Verðmiðinn á Bláa Lóninu tæplega fimmfalt bókfært virði

Félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða keyptu 30 pró­sent hlut í Bláa Lóninu af HS Orku á 15 millj­arða króna. Það er mun hærri upp­hæð en bók­fært virði hlut­ar­ins í árs­reikn­ingi orku­fyr­ir­tæk­is­ins. Virði Bláa Lónsins er því 50 millj­arðar króna.

Blávarmi slhf., félag í eigu 14 íslenskra líf­eyr­is­sjóða, keypti 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu á tæp­lega fimm­földu bók­færðu virði hlut­ar­ins.

[links]Í nýjasta árs­reikn­ingi HS Orku, fyrir árið 2018, er hlut­ur­inn bók­færður á 3,3 millj­arða króna og hafði þá hækkað um 600 millj­ónir króna milli ára.

Blávarmi keypti hins vegar hlut­inn á 15 millj­arða króna. Miðað við það er virði Bláa Lónsins 50 millj­arðar króna.

Salan á hlutnum í Bláa Lóninu fór fram eftir að Jarð­varmi slhf., félag í eigu sömu líf­eyr­is­sjóða, hafði eign­ast allt hlutafé í HS Orku í síð­ustu viku. Eftir að 30 pró­sent hlut­ur­inn í Bláa Lóninu var seldur til Blávarma seldi Jarð­varmi síðan helm­ingin í HS Orku til breska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evr­ópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóð­um.

[adspot]Jarð­varmi ákvað að nýta for­kaups­rétt sinn og ganga inn í tvenn við­skipti með hluti í HS Orku sem fyrr­ver­andi meiri­hluta­eig­and­inn Innergec og Fjár­fest­ing­ar­sjóð­ur­inn ORK voru að selja.

Tilboði hafnað 2017

Sumarið 2017 reyndi HS Orka, með stuðn­ingi Ross Beaty stjórn­ar­for­manns og Innergex, að selja 30 pró­sent hlut­inn í Bláa Lóninu til banda­ríska fjár­fest­inga­fé­lags­ins Blackstone.

Til­boð Blackstone hljóð­aði þá upp á 95 millj­ónir evra, jafn­virði 13,1 millj­arða króna á núver­andi gengi.

Ekk­ert varð hins vegar af söl­unni eftir að stjórn Jarð­varma ákvað að beita neit­un­ar­valdi sínu, á grund­velli hlut­hafa­sam­komu­lags um minni­hluta­vernd, og hafna til­boði Blackstone. Sú ákvörðun vakti ekki mikla lukku á meðal erlendra eig­enda HS Orku.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

bláalónið

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár