Þriðji samruni olíufélags og smásölu á einum og hálfum mánuði

N1 til­kynnti í morgun að félagið ætli að kaupa rekstr­ar­fé­lag Krón­unnar og ELKO. Áður hafði verið greint frá fyr­ir­hug­uðum kaupum Haga á Olís og við­ræðum Skelj­ungs um kaup á rekstr­ar­fé­lagi 10-11 og tengdum eignum.

Á einum og hálfum mán­uði hafa þrjú stærstu olíu­fyr­ir­tæki lands­ins til­kynnt um sam­runa við þrjú af stærstu smá­sölu­fyr­ir­tækjum lands­ins.

Í morgun var til­kynnt um að N1, sem rekur elds­neyt­is­stöðvar út um allt land og er skráð í Kauphöll Íslands, hafi náð sam­komu­lagi um kaup á öllu útgefnu hlutafé í Festi, sem sér­hæfir sig í rekstri versl­un­ar­fyr­ir­tækja. Alls rekur Festi 28 versl­anir undir merkjum Krón­unnar, ELKO, Nóatúns og Kjarvals. en félagið á auk þess vöru­húsið Bakkann og 17 fast­eignir. Heild­ar­velta Festis var 39 millj­arðar króna á síð­asta ári og heild­ar­virði félags­ins er metið á 37,9 millj­arða króna í við­skipt­unum. Kaup­verðið verður greitt með hlutafé í N1 og yfir­töku skulda. Virði þeirra hluta­bréfa sem greidd verða eru 8.750 millj­ónir króna auk þess sem betri afkoma Festis getur leitt af sér við­bót­ar­greiðslu.

Til­kynn­ingin gerði það að verkum að hluta­bréf í N1 ruku upp í verði og höfðu hækkað um sjö pró­sent skömmu fyrir hádegið í dag í um 500 millj­óna króna við­skiptum. Verðið á hlut er nú 121 krónur, sem er umtals­vert hærra en verðið sem eig­endur Festis fá á þau bréf sem þeim eiga að fá við kaupin. Þar er verðið 115 krónur á hlut en selj­end­urnir skuld­binda sig til að hvorki selja né fram­selja helm­ing af þeim hlutum í N1 sem þeir fá afhenta fyrir lok árs 2018. Komi til við­bót­ar­greiðslu vegna betri afkomu Festi hf. mun sú greiðsla vera í formi hluta í N1 á geng­inu 115 en þeir hlutir munu jafn­framt falla undir sölu­bann fram til 2018.

Fylgja í fótspor hinna olíufélaganna

Þessi sam­ein­ing olíu­fé­lags og smá­sala er sú þriðja sem til­kynnt er um á mjög skömmum tíma. Fyrst var greint frá því þann 26. apríl að smá­söluris­inn Hagar væru að kaupa Olís. Vænt kaup­verð í þeim við­skiptum er 9,2 til 10,2 millj­arðar króna. Það verður greitt með afhend­ingu á 111 millj­ónum hluta í Högum, hand­bæru fé og lánsfé. Samhliða keyptu Hagar fast­eigna­fé­lagið DGV á um 400 millj­ónir króna.

Þann 21. maí var svo til­kynnt um að Skelj­ungur, þriðja stóra olíu­fé­lagið sem er líkt og N1 skráð á markað, hefði hafið samn­inga­við­ræður um kaup á öllu hlutafé Basko. Það félag fer með eign­ar­hald á Rekstr­ar­fé­lagi Tíu Ell­efu ehf., Ísland Verslun hf. og Imtex ehf. Rekstr­ar­fé­lag Tíu Ell­efu ehf. rekur sam­tals 35 þæg­inda­vöru­versl­anir undir merkjum 10-11 og Háskóla­búð­ar­innar og er einnig móð­ur­fé­lag Dranga­skers ehf. sem rekur fimm kaffi­hús undir merkjum Dunkin Donuts. Félagið rekur einnig eina Inspired by Iceland verslun og veit­inga­stað­inn Bad Boys Burgers & Grill. Ísland Verslun hf. rekur þrjár versl­anir undir merkjum Iceland. Kaup­verðið í þeim við­skiptum er áætlað 2,8 millj­arðar króna auk yfir­töku skulda.

Costco og H&M áhrifin

Þessi mikla sam­þjöppun á smá­sölu­mark­aði eru við­brögð við þeim breyt­ingum sem íslensk verslun er að verða fyrir með til­komu Costco inn á íslenskan dag­vöru- og raf­tækja­markað. Samkvæmt tölum frá Meniga, sem greint var frá í Frétta­blað­inu, var velta Costco fyrstu dag­anna eftir opnun versl­un­ar­innar meiri en velta Bónus, flag­skips­verslun Haga. Þær tölur sýndu að Costco væri með 32 pró­sent af heild­ar­velt­unni á dag­vöru­mark­aði en Bónus hafi verið með 28 pró­sent.

Þau eru líka við­brögð við því að H&M opnar brátt fyrstu af þremur versl­unum sínum hér­lendis í Smára­lind. Þrátt fyrir að H&M, sem er ein stærsta fata­versl­un­­­ar­keðja heims­ins, hafi aldrei rekið verslun hér á landi, þá hafa rann­­­sóknir sýnt að mark­aðs­hlut­­­deild fyr­ir­tæk­is­ins í fata­inn­­­kaupum Íslend­inga er mikil og stöðug.

Kjarn­inn fjall­aði um stöð­una eins og hún birt­ist hjá not­endum Meniga, fyrir árið 2013. Tæp 37 pró­­­sent not­enda Meniga versl­aði í H&M. Tekju­hærri hópar versla mun oftar en þeir tekju­lægri. Þannig versl­uðu 26 pró­­­sent tekju­lægsta hóps­ins í H&M í sam­an­­­­burði við 47 pró­­­sent þeirra tekju­hæstu.

Hagar og Festi hafa verið að bregð­ast við inn­komu H&M og Costco með því að loka versl­unum. Hagar lok­uðu til að mynda Deb­en­hams, minnk­uðu verslun Hagkaupa um tæp­lega fimm þús­und fer­metra, lok­uðu mat­vöru­hluta Hagkaupa í Holta­görðum, Outlet-verslun á Korpu­torgi, Úti­lífs­versl­un­inni í Glæsibæ og tveimur tísku­vöru­versl­unum á síð­asta rekstr­ar­ári. Þá hófst lok­un­ar­ferli á Hag­kaups­verslun í Kringl­unni í byrjun árs í fyrra og því lauk í febr­úar. Kjarninn greindi frá því nýverið að Festi væri að loka Inter­sport-verslun sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár