Þriggja daga matarveisla framundan

Frum­kvöð­ull­inn Sara Roversi er aðal­gestur á Lyst, hátíðar sjáv­ar­kla­s­ans þar sem matur er í fyr­ir­rúmi.

Dagana 27. til 30. apríl verður við­burð­ur­inn LYST - Future of Food - hald­inn í annað skipti á vegum Íslenska sjáv­ar­kla­s­ans. Við­burð­inn sam­anstendur af ráð­stefnu um við­skipti með mat og mat­ar­hakka­þon, að því er segir í til­kynn­ingu.

Á ráð­stefn­una munu vera fram­sögur frá úrvali af erlendum og inn­lendum áhrifa­völdum á mat­væla­mark­aðnum, en sér­stök áhersla verður á sjálf­bærni í þetta skiptið.

Mat­ar­frum­kvöðlum verður boðið til þátt­töku í mat­ar­hakka­þoni, þar sem þeir taka þátt í skapa lausnir fyrir mat­væla­geir­ann með aðstoð þraut­reyndra mentora innan geirans.

„Við­skipti með mat­væli eru að breyt­ast á ógn­ar­hraða, við Íslend­ingar erum mat­væla­þjóð sem er mjög háð breyt­ingum sem verða á mörk­uðum. Mark­miðið með við­burð­inum er að fá fólk í fremstu röð til að heim­sækja okkur og fá tæki­færi til að heyra frá þeim hvaða breyt­ingar eru í far­vatn­inu. Jafn­framt ætum við að bjóða þeim sem koma í heim­sókn að hjálpa okkur móta næstu kyn­slóð mat­ar­frum­kvöðla okkar Íslend­inga,“ segir í til­kynn­ingu í til­efni við­burð­ar­ins.

Hakkaþon er við­burður sem tíðkast víða í tækni­heim­inum þessi miss­erin, og þar takast þátt­tak­endur á við krefj­andi verk­efni og koma með alvöru lausnir á innan við 36 klukku­tímum. Jafn­framt fá þátt­tak­endur tæki­færi til þess að máta hug­myndir sínar og lausnir við reynda mentora sem gefa þeim fag­lega end­ur­gjöf.

Að lokum kynna þátt­tak­endur lausnir sínar fyrir dóm­nefnd sem velja bestu lausn­ina.

Aðal­gestur LYST verður Sara Roversi en hún rekur Future of Food Institution á Ítalíu, sem hefur það að mark­miði að efla mat­ar­ný­sköpun á Ítalíu. Sara er nýkomin úr mat­ar­heims­reisu þar sem hún ásamt nem­endum sínum eru búin að greina mat­ar­ný­sköpun á milli menn­ing­ar­heima. Sara æltar að greina frá nið­ur­stöðum sínum og setja Ísland inn í það sam­hengi, að því er segir í til­kynn­ingu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár