Efnameiri hluti þjóðarinnar fær nánast allar vaxtabætur

Vaxta­bætur nýt­ast síst efna­minnstu Íslend­ing­unum og ungu fólki sem er að kaupa sína fyrstu fast­eign. af 4,6 millj­örðum sem greiddir voru í vaxta­bætur í fyrra fóru 4,1 millj­arðar til efna­meiri helm­ings þjóð­ar­innar.

Alls fóru 90 pró­sent þeirra vaxta­bóta sem greiddar voru út í fyrra til efna­meiri helm­ings þjóð­ar­inn­ar. Alls voru 4,6 millj­arðar króna greiddir út í vaxta­bætur á því ári og því fór um 4,1 millj­arður króna af því fé til efna­meiri hluta þjóð­ar­inn­ar. Þetta kemur fram nýrri úttekt Íbúða­lána­sjóðs.

Þar kemur einnig fram að 70 pró­sent vaxta­bóta fari til fólks sem sé eldri en 36 ára. Því eru vaxta­bætur ekki að hjálpa fyrstu kaup­endum að koma þaki yfir höf­uðið og nýt­ast síst efna­minnstu ein­stak­ling­unum á hús­næð­is­mark­aði.

Í frétta­til­kynn­ingu frá Íbúða­lána­sjóði segir að úttektin sýni að ýmsir nei­kvæðir hvatar séu inn­byggðir í vaxta­bóta­kerf­ið. Þá þurfi að bæta. „Til dæmis getur það í sumum til­fellum haft nei­kvæð nettó­á­hrif að greiða inn á hús­næð­is­lán. Þó að lækkun höf­uð­stóls leiði vissu­lega til lægri vaxta­greiðslna þá dugir það ekki alltaf upp á móti skerð­ingum sem fólk verður um leið fyrir á fjár­hæð vaxta­bóta.“

Hærra hús­næð­is­verð étur upp vaxta­bætur en eykur skatt­byrði

Kjarn­inn greindi frá því í ágúst að kostn­aður rík­is­sjóðs vegna greiðslu vaxta­bóta hafi lækkað um 16,8 pró­sent á síð­asta ári. Alls fengu 26.107 þiggj­endur vaxta­bætur á síð­asta ári, eða 12,1 pró­sent færri en árið áður. Vaxta­bætur hafa sam­tals lækkað um 7,7 millj­arða króna síðan árið 2010 og þeim fjöl­skyldum sem fá þær hefur fækkað um rúm­lega 30 þús­und á saman tíma.

Á sama tíma og sífellt færri fá vaxta­bætur vegna íbúð­ar­hús­næðis þá hafa fast­eigna­gjöld, sem sveit­ar­fé­lög leggja á, hækkað um 50 pró­sent vegna gríð­ar­legra hækk­ana á hús­næð­is­verði. Sam­an­dregið hafa því bóta­greiðslur til hús­næð­is­eig­enda hríð­lækkað og skattar á hús­næð­is­eig­endur hækkað umtals­vert.

Frá því í des­em­ber 2010 hefur hús­næð­is­verð á höf­uð­­borg­­ar­­svæð­inu, á öllu hús­næði, hækkað um 94 pró­­sent. Hækk­­unin hefur verið drifin áfram af skorti á fram­­boði, sem hefur verið miklu minna en eft­ir­­spurn. Sam­hliða hafa efna­hags­að­­stæður batnað og kaup­máttur auk­ist og geta íbúa til að kaupa sér hús­næði þar af leið­andi meiri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár