Valdi sér ekki það hlutskipti að verða öryrki – því megi alþingismenn trúa

Vara­þing­maður Flokks fólks­ins flutti sína fyrstu ræðu á Alþingi í gær en þar greindi hann m.a. frá því að hann væri öryrki og að hann hefði um síð­ustu mán­aða­mót greitt 62 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum sínum í húsa­leigu.

Svanberg Hreinsson varaþingmaður Flokks fólksins.
Svanberg Hreins­son vara­þing­maður Flokks fólks­ins. Mynd: Skjáskot/Alþingi

Svanberg Hreins­son vara­þing­maður Flokks fólks­ins segir að hann hafi ekki valið sér það hlut­skipti að verða öryrki með öllu sem því fylgir. „Nei. Ef ég hefði haft val þá hefði ég valið mér að vera heill heilsu, laus við verki og van­líðan og því megið þið hátt­virtir alþing­is­menn trúa.“

Þetta sagði hann undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í gær.

Hann fór lít­il­lega yfir stöð­una í efna­hags­málum og benti á að grein­ing­ar­deild Íslands­banka spáði 8,4 pró­sent verð­bólgu í júní­mán­uði. „Verð­bólga síð­ustu 12 mán­aða mæld­ist í maí síð­ast­liðnum 7,6 pró­sent og hefur ekki mælst svo mikil frá því í mars árið 2010. Gangi spá bank­ans eftir væri um að ræða 1 pró­sent hækkun á vísi­tölu neyslu­verðs frá fyrri mán­uði.“

Vara­þing­mað­ur­inn setti þetta í sam­hengi við sig sjálfan en hann greindi frá því að hann væri á leigu­mark­aði. Hann sagði að frá ára­mótum hefði húsa­leigan hækkað um 10 pró­sent „en það þykir víst ekk­ert mikið og kannski bara ansi vel sloppið“.

„Samt sem áður er þetta umtals­verð fjár­hæð fyrir mig því að ég er öryrki og um síð­ustu mán­aða­mót þá greiddi ég 62 pró­sent af ráð­stöf­un­ar­tekjum mínum í húsa­leigu. Síðan greiddi ég 3,5 pró­sent af mínum tekjum til lífs­nauð­syn­legra lyfja­kaupa. Sem sagt, 65,5 pró­sent í leigu og lyf. Þá á eftir að greiða fyrir hita og raf­magn og síma og ekki skal gleyma mat­ar­inn­kaup­unum,“ sagði hann.

Leiguverð sem hlutfall af launum aldrei mælst lægra

Í nýj­ustu mán­að­ar­skýrslu HMS kemur fram að leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu hafi farið lækk­andi á föstu verð­lagi frá því í byrjun árs. Nú sé leigu­verðið orðið lægra en fyrir ári síðan og hafi það ekki mælst lægra að raun­virði síðan í ágúst­mán­uði 2017.

„Leigu­verð á höf­uð­borg­ar­svæð­inu í apríl sem hlut­fall af launum er það lægsta sem mælst hefur en gögnin ná aftur til byrjun árs 2013. Hlut­fallið náði hámarki í lok árs 2018 en mælist nú 15,6 pró­sent lægra en það gerði þá,“ segir í skýrsl­unni.

Gunnar Smári Egilsson fram­kvæmda­stjóri Sós­í­alista­flokks­ins gagn­rýnir meðal ann­ars grein­ingu HMS í færslu á Facebook-síðu flokks­ins. Hann segir það magnað að opin­berar stofn­anir, sem ættu að verja hags­muni fjöld­ans, skuli „teygja sig eftir fram­setn­ingu sem gefa á til kynna að allt sé normalt og horfi til enn betri vegar; þegar það sann­an­lega er ekki svo“.

„Þetta gera stofn­an­irnar af hlýðni við ráð­herra sem beygja sig undir sína yfir­boð­ara, þá sem eiga auð­inn, og brjóta gegn hags­munum almenn­ings í öllum sínum verkum. Það er aug­ljóst á Íslandi hver ræður. Það eru þau sem eiga auð­inn. Ráð­herr­arnir eru bara sendlar þeirra,“ segir hann meðal ann­ars.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár