Starfsfólk Arion banka mun fá hlutabréf í bankanum fyrir hundruð milljóna við skráningu

Arion banki ætlar að gefa starfs­fólki sínu hluta­bréf í bank­anum fyrir sex til sjö hund­ruð millj­ónir króna verði hann skráður á markað fyrir árs­lok. Ekkert liggur enn fyrir um hvenær eða hvort bank­inn verður skráður á markað.

Stjórn Arion banka og hlut­hafa­fundur hafa sam­þykkt að starfs­fólk bank­ans fái hluta­bréf í bank­anum komi til þess að hann verði skráður á markað á árinu 2018, líkt og stendur til. Hver starfs­maður mun fá hluta­bréf í bank­anum sem sam­svara útborgun einna mán­að­ar­launa, þó að hámarki einni milljón króna fyrir frá­drátt tekju­skatts og ann­arra gjalda. Starfs­fólki yrði ekki heim­ilt að selja hluta­bréfin fyrr en tveimur árum eftir afhend­ingu og það starfs­fólk sem ákveður að hætta hjá bank­anum á því tíma­bili þyrfti að skila bréf­unum án end­ur­gjalds.

Heild­ar­kostn­aður bank­ans er áætl­aður á bil­inu sex til sjö hund­ruð millj­ónir króna, komi til skrán­ingar, og þar af er um helm­ingur tekju­skattur sem rennur til rík­is­ins og launa­tengd gjöld.

Um svo­kall­aða kaupauka­greiðslu er að ræða sem kemur ekki til greiðslu nema að und­an­gengnu hluta­fjár­út­boði og skrán­ingu bank­ans á markað á árinu 2018. Mun greiðslan drag­ast frá öðrum mögu­legum kaupauka­greiðslum til starfs­fólks vegna árs­ins 2018, þar sem slíkt er fyrir hendi. Ítar­legar reglur Fjár­mála­eft­ir­lits­ins gilda um kaupauka starfs­fólks fjár­mála­fyr­ir­tækja og er fyr­ir­hug­aður kaup­auki í sam­ræmi við þær og eft­ir­litið upp­lýst um hann.

Í frétta­til­kynn­ingu vegna þessa segir að mark­miðið með aðgerð­inni sé „ fyrst og fremst að færa hags­muni starfs­fólks nær hags­munum bank­ans og auka tryggð.“ Þar segir einnig að um sé að ræða allt starfs­fólk bank­ans, en það er um 850 tals­ins. Greiðslan næði ekki til starfs­fólks dótt­ur­fé­laga Arion banka. Þar segir enn fremur að ákvörðun um skrán­ingu Arion banka á markað hafi enn ekki verið tek­inn en að und­ir­bún­ingur að breyttu eign­ar­haldi standi yfir. Almenn hluta­fjár­út­boð og skrán­ing á markað sé ein þeirra kosta sem verið sé að skoða.

Kjarninn hefur áður greint frá því að til hafi staðið að skrá Arion banka á markað, bæði á Íslandi og í Svíþjóð, apríl eða maí á þessu ári. Ljóst er að þau áform hafa ekki gengið eftir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár