Vantar 4.600 íbúðir á markað til að ná jafnvægi milli framboðs og eftirspurnar

Íbúða­lána­sjóður reiknar með að það þurfi að byggja níu þús­und íbúðir á næstu þremur árum til að eft­ir­spurn verði mætt. Fjölgun eigna hefur ekki haldið í við mann­fjölda­þróun.

Þorsteinn Víglundsson, félags- og jafnréttismálaráðherra.
Þor­steinn Víglunds­son, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra. Mynd: RÚV

Upp­safn­aður mis­munur á fram­boði og eft­ir­spurn hús­næðis á Íslandi er um 4.600 íbúðir, sé tekið til­lit til þess að um 1.600 íbúðir séu á hverjum tíma í skamm­tíma­út­leigu til ferða­manna. Heild­ar­þörf á upp­bygg­ingu íbúð­ar­hús­næðis á næstu þremur árum er talin vera um níu þús­und íbúðir. Þetta kemur fram í nýrri grein­ingu sem Íbúða­lána­sjóður hefur unnið að beiðni Þor­steins Víglunds­sonar, félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, um vöntun á hús­næð­is­mark­aði á Íslandi.

Þar segir enn fremur að fjölgun eigna hafi ekki hald­ist í hendur við mann­fjölda­þróun í land­inu á und­an­förnum árum. Greining sjóðs­ins er hluti af ítar­legri grein­ingu á stöðu hús­næð­is­mála á land­inu sem Íbúða­lána­sjóður ann­ast fyrir aðgerða­hóp um hús­næð­is­vand­ann sem fjórir ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar sitja í. Hópurinn mun skila til­lögum um úrbætur í hús­næð­is­málum í maí.

Í nið­ur­lagi grein­ing­ar­innar segir að þörf sé á að byggja 3.079 íbúðir í ár, 2.121 á næsta ári og 2.169 árið 2019. „Mik­il­vægt er þó að fara ekki of geyst af stað í upp­bygg­ingu þar sem við viljum ekki lenda aftur í ástandi líkt og var hér á síð­ustu upp­sveiflu­árum þar sem byggt var langt umfram þörf. Einnig er mik­il­vægt að leggja mat á það hvers konar íbúðir er einna mest þörf fyrir og hvar á land­inu.“

Hægt er að lesa grein­ing­una hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár