Helgi Hrafn segir Ásmund misnota bágindi saklauss fólks

Helgi Hrafn Gunn­ars­son þing­maður Pírata, segir Ásmund Frið­riks­son mis­nota bág­indi við­kvæmra hópa til að búa til sök á hendur ann­arra við­kvæmra hópa. Ásmundur gagn­rýndi í dag kostn­að­inn við mót­töku hæl­is­leit­enda.

Helgi Hrafn Gunn­ars­son, þing­maður Pírata, gagn­rýnir harð­lega afstöðu Ásmundar Frið­riks­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sem gagn­rýndi fjár­fram­lög til Útlend­inga­stofn­unar vegna fjölg­unar hæl­is­leit­enda í ræðu á Alþingi í dag. Sagði hann að fyrir sömu fjár­hæð mætti reka skurð­stofu á sjúkra­hús­inu í Vest­manna­eyjum. Helgi Hrafn segir Ásmund með þessu mis­nota sér bág­indi sak­lauss fólks til þess að rétt­læta sín eigin bölv­an­legu við­horf til hæl­is­leit­enda. 

„Ef þetta sner­ist um aldr­aða og öryrkja (sem það gerir ekki), þá myndi Ásmundur Frið­riks­son kannski stinga upp á því að við aðskiljum ríki og kirkju og fáum þannig sirka 1,6 millj­arð í rík­is­sjóð á ári til að standa undir þörfum öryrkja og elli­líf­eyr­is­þega. Ástæðan fyrir því að honum dettur það ekki í hug, er vegna þess að þetta snýst ekk­ert um að fjár­magna mála­flokka við­kvæmra hópa; hann er ein­göngu að mis­nota stöðu þeirra til að skreyta sinn rang­láta mál­stað með þján­ingu ann­ars fólks,“ segir Helgi Hrafn meðal 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár