Keep Frozen á kvikmyndahátíðinni í Varsjá

Heim­ild­ar­mynd Huldu Rósa Guðna­dóttur fjallar um reyk­vískt lönd­un­ar­gengi sem starfar við Reykja­vík­ur­höfn.

Langt ferli
Langt ferli Lista- og heim­ild­ar­mynda­gerð­ar­konan Hulda Rós hefur unnið að Keep Frozen verk­efn­inu frá 2010. Mynd: María Rúnarsdóttir

Heim­ild­ar­mynd Huldu Rós Guðna­dóttur, Keep Frozen, þar sem fylgst er með íslensku lönd­un­ar­gengi að störfum við Reykja­vík­ur­höfn, er nú til sýn­inga á kvik­mynda­há­tíð­inni í Varsjá. Hátíðin sem opn­aði á föstu­dag­inn er talin í röð bestu kvik­mynda­há­tíða í heim­inum eða svo­kall­aðra A-hátíða ásamt Cannes og Fen­eyj­ar­há­tíð­inni. Myndir eru valdar alls staðar að úr heim­inum úr þús­undum mynda sem sendar eru inn. Hulda Rós vann mynd­ina í sam­starfi við Helgu Rakel Rafns­dóttur fram­leið­anda en þær unnu áður saman sem sam­leik­stjórar heim­ild­ar­mynd­ar­innar Kjötborg.

Á hátíð­inni í ár eru fimmtán myndir sem keppa um bestu heim­ild­ar­mynd­ina. Ein önnur mynd frá Norð­ur­löndum varð einnig fyrir val­inu, mynd finnska leik­stjór­ans Einari Pask­kanen um föður sinn sem telur sig vera frá plánet­unni Síríus. „Það er ein­stak­lega ánægju­legt að vera að keppa þarna með Einari en við í Keep Frozen teym­inu höfum fylgt Einari að í gegnum nor­rænu hand­rits­þró­unar leið­ina og þekkjum mynd­ina frá því áður en hún tók á sig end­an­lega mynd“, segir leik­stjór­inn Hulda Rós  um keppi­naut sinn á hátíð­inni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár