Samherji vill ekki svara spurningum um starfsemi „skæruliðadeildarinnar“

Kjarninn sendi ítar­lega fyr­ir­spurn til stjórn­enda Samherja vegna gagna sem sýna fram á bak­tjalda­makk starfs­manna og ráð­gjafa fyr­ir­tæk­is­ins, í sam­starfi við stjórn­endur. Samherji vill ekki svara spurn­ing­unum.

Fyrirspurn Kjarnans var meðal annars send til Björgólfs Jóhannssonar og Þorsteins Más Baldvinssonar.
Fyr­ir­spurn Kjarnans var meðal ann­ars send til Björg­ólfs Jóhanns­sonar og Þor­steins Más Bald­vins­sonar. Mynd: Samherji

Síðustu daga hefur Kjarninn fjallað ítar­lega um gögn sem sem sýna meðal ann­ars tölvu­póst­sam­skipti og sam­töl milli ein­stak­linga í spjall­for­riti þar sem rætt er um hvernig varn­ar­bar­átta Samherja hefur þró­ast frá því að opin­berun fjöl­miðla á hinu svo­kall­aða Namib­íu­máli – þar sem grunur er um mútu­greiðslur, skatta­snið­göngu og pen­inga­þvætti – varð í nóv­em­ber 2019.

Gögnin sýna að margir ein­stak­lingar innan Sam­herj­a­sam­stæð­unnar koma beint að öllum við­brögðum við þeim frétta­flutn­ingi og öðrum sem fylgt hafa í kjöl­farið.

Þar ber að nefna Þorstein Má Bald­vins­son, for­stjóra Samherja, útgerð­ar­stjór­ann Kristján Vil­helms­son, Baldvin Þor­steins­son, for­stjóra Samherja í Evrópu, son Þor­steins Más og einn helsta eig­andi Samherja á Íslandi, Björgólf Jóhanns­son, sem sett­ist um tíma í for­stjóra­stól Samherja eftir að Namib­íu­málið kom upp, Örnu Bryndísi McClure, yfir­lög­fræð­ing Samherja til margra ára, og Óskar Magn­ús­son, sem situr í stjórn Samherja og hefur verið náinn ráð­gjafi Þor­steins Más árum saman.

Ráð­gjaf­inn og einka­spæj­ar­inn Jón Óttar Ólafsson leikur stórt hlut­verk á bak­við tjöldin og það gerir Þorbjörn Þórð­ar­son, lög­maður og ráð­gjafi, einnig ásamt skip­stjór­arnum Páli Stein­gríms­syni.

Fyrirspurn í níu liðum

Í aðdrag­anda þess að Kjarninn hóf birt­ingu á umfjöllun sinni sem byggir á gögn­unum var send ítar­leg fyr­ir­spurn til helstu stjórn­enda Samherja. Þeirri fyr­ir­spurn var beint til Þor­steins Más Bald­vins­sonar, Björg­ólfs Jóhanns­sonar og Eiríks Jóhanns­sonar, stjórn­ar­for­manns Samherja.

Í fyrirspurninni stóð:

  • Af hverju er Samherji að setja fram greinar og sam­fé­lags­miðlaum­mæli í nafni ein­stak­lings þegar fyrir liggur að annar hópur á vegum fyr­ir­tæk­is­ins semur grein­arnar og ummælin?
  • Í gögn­unum kemur einnig fram að starfs­menn og ráð­gjafar Samherja hafi safnað upp­lýs­ingum um blaða­menn, lista­menn, stjórn­mála­menn og aðra sem hópur innan fyr­ir­tæk­is­ins telur sér óvin­veitta. Það á til að mynda við um upp­lýs­ingar um bif­reiða­eign rit­höf­undar, tengsl ýmissa blaða­manna sem starfa á mis­mun­andi miðlum og fjöl­skyldu­tengsl stjórn­mála­manna við fólk sem starfar innan fjöl­miðla­fyr­ir­tækja.
  • Af hverju eru starfs­menn Samherja að safna slíkum upp­lýs­ingum um fólk sem tjáir sig um fyr­ir­tækið, annað hvort vinnu­tengt eða með því að nýta tján­ing­ar­frelsi sitt á sam­fé­lags­miðlum, með þessum hætti?
  • Hvernig vistar Samherji þessar upp­lýs­ingar? Eru þær t.d. vistaðar á mið­lægan hátt þannig að margir geti nálg­ast þær?
  • Í sam­tölum sem koma fram í gögnum sem Kjarninn hefur undir höndum kemur fram að ráð­gjafar og starfs­menn Samherja reyndu að hafa áhrif á nið­ur­stöðu for­manns­kjörs í stéttar-og fag­fé­lagi blaða­manna sem fram fór í lok síð­asta mán­aðar. Í þeim sam­tölum var lögð áhersla á að það mætti alls ekki spyrj­ast út að Samherji eða ráð­gjafar fyr­ir­tæk­is­ins væru að beita sér fyrir því að nið­ur­staða kjörs­ins færi á ákveð­inn veg. Af hverju eru laun­aðir ráð­gjafar og starfs­menn Samherja að reyna að hafa áhrif á nið­ur­stöðu í for­manns­kjöri í stéttar- og fag­fé­lagi sem eng­inn þeirra á aðild að og teng­ist starf­semi Samherja ekki á nokkurn hátt?
  • Í gögn­unum er að finna mikið magn upp­lýs­inga um þann hóp sem vinnur að því að rétta hlut Samherja í því sem hluti hóps­ins skil­greinir sjálfur sem „stríð“. Er hægt að fá upp­lýs­ingar um hversu miklum fjár­munum Samherji hefur kostað til vegna starfa þessa hóps frá því í nóv­em­ber 2019? Til frek­ari glöggv­unar þá sýna gögnin að þeir sem vinna mestu vinn­una í hópnum vera Þorbjörn Þórð­ar­son, ráð­gjafi Samherja, Arna Bryndís McClure, yfir­lög­fræð­ingur Samherja, Páll Stein­gríms­son, skip­stjóri hjá Samherja, og Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja. Auk þess virð­ast Björgólfur Jóhanns­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Samherja og núver­andi ráð­gjafi fyr­ir­tæk­is­ins, og Óskar Magn­ús­son, stjórn­ar­maður í Samherja, leika lyk­il­hlut­verk í umræddu „stríði“.
  • Í gögn­unum er að finna upp­lýs­ingar um sam­skipti Samherja við fær­eyskan fjöl­miðil þar sem rætt er um að grafa undan þeim frétta­mönnum sem unnu nýlega sjón­varps­þætti sem fjöll­uðu um starf­semi Samherja í Færeyjum. Af hverju er Samherji að fal­ast eftir því að afhenda fjöl­miðli í Færeyjum gögn sem eiga að draga úr trú­verð­ug­leika ann­arra frétta­manna þar í landi?
  • Samkvæmt gögn­unum sagði Jón Óttar Ólafsson, ráð­gjafi Samherja, frá því í byrjun febr­úar í sam­tali við aðra innan fyr­ir­tæk­is­ins að verið væri að skoða hvort Helgi Seljan, blaða­maður Kveiks, væri staddur í Namibíu. Hvernig fór sú „skoðun“ fram?
  • Björgólfur Jóhanns­son hefur verið kjör­inn sem for­maður hlít­ing­ar­nefndar Samherja sem á að hafa yfir­um­sjón með reglu­vörslu og stjórn­ar­háttum innan sam­stæðu Samherja. Hvernig sam­ræm­ist sú staða þeirri hátt­semi sem hann virð­ist taka þátt í að skipu­leggja sem fyrr­ver­andi for­stjóri og ráð­gjafi?

Vilja ekki ljá umfjöllun vægi sem hún eigi ekki skilið

Í svari sem Arnar Þór Stef­áns­son, lög­maður á Lex, sendi fyrir hönd Samherja síð­degis á fimmtu­dag kom fram að fyrir lægi að þau gögn sem umfjöllun Kjarnans byggir á hafi feng­ist með inn­broti í síma og tölvu Páls Stein­gríms­sonar, starfs­manns Samherja. Páll hafi kært inn­brotið og með­ferð gagn­anna til lög­reglu fyrir fáeinum dögum þar sem málið bíði lög­reglu­rann­sóknar. „Hvorki Samherji hf. né fyr­ir­svars­menn félags­ins munu fjalla um inn­tak gagna sem aflað hefur verið með refsi­verðum hætti. Með því væri verið að ljá umfjöllun vægi sem hún á ekki skilið. Fyr­ir­spurnum yðar verður því ekki svarað.“

Í svari Arnars Þórs er þó til­tekið að rétt sé að fram komi að „starfs­fólk Samherja hf. hefur fullar heim­ildir til að ráða ráðum sínum um sam­eig­in­leg mál­efni sín og félags­ins og ekk­ert óeðli­legt við það, sér í lagi þegar þeir og félagið sæta slíkum árásum sem á þeim hafa dunið að und­an­förnu af hálfu fjöl­miðla.“

Ábyrgð­ar­menn Kjarnans vilja taka fram að umrædd gögn sem eru grund­völlur umfjöll­unar mið­ils­ins bár­ust frá þriðja aðila. Starfs­fólk Kjarnans hefur engin lög­brot framið og fjöldi for­dæma eru fyrir því hér­lendis sem erlendis að fjöl­miðlar birti gögn sem eiga erindi við almenn­ing án þess að hafa upp­lýs­ingar um hvernig þeirra var aflað. Það var skýr nið­ur­staða ábyrgð­ar­manna Kjarnans að hluti gagn­anna ætti sterkt erindi og því eru almanna­hags­munir af því að fjalla um þau með ábyrgum hætti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjamálið

FréttirSamherjamálið

Hlut­hafar Samherja taka út millj­arð í arð eftir upp­skipt­ingu félags­ins

Veru­legar breyt­ingar voru gerðar á upp­bygg­ingu útgerð­ar­ris­ans Samherja í fyrra þegar fjár­fest­ing­ar­starf­semin var aðskilin frá útgerð­ar­rekstri með stofnun eign­ar­halds­fé­lags­ins Látra­fjalla ehf. Líklegt er að eig­endur Samherja ætli sér einnig að færa útgerð­ar­fé­lagið inn í eign­ar­halds­fé­lagið Látra­fjöll en skatta­legar ástæður geta legið þar að baki.
FréttirSamherjamálið

Almenn­ings­hluta­fé­lag í stórri eigu Samherja kaupir í sölu­fyr­ir­tæki Samherja

Þor­steinn Már Bald­vins­son, for­stjóri Samherja og stjórn­ar­for­maður Síld­ar­vinnsl­unnar, vék sæti þegar almenn­ings­hluta­fé­lagið ákvað að kaupa hluta­bréf í sölu­fyr­ir­tæki Samherja af útgerð­inni. Síld­ar­vinnslan ákvað einnig að kaupa hluta­bréf af fyr­ir­tæki í eigu Þor­steins Más og Krist­jáns Vil­helms­sonar fyrir rúm­lega 2 millj­arða króna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár