Hagar kaupa Olís

Smá­söluris­inn hefur keypt allt hlutafé Olíuverzlunar Íslands.

Hagar hafa fest kaup á öllu hlutafé í Olís.
Hagar hafa fest kaup á öllu hlutafé í Olís. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Hagar hf. hafa í dag, 26. apríl 2017, und­ir­ritað kaup­samn­ing um kaup á öllu hlutafé Olíuverzlunar Íslands hf. (Olís) og fast­eigna­fé­lags­ins DGV ehf.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu Haga til kaup­hallar.

Tilkynnt var um það í mars að útgerð­ar­fyr­ir­tækin FISK Seafood á Sauð­ár­króki og Samherji á Akureyri hefðu eign­ast allt hlutafé í Olíuverzlun Íslands, Olís, með 50% eigna­hlut hvort eftir að hafa keypt fjórð­ungs­hlut Einars Bene­dikts­sonar og Gísla Baldurs Garð­ars­sonar. Hvor þeirra átti 12,5% hlut í félag­inu frá árinu 2012 þegar Fisk og Samherji keytu sig inn í það, en þau hafa nú selt, innan við tveimur mán­uðum síðar, eins og áður sagði.

Olíuverzlun Íslands sér­hæfir sig í sölu og þjón­ustu með elds­neyti og aðrar olíu­vörur, auk ýmissa nauð­synja­vara til ein­stak­linga og fyr­ir­tækja. Dreifinet félags­ins er víð­tækt og starf­rækir það um 115 starfs­stöðvar á um 50 stöðum á land­inu, aðal­lega undir merkjum Olís, ÓB og Rekstr­ar­lands. Þá á Olís 40% í Olíu­dreif­ingu ehf. DGV ehf. er fast­eigna­fé­lag sem á um 3.000 m2 fast­eign auk lóða­rétt­inda sem ekki tengj­ast rekstri Olís. Heild­ar­velta Olíuverzlunar Íslands var um 31 millj­arður árið 2016. Heild­ar­virði Olís er 15,1 millj­arður króna og vaxta­ber­andi skuldir tæp­lega sex millj­arðar.

Kaupverð hluta­fjár er því 9,1 millj­arður króna, segir til­kynn­ing­unni.

[adspot]

„End­an­legt kaup­verð getur þó tekið breyt­ingum vegna afkomu Olís á árinu 2017. Verði EBITDA Olís rekstr­ar­árið 2017 hærri en 2.100 m.kr. kemur til hækk­unar kaup­verðs. Kaupverð getur þó að hámarki hækkað um 1.000 m.kr. ef EBITDA félags­ins rekstr­ar­árið 2017 verður 2.300 m.kr. eða hærri. EBITDA fyrir rekstr­ar­árið 2016 var 1,9 millj­arðar. Kaupverð verður greitt ann­ars vegar með afhend­ingu á 111 milljón hlutum í kaup­anda og hins vegar með reiðufé. Sá hluti kaup­verðs­ins sem greiddur er með reiðufé verður að hluta til fjár­magn­aður með öflun láns­fjár. Við útreikn­ing á kaup­verði er miðað við gengi Haga 47,5. Selj­endur skuld­binda sig til að hvorki selja né fram­selja þá hluti sem þeir fá afhenta í 12 mán­uði frá afhend­ingu. Heild­ar­virði DGV er 1.040 m.kr. en vaxta­ber­andi skuldir eru 640 m.kr. Kaupverð hluta­fjár DGV er 400 m.kr. og heildar kaup­verð við­skipt­anna því 9.572 m.kr,“ segir í til­kynn­ingu frá Högum.

Kaup­samn­ing­ur­inn er gerður með fyr­ir­vara um nið­ur­stöður áreið­an­leika­könn­unar, sam­þykki hlut­hafa­fundar fyrir aukn­ingu hluta­fjár og sam­þykki Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins. Gangi þeir fyr­ir­varar eftir má gera ráð fyrir að gengið verði frá við­skipt­unum undir lok þessa árs.

Ráðgjafi Haga í við­skipt­unum var Arctica Finance.

Samhliða kaup­unum, og áður til­kynntum kaupum félags­ins á Lyfju hf., hefur stjórn Haga ákveðið að víkja frá áður sam­þykktri arð­greiðslu­stefnu félags­ins og leggja til við aðal­fund í júní nk. að ekki verði greiddur út arður árið 2017.

Finnur Árnason, for­stjóri Haga, fagnar við­skipt­unum og segir þau skapa tæki­færi fyrir Haga. „Þessi samn­ingur er sér­stak­lega ánægju­legur og skapar fjöl­mörg tæki­færi til að bæta þjón­ustu við okkar við­skipta­vini. Rekstur Olís fellur mjög vel að rekstri Haga og skapar ein­stakan grund­völl til sóknar og ekki síður til auk­innar hag­kvæmni í breyttu sam­keppn­isum­hverfi.“

Baldvin Þor­steins­son, stjórn­ar­for­maður Olís, tekur í sama streng og segir félagið vera á góðum stað undir hatti Haga. „Við teljum það far­sælt skref til fram­tíðar fyrir Olís að stað­setja það undir öfl­ugum fyr­ir­tækja­hatti Haga hf. Í þessu fel­ast mikil tæki­færi fyrir starfs­fólk Olís til að auka og efla þjón­ustu við við­skipta­vini félags­ins. Olís lítur sam­starfið björtum augum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Mark­aðsvirði Haga er í dag 56,5 millj­arðar króna, miðað við gengið 49, en félagið á og rekur versl­anir undir merkjum Bónus og Hagkaup, ásamt fleiri smá­sölu­veru­merkjum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár