Munu bankarnir verða fyrir „Costco-áhrifum“?

Mögulegt er að íslenskir bankar muni fá sam­keppni erlendis frá á næst­unni. Því gætu þeir þurft að hag­ræða rekstri sínum, líkt og smá­sölu­versl­anir gerðu í kjöl­far komu Costco.

Bankarnir þrír gætu allir þurft að hagræða rekstri sínum.
Bank­arnir þrír gætu allir þurft að hag­ræða rekstri sínum. Mynd: Samsett mynd

Ýmis fyr­ir­tæki hafa þurft að þola hag­ræð­ingu og erf­ið­ara rekstr­ar­um­hverfi vegna komu erlendra stór­fyr­ir­tækja á íslenskan markað. Mögulegt er að losun gjald­eyr­is­hafta og góðar efna­hags­horfur muni leiða til svip­aðra hrær­inga í fjár­mála­þjón­ustu á næst­unni. Ef svo verður gætu bank­arnir þurft að hag­ræða vegna svo­kall­aðra „Costco-áhrifa“.

Opnun Costco og H&M

Dag­vöru­mark­að­ur­inn á Íslandi hefur tekið miklum breyt­ingum vegna komu banda­ríska smá­söluris­ans Costco í maí síð­ast­liðnum og fyr­ir­hug­aðri komu H&M.

[links]Í kjöl­farið hafa þrjú íslensk smá­sölu­fyr­ir­tæki brugð­ist við með sam­runa við olíu­fyr­ir­tæki, en Costco selur bæði dag­vöru og olíu.

Einnig hafa hafa fyr­ir­tækin þurft að hag­ræða rekstri sínum, en Hagar hafa lokað Deb­en­hams og Útí­lífs­versl­un­inni sinni í Glæsibæ auk þess sem þeir hafa minnkað margar af Hag­kaups­versl­unum sínum. Í maí var svo til­kynnt að smá­sölu­fyr­ir­tækið Festi myndi loka Inter­sport-versl­un­inni sinni í sumar.

Þrátt fyrir við­brögð fyr­ir­tækj­anna virð­ast þau standa í tölu­verðum erf­ið­leikum vegna auk­innar sam­keppni. Gengi hluta­bréfa í Högum hefur lækkað hratt og örugg­lega frá opnun Costco og nýlega greindi fyr­ir­tækið frá því að sala þeirra hafi dreg­ist saman um 9,4% milli júní­mán­aða 2016 og 2017.

[adspot]

Innreið Netflix

Koma Costco er ekki í fyrsta skiptið sem alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki hafa valdið trufl­unum á íslenskum mark­aði. Frægt var þegar Jón Gnarr, þáver­andi dag­skrár­stjóri 365 sagði það vera umhugs­un­ar­vert að íslensk fjöl­miðla­fyr­ir­tæki væru í sam­keppni við erlend fyr­ir­tæki sem þurfa ekki að lúta sömu fjöl­miðla­lögum.

Kjarninn greindi frá því að staða 365 miðla hafi veikst á und­an­förnum árum, meðal ann­ars vegna sam­keppni við efn­isveitur á borð við Netflix og Amazon. Hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á mark­aði fyrir sjón­varps­á­skrift­ar­sölu dróst saman frá 38,5% niður í 30-35% á þremur árum, þrátt fyrir að hafa keypt sýn­ing­ar­rétt­indi á efni frá HBO árið 2014. Á sama tíma hefur fjöldi áskrif­enda að Netflix auk­ist svo um munar, en tæp­lega 59% Íslend­inga voru áskrif­endur að efn­isveit­unni í júní síð­ast­liðnum, þar af 80% ung­menna á aldr­inum 18-29 ára.

Í mars 2017 til­kynnti svo Fjar­skipti, móð­ur­fé­lag Vodafone, um kaup á 365 og fyr­ir­hug­aða fækkun 41 stöðu­gildis í kjöl­far hag­ræð­ingar.

Hvað um bankana?

Líklegt er að íslensk fyr­ir­tæki muni finna fyrir auk­inni sam­keppni erlendra fyr­ir­tækja í fram­tíð­inni, en íslenskur fjár­mála­mark­aður hefur opn­ast tölu­vert með afnámi gjald­eyr­is­hafta og minnk­andi vaxta­munar við útlönd.

Í nýjasta tölu­blaði Vís­bend­ingar bendir Birna Ein­ars­dóttir, banka­stjóri Íslands­banka, á að umhverfi banka­starf­semi sé að breyt­ast. Tæknirisarnir Amazon, Google og Facebook hafa allir fengið starfs­leyfi til að veita banka­þjón­ustu í Evrópu og segir Birna að íslenskir bankar þurfi að taka til­lit til breytts veru­leika sem nú blasi við. Einnig segir hún að hag­ræð­ing hafi þegar átt sér stað í banka­þjón­ustu, en úti­búum þeirra hafi fækkað úr 26 niður í 14 á síð­ustu þremur árum.

Kjarninn birti leið­ara um fjár­mála­þjón­ustu á tíma­mótum á sunnu­dag, en þar er bent á ýmsa banka sem náð hafa sér fót­festu á mark­aði und­an­farið sem reknir eru með mun minni kostn­aði en hinir íslensku. Má þar nefna Bank Norwegian, en hann heldur úti banka­þjón­ustu í öllum Norð­ur­löndum að frá­töldu Íslandi. Sá banki er úti­bús­laus og ein­göngu til á net­inu, en hann hefur bætt við sig tæp­lega milljón við­skipta­vinum frá stofnun sinni í nóv­em­ber 2007.

Ekki er ólík­legt að fjár­mála­þjón­usta á Íslandi muni fá aukna sam­keppni að utan. Rétt eins og Costco og Netflix myndu alþjóð­leg stór­fyr­ir­tæki í þeim geira kalla á aukna hag­ræð­ingu íslenskra fyr­ir­tækja og erf­ið­ara rekstr­ar­um­hverfi. Hins vegar er ljóst að umræddar breyt­ingar hafa hingað til verið til hags­bóta fyrir neyt­endur. Aðhaldið sem erlend fyr­ir­tæki hafa veitt hinum íslensku á dag­vöru- og afþrey­ing­ar­mark­aði hafa skilað sér í lægra verði og meira úrvali á vörum á þjón­ustu. Ef erlendir bankar munu bjóða upp á þjón­ustu sína hér­lendis er því mögu­legt að Íslend­ingar muni einnig standa frammi fyrir betri lána­kjörum en áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár