Brúarlánin geta að hámarki verið 1,2 milljarðar króna

Sam­komu­lag hefur náðst milli fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­is­ins og Seðla­bank­ans um fram­kvæmd á veit­ingu ábyrgðar rík­is­ins á svoköll­uðum brú­ar­lánum.

Bjarni Benediktsson er fjármála- og efnahagsráðherra.
Bjarni Bene­dikts­son er fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið og Seðla­banki Íslands hafa und­ir­ritað samn­ing um skil­mála við fram­kvæmd á veit­ingu ábyrgða rík­is­ins á svoköll­uðum brú­ar­lánum, eða við­bót­ar­lánum lána­stofn­ana til fyr­ir­tækja í tengslum við heims­far­aldur veirunnar sem veldur COVID-19 sjúk­dómnum. Tilkynnt var um lánin þegar rík­is­stjórnin kynnti fyrsta efna­hag­s­pakka sinn í mars­mán­uði en síðan hefur verið unnið að útfærslu brú­ar­lán­anna. Áður en að lög sem heim­ila þau voru afgreidd frá Alþingi var hámarks­á­byrgð hins opin­bera á þeim hækkuð úr 50 í 70 pró­sent. Lánin sem hið opin­bera mun gagn­ast í ábyrgð á geta numið allt að 70 millj­örðum króna. Með ábyrgð hins opin­bera á lán­unum á að tryggja að vextir af þeim verði mjög lágir.

Samkvæmt samn­ingnum getur hver banki nýtt til­tek­inn hluta af heild­ar­um­fangi ábyrgð­anna. Í til­kynn­ingu vegna þessa segir að við­bót­ar­lánin verði að veita fyrir lok árs 2020 og hámarks­láns­tími frá útgáfu sé 18 mán­uðir. „Horft verður til þess að ábyrgð á ein­stökum við­bót­ar­lánum verður að hámarki 70 pró­sent. Lán til ein­staks aðila munu geta að hámarki numið tvö­földum árs­launa­kostn­aði árið 2019 og launa­kostn­aður félags verður að lág­marki hafa verið 25 pró­sent af heild­ar­rekstr­ar­kostn­aði þess árið 2019.“

Lán sem nýtur ábyrgðar frá hinu opin­bera getur hæst numið 1,2 millj­örðum króna.

[adspot]Til­gangur þeirra er að hjálpa fyr­ir­tækjum sem standa frammi fyrir miklu tíma­bundnu tekju­falli og lausa­fjár­vanda. Ábyrgð­irnar eru liður í því að við­halda sem hæstu atvinnustigi og fjöl­breytt­ustu atvinnu­lífi.

Af þeim sökum heim­il­aði Alþingi Bjarna Bene­dikts­syni, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, að veita ábyrgð rík­is­ins á hluta af við­bót­ar­lánum sem lána­stofn­anir veita fyr­ir­tækjum, að til­teknum skil­yrðum upp­fylltum. Síðan tóku við samn­inga­við­ræður við Seðla­banka Íslands um fram­kvæmd ábyrgð­ar­kerf­is­ins. Samn­ingar náð­ust svo í dag.

Seðla­banki Íslands til­kynnti fyrr í dag að ákveðið hefði verið að bjóða fjár­mála­fyr­ir­tækjum í reglu­legum við­skiptum við bank­ann sér­staka og tíma­bundna lána­fyr­ir­greiðslu í formi veð­lána. Í til­kynn­ing­unni sagði að fyrsta útboðið yrði haldið 22. apríl 2020. „Þetta er gert til að bregð­ast við því for­dæma­lausa ástandi sem nú varir og til þess að bjóða fjár­mála­fyr­ir­tækjum tíma­bundið auk­inn aðgang að lausafé. Til sam­ræmis við frétt frá 8. apríl sl. hefur Seðla­banki Íslands breytt reglum nr. 1200/2019 um við­skipti fjár­mála­fyr­ir­tækja við Seðla­banka Íslands og hafa þær breyt­ingar verið birtar í Stjórn­ar­tíð­indum. Jafn­framt hefur veðlisti bank­ans verið upp­færður í takt við breyt­ing­arnar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár