Þrjár konur og fjórtán börn

Þrjár danskar konur sem dvalist hafa í Sýrlandi um ára­bil sitja nú í gæslu­varð­haldi í Danmörku. Þeirra bíða rétt­ar­höld. Fjórtán börn þeirra komu með til Dan­merkur en fá ekki að dvelja hjá mæðrum sínum, í bili að minnsta kosti.

Barn í flóttamannabúðum í Sýrlandi í apríl 2021.
Barn í flótta­manna­búðum í Sýrlandi í apríl 2021. Mynd: EPA

Árið 2014 fóru kon­urnar þrjár til Sýrlands. Þær áttu það sam­eig­in­legt að vera í sam­búð með mönnum sem fæddir voru utan Dan­merkur. Konurnar eru allar danskir rík­is­borg­arar en ein þeirra með tvö­faldan rík­is­borg­ara­rétt, danskan og austur-evr­ópskan. Þær höfðu allar snú­ist til íslams­trúar og tóku þá ákvörðun að flytja til Sýrlands ásamt eig­in­mönnum sínum og börnum. Ástæð­urnar að baki þeirri ákvörðun voru, að þeirra sögn, að flýja frá for­dómum í heima­land­inu, Danmörku, og trúin á mál­stað­inn. Ein kvenn­anna sagð­ist margoft hafa orðið fyrir aðkasti eftir að hún fór að hylja lík­ama sinn og and­lit, kölluð hettu­mávur, norn og fleira þaðan af verra.

Árið 2014 voru aðstæður í Sýrlandi allt aðrar en síðar varð og kon­urnar segj­ast allar hafa haldið, þegar þær tóku ákvörðun um flytja frá Danmörku, að íslamska ríkið (ISIS) yrði að veru­leika.

[adspot]

Tugþúsundir í fangabúðum

Síðan íslamska ríkið var brotið á bak aftur 2018-2019 hafa tug­þús­undir kvenna og barna hafst við í fanga­búðum í Norð­austur- Sýrlandi. Eig­in­menn kvenn­anna, feður barn­anna, eru ýmist flúnir úr landi, í fang­elsi eða hafa fallið í bar­dögum. Fanga­búð­irnar eru í umsjón Kúrda og þeir segja að fjöld­inn sem þar dvelur sé miklu meiri en þeir ráði við. Alþjóða­stofn­anir segja ástandið algjör­lega óvið­un­andi, það skorti lyf og mat­væli. Tugir barna hafa lát­ist í búð­unum á þessu ári og sam­tökin Save the Children segja fjölda ríkja bregðst börn­unum. Samkvæmt upp­lýs­ingum sam­tak­anna er fólk af 58 þjóð­ernum í búð­unum, sumir úr þessum hópi hafa dvalið þar í fjögur ár.

Vildu fara heim til Danmerkur

Í hópi þeirra sem dvalist hafa í fanga­búð­unum í Norð­austur-Sýrlandi eru að minnsta kosti sjö danskar konur og börn þeirra. Þrjár þess­ara kvenna eru danskir rík­is­borg­arar, fjórar hafa misst rík­is­borg­ara­rétt­inn. Kúrdarnir sem stjórna fanga­búðum hafa fyrir nokkru síðan til­kynnt að þær konur sem hafi rík­is­borg­ara­rétt í löndum utan Sýrlands, og séu ekki grun­aðar um neitt mis­jafnt, eins og það er orðað, eigi rétt á því að fara til síns heima­lands. Þetta á við um áður­nefndar þrjár danskar konur, og börn þeirra. Sem eru 14 tals­ins. Konurnar þrjár höfðu fyrir löngu látið vita af því að þær vildu snúa heim til Dan­merkur, með börnin. Slíkt getur hins vegar ekki gerst si svona, til þess þarf sam­þykki stjórn­valda.

Vildu fá börnin en ekki mæðurnar

Snemma í mars síð­ast­liðnum lýsti Mette Frederik­sen for­sæt­is­ráð­herra Dana því yfir að ekki kæmi til greina að kon­urnar kæmu til Dan­merkur og „við viljum þvert á móti ganga langt til að tryggja að Dani sem farið hefur úr landi til að berj­ast fyrir mál­stað ann­arra (fremmed­kriger) komi ekki inn fyrir landa­mæri Dan­merkur“. Þrátt fyrir þessa yfir­lýs­ingu danska for­sæt­is­ráð­herr­ans jókst þrýst­ing­ur­inn á dönsk stjórn­völd og undir lok mars skip­aði stjórnin starfs­hóp í sam­ráði við fimm flokka á þing­inu, Fol­ket­inget.

Starfs­hópnum var ætlað að rann­saka hvort mögu­legt væri að fá börnin 14 til Dan­merkur en mæð­urnar yrðu eftir. Starfs­hóp­ur­inn vann hratt og vel, eins og til var ætl­ast og nið­ur­staða hans var sú að það eina rétta væri að fá kon­urnar þrjár og börnin til Dan­merkur sem fyrst. Öryggi þeirra væri ekki tryggt í búð­unum í Sýrlandi og mat dönsku leyni­þjón­ust­unnar (PET) væri að kon­urnar hefðu ekki tekið þátt í hern­aði né fengið þjálfun í með­ferð vopna. Þær gætu kannski reynt að hafa áhrif á skoð­anir ann­arra varð­andi trú­mál en sú hætta væri þó hverf­andi. Í lok maí til­kynnti danska rík­is­stjórnin að unnið yrði að því að koma kon­unum og börn­unum til Dan­merkur.

Leynileg réttarhöld

Í júlí­mán­uði síð­ast­liðnum fór fram í Danmörku, með mik­illi leynd, rétt­ar­hald. Þar voru kon­urnar þrjár úrskurð­aðar í gæslu­varð­hald, að þeim fjar­stöddum (in absentia) fyrir að hafa farið til Sýrlands og starfað með og fyrir hryðju­verka­sam­tök. Konunum var gert ljóst að ef þær kæmu til Dan­merkur yrðu þær hand­teknar, og settar í fang­elsi. Óvíst væri að þær fengju að hafa börnin hjá sér í gæslu­varð­hald­inu. Samkvæmt mati danska rík­is­lög­manns­ins mega kon­urnar búast við þriggja til fimm ára fang­els­is­dómi. Ein kvenn­anna er sjö barna móðir, önnur á fimm börn og sú þriðja tvö. Konurnar eru á aldr­inum 32 til 37 ára.

Heimferðin

Und­ir­bún­ingur heim­flutn­ings kvenn­anna þriggja og barn­anna tók langan tíma og var unn­inn í sam­vinnu við Þjóð­verja en ætl­unin var að 8 þýskar konur og 23 börn þeirra yrðu sam­ferða Dönunum. Konurnar og börnin voru í al-Roj fanga­búð­unum og aðfara­nótt sl. mið­viku­dags var lagt af stað þaðan í rútu frá kúrdísku svæð­is­stjórn­inni. Eftir stuttan stans í Qamishli, þar sem full­trúar danskra og þýskra stjórn­valda komu um borð í rút­una var haldið áfram til flug­vall­ar­ins í Rumeilan, sem er undir stjórn Banda­ríkja­manna. Þar fór hóp­ur­inn um borð í banda­ríska her­flutn­inga­vél, sem flutti hóp­inn til her­flug­vall­ar­ins Ali Al Salem í Kúveit, um þús­und kíló­metra leið. Þar beið flug­vél frá tékk­neska flug­fé­lag­inu Smartwings, en hana höfðu þýsk og dönsk stjórn­völd tekið á leigu. Frá Kúveit var flogið beina leið til Frank­furt (4 þús­und kíló­metra). Þar fóru Þjóð­verjarnir frá borði og síðan var ferð­inni haldið áfram til síð­asta áfanga­staðar, Karup flug­vallar á Jótlandi. Þar lenti vélin klukkan þrjú aðfara­nótt sl. fimmtu­dags.

Handteknar á flugvellinum

Konurnar voru hand­teknar um leið og þær stigu frá borði. Börnin fengu ekki að fylgja þeim og eru í for­sjá yfir­valda í sam­ráði við danska ætt­ingja. Ein kvenn­anna var leidd fyrir dóm­ara í Esbjerg, önnur á Frið­riks­bergi og sú þriðja í Kolding. Þær voru allar úrskurð­aðar í gæslu­varð­hald, ein til 1. nóv­em­ber og tvær til 4. nóv­em­ber. Tvær þeirra áfrýj­uðu úrskurði dóm­ara til Lands­réttar.

Verj­endur kvenn­anna þriggja, sögðu að gæslu­varð­halds­úr­skurð­ur­inn hefði ekki komið á óvart en það væru von­brigði að þær skyldu ekki fá að hafa börnin hjá sér.

Fjórar til viðbótar í fangabúðum

Fjórar konur, sem áður voru danskir rík­is­borg­arar, eru nú í fanga­búðum í Sýrlandi ásamt fimm börnum þeirra. Danski dóms­mála­ráð­herr­ann hefur lýst því yfir að kon­urnar fái ekki að koma til Dan­merkur. Börnunum fimm standi það hins­vegar til boða, en sam­þykki mæðr­anna sé skil­yrði fyrir að svo geti orðið. Mæðurnar hafa ekki sam­þykkt það

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár