Segir eiginkonur Miðflokksmanna ekki kjósa flokkinn vegna Gunnars Braga Sveinssonar

Flokks­ráðs­full­trúi í Mið­flokknum segir bæði konur og bændur ólík­legri til að kjósa Mið­flokk­inn ef Gunnar Bragi Sveins­son býður sig áfram fram fyrir flokk­inn. Hann gagn­rýnir til­gang auka­lands­þings sem haldið var um liðna helgi.

Halldór Gunnarsson í Holti.
Halldór Gunn­ars­son í Holti. Mynd: Aðsend

Halldór Gunn­ars­son frá Holti, sem situr í flokks­ráði Mið­flokks­ins, telur flokk­inn ekki geta náð í rík­is­stjórn eftir næstu kosn­ingar ef Gunnar Bragi Sveins­son, fyrr­ver­andi vara­for­maður Mið­flokks­ins og for­maður þing­flokks hans, verður í fram­boði fyrir hann haustið 2021.

Flokks­ráð Mið­flokks­ins fer með æðsta vald í mál­efnum hans milli lands­þinga.

[links]Í aðsendri grein sem birt­ist í Morg­un­blað­inu í dag veltur Halldór fyrir sér til­gangi þess að Mið­flokk­ur­inn hélt auka­lands­þing um síð­ustu helgi, en þar var emb­ætti vara­for­manns lagt niður og starfs­skyldur hans færðar til þing­flokks­for­manns. Vigdís Hauks­dóttir, borg­ar­full­trúi Mið­flokks­ins, hafði til­kynnt fram­boð til vara­for­manns áður en þetta var ákveðið. Starfs­skyldur vara­for­manns héld­ust því hjá Gunnari Braga og Halldór veltir því fyrir sér hvort það leik­ur­inn hafi verið gerður til þess að „við­halda samt óbreyttri stöðu Gunnars“.

Halldór segir í grein­inni að Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, hafi skil­greint stefnu og helstu áherslur flokks­ins í ræðu á lands­þing­inu. Þar hafi komið fram að flokk­ur­inn yrði að ná til kjós­enda þannig að hann næði stöðu til að kom­ast í næstu rík­is­stjórn.

Ef flokk­ur­inn ætti að ná þeirri stöðu sem for­mað­ur­inn tal­aði fyrir yrði hann að ná jafnt til karla og kvenna, sem Halldór telur að Mið­flokk­ur­inn muni ekki gera með fram­boði Gunnars Braga Sveins­sonar við næstu alþing­is­kosn­ingar. „Skoð­ana­kann­anir sýna að konur kjósa síst flokk­inn. Þetta stað­festir síð­asta fram­boð flokks­ins til sveit­ar­stjórnar á Aust­ur­landi á sinn hátt. Næstum án und­an­tekn­ingar heyri ég eig­in­konur manna hlið­hollra Mið­flokknum segja við mig: Ég kýs ekki Mið­flokk­inn ef Gunnar Bragi Sveins­son býður sig fram. Þegar ég spyr um ástæður er svarið það sama, sem ég þarf ekki að end­ur­segja, því allir virð­ast sam­mála um ástæð­una.“ Senni­leg­ast er að Halldór sé þar að vísa til Klaust­urs­máls­ins, þar sem Gunnar Bragi og Bergþór Ólason, þing­menn Mið­flokks­ins, voru í aðal­hlut­verki í niðr­andi orð­ræðu um fjölda fólks, aðal­lega kvenna.

[adspot]Halldór segir bændur hlið­holla Mið­flokknum hafa margir sagt það sama við sig. Sú gagn­rýni snú­ist meðal ann­ars um verk Gunnars Braga sem utan­rík­is­ráð­herra á árunum 2013 til 2016, þegar hann var enn í Fram­sókn­ar­flokknum, og beitti sér fyrir þátt­töku Íslands í við­skipta­banni á Rússland ásamt helstu sam­starfs­þjóðum lands­ins vegna inn­limunar Rússa á Krím­skaga. „Einnig að ekki hefði end­an­lega verið lokið í hans ráð­herra­tíð að aft­ur­kalla umsókn um inn­göngu í ESB, sem vænt­an­leg Sam­fylk­ing­ar­vinstri­st­jórn mun auð­veld­lega geta end­ur­nýjað og náð fram.“

Halldór, sem er fyrr­ver­andi sókn­ar­prestur í Holti, hefur komið víða við á póli­tískum ferli sínum. Hann starf­aði lengi í Sjálf­stæð­is­flokknum og bauð sig fram gegn Bjarna Bene­dikts­syni í for­manns­slag árið 2013, en fékk ein­ungis tvö pró­sent atkvæða. Þá starf­aði hann innan Flokks fólks­ins en fylgdi þeim Karli Gauta Hjalta­syni og Ólafi Ísleifs­syni þaðan og yfir til Mið­flokks­ins eftir Klaust­ur­málið.

Mun sterkari á landsbyggðinni en í höfuðborginni

Í frétta­skýr­inga­röð sem Kjarninnbirti nýverið, þar sem farið var yfir bak­grunns­breytur vænt­an­legra kjós­enda stjórn­mála­flokka, kom fram að eng­inn flokkur hafi sveifl­ast jafn mikið í fylgi og Mið­flokk­ur­inn á yfir­stand­andi kjör­tíma­bili sam­kvæmt könn­unum MMR.

Eftir að Klaust­ur­málið komst í hámæli fór fylgi flokks­ins niður í 5,9 pró­sent en tæpu ári síð­an, í kjöl­far lang­vinns mál­þófs til að tefja fyrir afgreiðslu þriðja orku­pakk­ans svo­kall­aða, náði það sínum hæstu hæðum og mæld­ist 16,9 pró­sent. ­Mikil fylgni er milli breyt­inga á stuðn­ingi við Mið­flokk­inn ann­ars­vegar og Sjálf­stæð­is­flokk­inn hins veg­ar. Þegar Mið­flokk­ur­inn hækkar lækkar Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn, og öfugt. Þetta bendir til þess að flokk­arnir séu að fiska í sömu tjörnum eftir kjós­end­um.

Und­an­farið hefur fylgið þó verið rétt undir kjör­fylgi. Í síð­ustu tveimur könn­unum MMR hefur með­al­tals­fylgið til að mynda mælst 10,3 pró­sent. Og mik­ill stöð­ug­leiki er í bak­grunns­breytum kjós­enda flokks­ins.

Þegar fylgið er borið saman við það sem mæld­ist í tveimur könn­unum MMR í kringum síð­ustu kosn­ing­ar, þar sem nið­ur­staðan var nákvæm­lega sú sama og í kosn­ing­unum 2017 (10,9 pró­sent), sést að Mið­flokknum gengur heldur verr að ná til yngstu kjós­end­anna nú en þá. Hjá þeim kjós­endum sem eru undir þrí­tugu mælist stuðn­ingur við flokk­inn nú 6,1 pró­sent, en var 9,2 pró­sent fyrir rúmum þremur árum. Stuðn­ingur í öðrum ald­urs­hópum er hins vegar meira og minna á svip­uðu róli, á milli tíu til tólf pró­sent.

Höf­uð­borg­ar­svæðið er áfram sem áður það land­svæði þar sem flokk­ur­inn á erf­ið­ast upp­dráttar en fylgi hans þar mælist 7,1 pró­sent. Til sam­an­burðar mælist það 16,4 til 17,8 pró­sent á Norð­ur­landi, Aust­ur­landi og Suð­ur­land­i.

Menntun og kyn ráð­andi breytur

Stuðn­ingur við Mið­flokk­inn er mjög mis­mun­andi eftir mennt­un­ar­stigi. Flokk­ur­inn nýtur mestra vin­sælda hjá þeim sem hafa mest lokið grunn­skóla­prófi, en þar mælist fylgi hans 18,4 pró­sent.

Hjá þeim sem hafa lokið háskóla­prófi mælist fylgið hins vegar lít­ið, eða 5,2 pró­sent.

Kyn er líka ráð­andi breyta þegar kemur að stuðn­ingi við Mið­flokk­inn. Hann er mun vin­sælli hjá körlum en kon­um. Alls segj­ast 14 pró­sent karla að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag en ein­ungis 5,5 pró­sent kvenna. Stuðn­ingur á meðal karla hefur auk­ist lít­il­lega frá 2017 en stuðn­ingur á meðal kvenna hefur dreg­ist saman um þriðj­ung og er 5,5 pró­sent.

Tekjur virð­ast hins vegar ekki skipta máli þegar kjós­endur eru að ákveða hvort Mið­flokk­ur­inn höfði til þeirra. Þannig segj­ast 10,2 pró­sent þeirra sem eru með undir 400 þús­und krónur í heim­il­is­tekjur á mán­uði að þeir myndu kjósa flokk­inn í dag en níu pró­sent þeirra sem eru með yfir 1,2 millj­ónir króna á mán­uði í tekj­ur. Stuðn­ingur hjá þeim tekju­hópum sem eru þar á milli er mjög svip­að­ur, sveifl­ast frá 9,0 í 10,4 pró­sent.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár