Segir að Björk hafi skorið upp herör á óupplýstan hátt gegn Magma

Rekstr­ar­hagn­aður HS Orku jókst um tæpan millj­arð króna í fyrra. Ross Beaty mun lík­ast til yfir­gefa félagið fljót­lega og í síð­asta ávarpi hans í árs­skýrslu fer hann yfir hæðir og lægðir.

„Emb­ætt­is­tíð mín hjá HS Orku hófst með meiri­hluta­kaupum Magma Energy 2009–2010 (sem breytti um nafn árið 2011 og varð að Alterra Power, en þegar Innergex keypti Alterra 2018, varð það að Innergex Renewable Energy). Í fyrstu var leiðin nokkuð grýtt þar sem söng­konan Björk Guð­munds­dóttir and­mælti kaupum kanadísks fyr­ir­tækis á HS Orku skömmu eftir íslenska fjár­hags­hrunið 2008 og skar upp herör á óupp­lýstan hátt gegn Magma og sjálfum mér per­sónu­lega. Ég vona að mér hafi tek­ist að sýna fram á það með góðum verkum og réttu fyr­ir­komu­lagi að undir okkar stjórn hafi HS Orka þróað orku­lindir jarð­hita á ábyrgan hátt, ekki aðeins í hag hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins, heldur einnig íslenska rík­is­ins og lands­manna allra.“

Þetta segir Ross Beaty, stjórn­ar­for­maður HS Orku og einn aðal­eig­andi fyr­ir­tæk­is­ins síð­ast­lið­inn ára­tug, í ávarpi stjórn­ar­for­manns í nýj­ustu árs­skýrslu HS Orku.

Miklar vær­ingar hafa verið með eign­ar­hluti í HS Orku síð­ustu daga og nýtt fram­tíðar eign­ar­hald hefur litið dags­ins ljós. Jarð­varmi slhf, félag í eigu 14 íslenska líf­eyr­is­sjóð, keypti í vik­unni hlut Innergex í HS Orku á 299,9 millj­ónir dali, eða 37,3 millj­arða króna á núvirði.

Innergex hefur þar með selt sænsku félagið Magma Sweden til Jarð­varma en Magma á 53,9 pró­sent hlut í félag­inu. Með því varð Jarð­varmi eig­andi allra hluta í HS Orku, eina íslenska orku­fyr­ir­tæk­inu sem er í einka­eigu eftir að hafa gengið inn í sölu á hlut fjár­fest­ing­ar­sjóðs­ins ORK fyrr á þessu ári. Sam­an­lagt greiddi Jarð­varmi 47 millj­arða króna fyrir hlut­ina, en þeir nema 66,6 pró­sent af útgefnu hlutafé í HS Orku. Jarð­varmi var að nýta kaup­rétt sinn á hlutum í HS Orku en félagið átti áður 33,4 pró­sent hlut. Virði eign­ar­hlutar Magma hefur tvö­fald­ast á þeim tíma sem lið­inn er frá því að félagið eign­að­ist hann.

Í kjöl­farið seldi Jarð­varmi síðan helm­ing hluta­fjár í HS orku til breska sjóðs­stýr­ing­ar­fyr­ir­tæk­is­ins Ancala Partners, sem sér­hæfir sig í inn­viða­fjár­fest­ingum í Evr­ópu og er að stóru leyti fjár­magnað af breskum líf­eyr­is­sjóð­um. Áður en að það var gert tók Jarð­varmi þó 30 pró­sent hlut HS Orku í Bláa lón­inu út úr orku­fyr­ir­tæki og seldi til nýs félags í eigu íslenskra líf­eyr­is­sjóða, Blá­varma slhf, á 15 millj­arða króna. Miðað við það verð er heild­ar­virði Bláa lóns­ins 50 millj­arðar króna.

Rekstrartekjur og -hagnaður aukast

Í nýjasta árs­reikn­ingi HS Orku kemur fram að tap hafi verið á rekstri fyr­ir­tæk­is­ins í fyrra upp á 72,3 millj­ónir króna. Árið áður var hagn­aður upp á 4,6 millj­arða króna. Sú nið­ur­staða segir þó ekki alla sög­una því að rekstr­ar­tekjur juk­ust úr 7,5 millj­örðum króna í 8,9 millj­arða króna og rekstr­ar­hagn­aður marg­fald­að­ist, fór úr 492 millj­ónum króna í 1,4 millj­arða króna.

Tapið í fyrra, og raunar hinn mikli hagn­aður árið áður, er til­komið vegna sveiflna í heims­mark­aðs­verði á áli og veik­ingu íslensku krón­unnar. Samn­ingar HS Orku um sölu á raf­magni til stór­iðju eru bundnir við heims­mark­aðs­verð á áli. Árið 2017 skil­aði sú teng­ing 3,9 millj­arða króna hagn­aði en í fyrra leiddu gagn­virð­is­breyt­ingar á álverðsaf­leiðum til þess að afkoman varð nei­kvæð­ari um 2,2 millj­arða króna. Á árinu 2018 var geng­is­munur enn fremur nei­kvæður um 400 millj­ónir króna.

Björk Guðmundsdóttir mótmælti eignarhaldi Magma á HS Orku harðlega á sínum tima.
Björk Guð­munds­dóttir mót­mælti eign­ar­haldi Magma á HS Orku harð­lega á sínum tima.

Beaty segir í ávarpi sínu að staða HS Orku hafi aldrei verið sterk­ari. „Fyr­ir­tæki er ekki bara far­sælt vegna þess að það skilar góðum hagn­aði. Farsæld fyr­ir­tækis felst einnig í fram­lagi til þjóð­fé­lags­ins, að gera umhverf­is­vernd eitt af helstu stefnu­miðum sínum, að útvega starfs­mönnum sínum öruggan og heilsu­vænan vinnu­stað og stuðla að hag­sæld sam­fé­lags­ins sem umlykur það. [...]Ef svo fer að störfum mínum hjá HS Orku muni ljúka á árinu 2019 er ég mjög sáttur við að skilja við fyr­ir­tækið í þess­ari góðu stöðu. Ég hef notið þess að vera á Íslandi og sendi mínar bestu árn­að­ar­óskir um fram­tíð þar sem end­ur­nýj­an­legar orku­lindir og mannauður koma saman til að byggja enn sjálf­bær­ara og far­sælla fyr­ir­tæki í þágu hlut­hafa þess og íslensku þjóð­ar­innar.“

Hann segir að afkasta­geta orku­vera HS Orku sé nú nýtt til fulls, að orku­salan hafi aldrei verið jafn mikil, virkj­un­ar­verk­efni séu að fullu fjár­mögnuð og fram­kvæmdir hafnar og tæki­færi fyrir enn frek­ari vöxt eru í aug­sýn. „Hvílík stund til að rétta nýjum stjórn­ar­for­manni og nýjum meiri­hluta­hópi stjórn­ar­taumana til þess að leiða fyr­ir­tækið inn í enn bjart­ari fram­tíð.“

Hrósar Bláa Lóninu

Í kveðju­ávarpi sínu minn­ist Beaty sér­stak­lega þriggja atriða sem hann segir að standi upp úr á tíma sínum sem stjórn­ar­for­manns HS Orku. „Í fyrsta lagi voru það far­sæl mála­lok varð­andi Norðurál eftir sam­tals þrenn mála­ferli. Þetta fól í sér mik­inn kostnað og mikla vinnu, alger­lega að óþörfu. En loka­sig­ur­inn gerði okkur kleift að byggja upp fram­tíð án þeirra hlekkja sem samn­ing­ur­inn fól í sér og skil­yrða sem ekki var hægt að upp­fylla.

Í öðru lagi var það borun dýpstu háhita­bor­holu heims á Reykja­nesi 2016–2017. Þessi borun leiddi í ljós jarð­hita­kerfi langt fyrir neðan það kerfi sem nú er verið að nýta og býður upp á stór­kost­lega fram­tíð­ar­mögu­leika til orku­fram­leiðslu á Reykja­nesi. Þetta verk­efni krafð­ist heil­mik­illar vinnu og ég þakka hér með öllum þeim sem lögðu sitt á vog­ar­skál­arnar til að ná þessum árangri.

Í þriðja og síð­asta lagi eru tvö verk­efni sem komið var á lagg­irnar 2017–2018 og ég kalla risa­stökk fram á við fyrir HS Orku, en það er þróun Brú­ar­virkj­unar og 4. áfanga Reykja­nes­virkj­unar. Mig langar að þakka öllum stjórn­endum hjá okkur fyrir eld­móð sinn í þessum verk­efnum og einnig Arion banka fyrir fjár­hags­legan stuðn­ing við þau.“

Hann ber einnig lof á Bláa Lónið og sér­stak­lega Grím Sæmund­sen, for­stjóra og einn aðal­eig­anda þess, sem Beaty segir að hafi tek­ist að skapa háklassa­heilsu­lind á heims­vísu sem sé vin­sæl­asti ferða­manna­staður Íslands. „Þetta er ótrú­leg saga og ég hef notið þeirrar ánægju að vera þátt­tak­andi á hlið­ar­lín­unni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið undanfarið ár