Sanngjarnt að fresta veiðigjöldum en ekki forgangsmál að þrýsta á það

Fram­kvæmda­stjóri SFS segir að sjáv­ar­út­vegur sé ekki að horfa fram á altjón. Tak­mark­anir stjórn­valda hafi haft áhrif á starf­semi sumra sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækja en það sé fagn­að­ar­efni hversu lítið hlut­fall þeirra hafi nýtt sér hluta­bóta­leið­ina.

Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS.
Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri SFS. Mynd: RÚV/Skjáskot

„Staðan í sjáv­ar­út­vegi er ekki þannig að við erum að horfa fram á altjón.“ Þetta sagði Heiðrún Lind Mart­eins­dóttir, fram­kvæmda­stjóri Samtaka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi (SFS), í Silfrinu í dag.

Þegar fyrsti efna­hag­s­pakki stjórn­valda var í þing­legri með­ferð skil­uðu sam­tökin inn umsögn þar sem farið var þess á leit að greiðslu veiði­gjalds í ár yrði frestað vegna þess efna­hags­á­stands sem skap­ast hefur út af útbreiðslu veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. ­Á­ætl­aðar tekjur rík­is­sjóðs vegna veiði­gjalda í ár eru tæp­lega 4,9 millj­arðar króna. Samtökin fóru sömu­leiðis fram á að sér­stök gjöld sem lögð eru á fisk­eld­is­fyr­ir­tæki sem stunda sjó­kvía­eldi verði frestað eða felld niður út árið 2021 til að veita fisk­eld­is­fyr­ir­tækjum meira svig­rúm til að bregð­ast við fyr­ir­séðum tekju­sam­drætti við þær aðstæður sem nú eru upp­i.

Heiðrún Lind var spurð um það í Silfrinu hvort að SFS myndi þrýsta áfram á þessar aðgerðir nú þegar næsti pakki stjórn­valda er í loka­drögum, en búist er við að hann verði kynntur snemma í næstu viku. Hún sagði að það væri ekki for­gangs­mál nú og að það yrði ekki þrýst á það að svo komnu máli. Það væri þó ákveðið sann­girn­is­sjón­ar­mið ef það væri hægt að fresta greiðslu gjalds­ins um ákveðin tíma.

Ofsögum sagt að staðan sé svört í sjávarútvegi

Heiðrún Lind var líka spurð út í það hvort eðli­legt væri að sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tæki sem ætti tugi eða jafn­vel yfir hund­rað millj­arða króna í eigið fé væru að nýta sér hluta­bóta­leið stjórn­valda, þar sem rík­is­sjóður greiðir hluta af launum starfs­fólks. Þar hefur sér­staka athygli vakið ákvörðun Samherja og tengdra fyr­ir­tækja að nýta sér leið­ina fyrir hluta síns starfs­fólks, en Samherji átti 111 millj­arða króna í eigið fé í lok árs 2018 og miðað við gott árferði í sjáv­ar­út­vegi í fyrra eru líkur til þess að það hafi auk­ist þá.

[adspot]Heiðrún Lind sagði að það væri hættu­legt að fara að ræða hvað hvert og eitt fyr­ir­tæki sé að gera til að takast á við aðstæður. Það væri tölu­verður sam­dráttur í sjáv­ar­út­vegi, sér­stak­lega hjá þeim sem aðal­lega eru að selja ferskan fisk. Hömlur hafi auk þess verið settar á hversu margir megi koma saman sem hafi áhrif á hversu margir geti starfað í starfs­stöðvum fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi. Því væru aðgerðir og ákvarð­anir stjórn­valda að leiða til skerð­ingar á starfs­getu fyr­ir­tækj­anna.

Henni finnst það þó fagn­að­ar­efni hversu lágt hlut­fall af sjáv­ar­út­vegs­fyr­ir­tækjum hafi verið að nýta sér hluta­bóta­leið­ina.

Heiðrún Lind sagði það ofsögum sagt að staðan í sjáv­ar­út­vegi væri svört. Hún væri miklu svart­ari ann­ars staðar, til dæmis í ferða­þjón­ustu. Ákveðnir þættir væru að vinna með sjáv­ar­út­vegi. Það væri sveigj­an­leiki í grein­inni sem nýt­ist þannig að það er hægt að sækja verð­mætin síðar. Auk þess gagn­ist mikil veik­ing krón­unnar, sem hefur veikst um 18,7 pró­sent gagn­vart Banda­ríkja­dal það sem af er ári, og hrun á heims­mark­aðs­verði á olíu, sem hefur lækkað um tæp 60 pró­sent á þremur mán­uðum, sjáv­ar­út­vegi veru­lega.

Hagstofa Íslands birti í lok lið­innar viku tölur um útflutn­ings­verð­mæti sjáv­ar­af­urða frá byrjun árs og fram að páskum, eða á fyrstu 15 vikum árs­ins 2020. Þar kom fram að hann væri 7,7 pró­sent minna en það var á sama tíma í fyrra. Alls hafði verð­mætið dreg­ist saman um 5,6 millj­arða króna, úr 74 millj­örðum króna í 68,4 millj­arða króna.

Gáleysisleg útlán hafa verið dæmd refsiverð

Heiðrún Lind ræddi líka efna­hag­s­pakka stjórn­valda og hverju þeir hafi skilað. Hún sagð­ist hafa rætt við stóran fyr­ir­tækja­rek­enda, sem væri ekki í útgerð en með starf­semi erlendis, sem sagði að erlendu bank­arnir væru allir komnir af stað með sínar aðgerðir. Þar væri pakk­arnir komnir í fram­kvæmd.

[links]Hér hefði það reynst flókn­ara en hin svoköll­uðu brú­ar­lán, þar sem ríkið ætlar að gang­ast í ábyrgðir fyrir lán sem bankar veita til fyr­ir­tækja í miklum rekstr­ar­erf­ið­leikum, eru enn ekki komin í fram­kvæmd. Sam­komu­lag milli rík­is­ins og Seðla­banka Íslands um útfærslu lán­anna var fyrst und­ir­ritað á föstu­dag.

Heiðrún Lind benti á að áhættu­fælni í íslensku fjár­málaum­hverfi væri mjög mikil á síð­ustu árum, sér­stak­lega eftir að 20 dómar hafi fallið í Hæsta­rétti Íslands eftir banka­hrunið þar sem gáleys­is­leg útlán voru dæmd refsi­verð. Nú spyrji fjár­mála­kerfið hvort að bank­arnir eigi að fara að taka á sig hluta af áhættu á lánum til fyr­ir­tækja sem væru ekki gjald­fær.

Staðan væri því flókin og það þyrfti að taka til­lit til ann­arra kröfu­hafa þeirra fyr­ir­tækja sem upp­fylla skil­yrði til að fá brú­ar­lánin, sem eiga að geta verið allt að 1,2 millj­arðar króna. Það verði hins vegar að fara að koma útlánum til fyr­ir­tækja sem þurfi á þeim að halda í gang og koma fjár­munum þangað sem þörf er á þeim.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár