Lögmaður birtir myndskeið úr íbúð meints raðnauðgara og boðar málssóknir

„Aftaka kærðu á net­inu í gær mun verða íslend­ingum til vansa um aldir alda,“ skrifar Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son hæsta­rétt­ar­lög­maður sem ætlar í hart gegn Frétta­blað­inu og „hlut­að­eig­andi mykju­dreif­urum”.

Vil­hjálmur H. Vil­hjálms­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður og verj­andi mann­anna sem grun­aðir eru um að hafa nauðgað tveimur konum í íbúð í Hlíða­hverf­inu í Reykja­vík, birtir mynd­skeið úr íbúð­inni á Facebook. Þá gefur hann í skyn að menn­irnir muni leita réttar síns vegna for­síðu­greinar Frétta­blaðs­ins af mál­inu í gær auk þess sem farið verði í hart gegn þeim sem nafn­greint hafa menn­ina og birt myndir af þeim á sam­fé­lags­miðlum.

Lög­mað­ur­inn skrifar: „Í Frétta­blað­inu í gær, 9. nóv­em­ber 2015, var því slegið upp á for­síðu, að íbúð í Hlíðunum hafi verið útbúin til nauð­gana. Hér er mynd­band af íbúð­inni. Dæmi nú hver fyrir sig. Engu að síður kýs aðal­rit­stjóri Frétta­blaðs­ins að berja höfð­inu við stein­inn og segir í yfir­lýs­ingu sem hún sendi frá sér í gær að Frétta­blaðið standi við frétt­ina. Kærðu neita alfarið sök og styðja gögn máls­ins og vitn­is­burðir fram­burð þeirra. Aftaka kærðu á net­inu í gær mun verða íslend­ingum til vansa um aldir alda. Á því ber Frétta­blaðið fulla ábyrgð ásamt hlut­að­eig­andi mykju­dreif­urum. Á þá ábyrgð mun reyna.“

 

 

Stundin hefur fjallað ítar­lega um málið:

Grunaður nauð­gari með drottn­un­ar­blæti 
„Lög­reglan getur ekki tryggt öryggi“
Hvetja til ofbeldis gegn meintum nauðgurum
Meintir nauð­garar báðir farnir úr landi?
Meintum raðnauðgurum sleppt

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár