vel síð­ustu ár. Á aðal­­fundi Bláa lóns­ins í fyrra var sam­­þykkt að greiða út um 30 millj­­ónir evra, þá alls tæp­­lega 4,3 millj­­arða króna, í arð­greiðslu vegna frammi­­stöðu árs­ins 2018. Það var næstum því tvö­­falt hærri greiðsla en var greidd út árið 2018 í arð, þegar slík greiðsla nam 16 millj­­ónum evra, eða tæp­­lega 2,3 millj­­arðar króna á núvirð­i.

Mikil umræða hefur verið um það und­an­farið hvort að það sé eðli­legt að fyr­ir­tæki með mjög sterka eig­in­fjár­stöðu, sem hafa greitt sér háar arð­greiðslur á und­an­förnum árum, séu að nýta sér leiðir stjórn­valda strax. Grímur sagði að það væri eðli­legt að þess­ara spurn­inga væri spurt. Hann sagði að hluta­bóta­leiðin væri góð leið og að ef ekki hefði verið gripið til hennar hefðu ein­fald­lega verið meiri upp­sagnir hjá Bláa lón­inu. „Kjarninn er þessi að við erum að reyna að verja þessi 600 störf.“ Þorri þeirra 400 sem samið hafa um að fara á hluta­bóta­leið­ina fara í 25 pró­sent starfs­hlut­fall, sem er það lægsta sem atvinnu­rek­andi má setja starfs­mann í sam­kvæmt skil­yrðum hennar.

Grímur sagði að arð­greiðslan sem greidd hafi verið út í fyrra hefði verið vegna rekstr­ar­árs­ins 2018, sem hafi verið frá­bært rekstr­arár. Af þeim rúmu fjórum millj­örðum króna sem greiddir voru í arð hafi um einn millj­arður króna farið í fjár­magnstekju­skatt til rík­is­sjóðs og af því var greitt í arð til hlut­hafa þá hafi óbeint um helm­ingur af þeirri upp­hæð til almenn­ings í gegnum líf­eyr­is­sjóð­ina, sem eiga tæpan helm­ing í fyr­ir­tæk­inu. „Það má segja að 65 pró­sent af þess­ari arð­greiðslu hafi farið til sam­fé­lags­ins.“

Erfið staða á helstu mörkuðum

Um 98 pró­sent við­skipta­vina Bláa lóns­ins eru erlendir ferða­menn. Grímur sagði það ljóst að erf­iðir tímar séu framundan, jafn­vel þótt að Íslandi gangi mjög vel að takast á við útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19. Erlendu mark­að­irnir sem við­skipta­vin­irnir kæmu frá væru í miklum vand­ræðum. Donald Trump, for­seti Banda­ríkj­anna, hefði til að mynda greint frá fram­lengdu sam­komu­banni þar í landi í gær og frá Bret­landi bær­ust þau skila­boð að íbúar þar ættu að búa sig undir að bar­áttan yrði sex mán­aða ferli.

[adspot]Grímur benti á að gengi íslensku krón­unnar hefði nú veikst um 10-15 pró­sent án þess að verð­bólga hefði fylgt í kjöl­farið. Það væri algjör­lega ný staða og sagði hann að hún sýndi hversu miklu ferða­þjón­ustan hefði breytt fyrir íslenskt efna­hags­líf. Í fram­tíð­inni væri að hægt að nýta krón­una sem tæki til að auka sam­keppn­is­hæfi. Þá ætti líka að vera hægt að nýta góða frammi­stöðu Ísland við bar­átt­una við útbreiðslu kór­ónu veiruna í mark­aðs­setn­ing­unni. Það verði ein­fald­lega óhætt að koma.

Var metið á 50 milljarða

Stærsti eig­andi félags­­ins er Hvatn­ing slhf. með eign­­ar­hlut upp á 39,1 pró­­sent. Eig­andi þess er Kólfur ehf., eign­­ar­halds­­­fé­lag að stærstu leyti í eigu Gríms og Eðvard Júl­í­us­­son­­ar. Kólfur keypti tæp­­lega helm­ing í Hvatn­ingu af Horni II, fram­taks­­sjóði í stýr­ingu Lands­bréfa, árið 2018. 

Næst stærsti eig­and­inn er Blá­varmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­­­sjóða, sem keypti 30 pró­­­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­­­lega fimm­­­földu bók­­­færðu virði hlut­­­ar­ins í maí síð­­ast­liðn­­um, eða á 15 millj­­arða króna.

Salan á hlutnum í Bláa Lón­inu fór fram eftir að Jarð­varmi slhf., félag í eigu sömu líf­eyr­is­­­sjóða, hafði eign­­­ast allt hlutafé í HS Orku skömmu áður. Miðað við þessi við­­skipti þá var Bláa lónið metið í heild sinni á 50 millj­­arða króna.

[links]Þriðji stærsti eig­and­inn með 8,7 pró­­sent hlut er Keila ehf., en stærsti eig­andi þess er áður­­­nefnd Hvatn­ing.

Fjórðu og fimmtu stærstu hlut­haf­­arnir er félögin Hof­­garðar ehf. og Saffron ehf. með sitt hvorn 6,2 pró­­sent eign­­ar­hlut. Hof­­garðar er eign­­ar­halds­­­fé­lag í eigu Helga Magn­ús­­son­­ar, aðal­eig­anda fjöl­miðla­fyr­ir­tæk­is­ins Torgs, en Helgi er einnig stjórn­ar­for­maður Bláa lóns­ins.

Saffron er í eigu Sig­­urðar Arn­gríms­­son­­ar, sem á líka hluti í Torg­i.

Bog­­mað­­ur­inn ehf., félag í eigu Ágústu John­­son er einnig á meðal stærstu eig­enda með 2,4 pró­­sent eign­­ar­hlut. Ágústa er eig­in­­kona Guð­laugs Þórs Þórð­­ar­­sonar utan­­­rík­­is­ráð­herra.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bláalónið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár