Skattfrjáls niðurgreiðsla á húsnæði sem „gagnast fyrst og fremst millitekjuhópum“

Frá 2014 hafa stjórn­völd fyrst og síð­ast miðlað beinum hús­næð­is­stuðn­ingi með því að veita skatt­frelsi á notkun sér­eign­ar­sparn­aðar til að greiða niður hús­næð­is­lán. Frá miðju ári 2014 og til byrjun þessa árs nam stuðn­ing­ur­inn um 27 millj­örðum króna.

Í frum­varpi fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra um líf­eyr­is­greiðslur sem til stendur að afgreiða fyrir þing­lok er gert ráð fyrir að nýr hópur, sá sem hefur ekki átt fast­eign í fimm ár, megi nota sér­eign­ar­sparnað skatt­frjálst til að kaupa sér hús­næði. Þá fel­ast í frum­varp­inu auknar heim­ildir til að ráð­stafa líf­eyr­is­sparn­aði til að kaupa fyrstu fast­eign. Þær fel­ast í því að fólk má nota svo­kall­aða til­greinda sér­eign í þessum til­gangi, ef nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar nær ekki hámarks­heim­ild­inni.

Í grein­ar­gerð sem fylgir með frum­varp­inu kemur fram að heim­ild­irnar sem frum­varpið mun heim­ila muni „gagn­ast fyrst og fremst milli­tekju­hópum en hafa að öllum lík­indum lítil áhrif á heild­ar­um­fang úrræð­is­ins um skatt­frjálsa nýt­ingu líf­eyr­is­sparn­aðar til fyrstu kaupa á íbúð eða íbúða­mark­að­inn.“

Engin grein­ing var þó gerð á mögu­legum áhrifum á íbúða­mark­að­inn við vinnslu frum­varps­ins. Í grein­ar­gerð­inni segir að skatt­frjáls úttekt líf­eyr­is­sparn­aðar gæti auk­ist um 0,5–1 millj­arð króna á ári sem jafn­gildir 20 pró­sent af árlegri nýt­ingu úrræð­is­ins til fyrstu kaupa. Skatt­frjáls ráð­stöfun líf­eyr­is­sparn­aðar inn á íbúða­lán gæti einnig auk­ist um 0,5–1 millj­arða króna árlega. „Alls gæti skatt­frjáls nýt­ing líf­eyr­is­sparn­aðar til íbúð­ar­kaupa því auk­ist um 1–2 millj­arða króna á ári.“

Skipt um kúrs 2014

Stjórn­völd hafa frá miðju ári 2014 heim­ilað þeim hluta lands­manna sem spara í sér­eign að nota þann sparnað til að greiða skatt­frjálst niður hús­næð­is­lán sín. Engin tekju- eða eign­ar­há­mörk eru á þess­ari heim­ild. Eina þakið á slíkri ráð­stöfun er að ein­stak­lingar mega mest nýta allt að 500 þús­und krónum á ári í að nið­ur­greiða hús­næð­is­lánið sitt skatt­frjálst með þessum hætti og hjón eða sam­búð­ar­fólk um 750 þús­und krón­ur. Því hærri sem tekjur eru, því meiri líkur eru á því að sú heim­ild verði full­nýtt.

Kjarn­inn hefur fjallað ítar­lega um nýt­ingu skatt­frjálsa nýt­ingu sér­eign­ar­sparn­aðar til að borga niður hús­næð­is­lán allt fá því að hún varð fyrst heimil árið 2014. Í umfjöllun hans um málið sem birt­ist í febr­úar síð­ast­liðnum kom farm að alls 79.747 ein­stak­lingar hefðu nýtt sér skatt­frjálsa ráð­stöfun sér­eign­ar­sparn­aðar inn á hús­næð­is­lán frá miðju ári 2014 og fram til jan­úar síð­ast­lið­ins. Um er að ræða 38 pró­­sent allra sem eru á vinn­u­­mark­aði, eða 21 pró­­sent þjóð­­ar­innar í heild.

Þessi hópur hefur alls ráð­stafað 109,9 millj­­örðum krónum af sér­­­eign­­ar­­sparn­aði inn á hús­næð­is­lánin sín frá árinu 2014. Í sam­an­­tekt­inni sem Kjarn­inn hefur fengið afhenta kemur fram að hóp­­ur­inn sem hefur nýtt sér úrræðið hafi alls fengið skatt­­af­slátt upp á sam­tals 26,8 millj­­arða króna fyrir að nýta sér­­­eign­­ar­­sparnað sinn á þennan hátt.

Mest fer til tekjuhæstu hópanna

Alþýðu­sam­band Íslands (ASÍ) lét Hagstofu Íslands keyra sér­keyrslu til að sjá hvernig þessi skatt­frjálsa nýt­ing sér­eign­ar­sparn­aðar skipt­ist á milli tekju­hópa. Þar kom í ljós að alls 72 pró­sent þess skatta­af­sláttar sem veittur var vegna nýt­ingu á sér­eign­ar­sparn­aði árið 2020 lenti hjá þeim fimmt­ungi sem hafði mestar tekj­ur.

Sami hópur fékk tæp­lega helm­ing, 47,1 pró­sent, af öllum beinum hús­næð­is­stuðn­ingi rík­is­ins á árinu 2020 þegar búið er að gera ráð fyrir vaxta­bóta­greiðslum líka, en auk sér­eign­ar­sparn­aðar telj­ast vaxta­bætur sem beinn hús­næð­is­stuðn­ingur. Vaxta­bóta­kerfið skilar stuðn­ingi frekar til tekju­lægri heim­ila og ungs fólks, enda vaxta­bætur tekju- og eigna­tengdar. Sú upp­hæð sem miðlað er í gegnum vaxta­bóta­kerfið dróst saman um 75 pró­sent frá 2013 til 2020.

Um 85 pró­sent af skatta­af­slætt­in­um fór til þeirra 30 pró­sent heim­ila sem voru með mestar tekjur og um 57 pró­sent alls beins hús­næð­is­stuðn­ings lenti þar.

Miðað við skipt­ingu á skattafslætt­inum á árinu 2020, sam­kvæmt sam­an­tekt ASÍ, má ætla að um 8,3 millj­arðar króna af skatta­af­slætt­inum sem miðlað hefur verið frá 2014 og fram í jan­úar 2022 hafi farið til rík­ustu tíu pró­senta þjóð­ar­inn­ar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár