Danir grípa til hertra aðgerða – öllum flugferðum frá áhættusvæðum aflýst

Stjórn­völd í Danmörku hafa til­kynnt um hertar aðgerðir til að hefta útbreiðslu nýju kór­ónu­veirunnar. For­sæt­is­ráð­herr­ann hvetur fólk til að taka ástandið alvar­lega. „Allir þurfa að breyta hegðun sinni.“

Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur.
Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur. Mynd: EPA

Danir til­kynntu í morgun um hertar aðgerðir vegna COVID-19 nú þegar veiran heldur áfram að breið­ast út um Evrópu. For­sæt­is­ráð­herr­ann segir að fólk hafi ekki tekið vánni nógu alvar­lega. Á Ítalíu er sömu sögu að segja, mjög hertar var­úð­ar­ráð­staf­anir eru nú þar í gildi og fólk hvatt til að vera heima nema að það þurfi nauð­syn­lega að ferð­ast starfa sinna vegna.

Fólk sem er sýkt af nýju kór­ónu­veirunni er ein­kenna­laust í fimm daga að með­al­tali sam­kvæmt nýrri rann­sókn. Dæmi eru þó um að sýktir séu ein­kenna­lausir í allt að tvær vikur. Nið­ur­staðan stað­festir mik­il­vægi sótt­kvíar. „Miðað við okkar grein­ingu á þeim gögnum sem ligja fyrir þá er fjórtán daga sótt­kví sem nú er mælt með skyn­sam­leg,“ hefur breska dag­blaðð Guardian eftir Justin Lessler, aðal­höf­undi rann­sókn­ar­innar sem gerð var við Johns Hopkins Bloomberg School of Public Health.

Rann­sóknin leiddi ekki í ljós hvenær ein­kenna­laust fólk sem sýkt er af veirunni getur smitað aðra. Vís­bend­ingar eru þó um smit­hættu í að minnsta kosti stuttan tíma áður en veik­indi fara að gera vart við sig.

Í 98% til­fella fær fólk ein­kenni COVID-19 innan 11,5 daga frá því að það smit­ast. Það þýðir, að mati höf­unda rann­sókn­ar­innar, að um 101 af tíu þús­und mönnum sem fara í sótt­kví í tvær vikur fá ein­kenni eftir að henni lýkur.

Nið­ur­stöður rann­sókn­ar­innar voru birtar í vís­inda­tíma­rit­inu Annals of Internal Medicine. Í henni var 181 til­felli frá Kína og öðrum löndum skoðað. Flest til­fellin voru tengd ferða­lögum til Wuhan, kín­versku borg­inni þar sem veiran á upp­tök sín.

Hinn fimm daga langi með­göngu­tími, þ.e. tími frá því að fólk smit­ast og þar til ein­kenna verður vart, er sam­bæri­legur með­göngu­tíma SARS- og MERS-veir­anna sem einnig ollu far­öldrum. Kór­ónu­veirur sem valda almennu kvefi hafa hins vegar styttri með­göngu­tíma eða um þrjá daga.

Höfundar rann­sókn­ar­innar leggja hins vegar áherslu á að fólk eigi ekki að túlka nið­ur­stöð­urnar á þann veg að það sé heil­brigt sýni það engin ein­kenni fyrtu fimm dag­ana eftir að grunur um smit vaknar. „Það er algjör­lega röng túlkun,“ hefur Guardian eftir Graham Cooke, pró­fessor í far­alds­fræðum við Imperial College í London. „Eftir fimm daga hefur helm­ingur fólks ekki enn sýnt ein­kenni.“

Dauðsföll yfir fjögur þúsund

Í dag hafa 114.544 manns greinst með veiruna og dauðs­föllin af hennar völdum eru komin yfir fjögur þús­und. Mjög hefur hægt á smitum bæði í Kína og Suður-Kóreu en smit­uðum í öðrum löndum, m.a. Ítalíu, fjölgar hratt. Þar í landi hafa 463 dauðs­föll verið rakin til COVID-19, sjúk­dóms­ins sem veiran veldur og hafa stjórn­völd gripið til þess ráðs að herða mjög á ferða­tak­mörk­unum og setja á sam­komu­bann. For­sæt­is­ráð­herr­ann Giuseppe Conte segir þetta gert til að vernda við­kvæm­ustu hópa fólks. „Við þurfum öll að fórna ein­hverju fyrir vel­ferð Ítalíu,“ sagði hann í sjón­varps­ávarpi í morgun. „Og við verðum að gera það núna.“

[links]Conte lýsti aðgerð­unum með setn­ing­unni „ég verð heima“ – sem vísar til þess að fólki er bannað að safn­ast saman á almanna­færi. „Ekkert meira næt­ur­líf, við getum ekki leyft það lengur því við slík til­efni er hætta á smiti.“

Aðeins þeir sem þurfa nauð­syn­lega að mæta til vinnu utan heim­ilis og þeir sem þurfa að sinna ætt­ingjum fá að ferð­ast. Lest­ar­stöðvar og flug­stöðvar eru vaktaðar og þeir sem hyggj­ast nýta sér þessa sam­göngu­máta þurfa að gera grein fyrir ferðum sínum.

Aðgerðir vegna far­ald­urs­ins hafa einnig verið hertar í mörgum öðrum löndum. Allir þeir sem koma til Ísraels þurfa nú að fara í tveggja vikna sótt­kví svo dæmi sé tekið.

Dönsk stjórn­völd gripu einnig til hertra aðgerða í morgun. Fólk er hvatt til að ferð­ast til og frá vinnu utan háanna­tíma og far­þegar almenn­ings­sam­gangna skulu gæta þess að standa ekki nálægt hver öðrum. Flug­ferðum frá áhættu­svæðum, m.a. Íran, Kína og svæðum í Suður-Kóreu, Aust­ur­ríki og Ítalíu, verður aflýst með öllu. Þær tak­mark­anir taka gildi á mið­nætti og munu vara í að minnsta kosti fjórtán daga. Mette Frederik­sen, for­sæt­is­ráð­herra Dan­merkur, hvetur fólk til að taka ástandið alvar­lega. „Allir þurfa að breyta hegðun sinni til vernda þá sem eru við­kvæm­astir,“ sagði hún á blaða­manna­fundi í dag. Hún benti á að nýja kór­ónu­veiran væri að breið­ast hratt út, mun hraðar en venju­leg inflú­ensa.

Á Íslandi hafa nú 65 greinst með veiruna og um 500 manns eru í sótt­kví. Í gær var ákveðið að skil­greina skíða­svæði í öllum Ölpunum, ekki aðeins á Norður-Ítalíu og í Aust­ur­ríki, sem áhættu­svæði. Fólk sem hefur verið þar á ferð frá því í lok febr­úar þarf að fara í sótt­kví.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár