Sex af hverjum tíu Íslendingum með Netflix

Tæplega átta af hverjum tíu Íslend­ingum á aldr­inum 18-29 ára eru með áskrift að Netflix. Áskrif­endum hefur fjölgað um 25,6 pró­sentu­stig á rúmu ári

Alls búa tæp­lega 59 pró­sent Íslend­inga á heim­ilum sem eru með áskrift að Netflix streymi­veit­unni. Þeim hefur fjölgað um 25,6 pró­sentu­stig frá því í jan­úar 2016. Þá sögð­ust 33,2 pró­sent aðspurðra vera með slíka áskrift. Þetta kemur fram í nið­ur­stöðum nýrrar könn­unar MMR sem birt var í dag.

Þar segir enn fremur að yngra fólk sé mun lík­legra til að vera með áskrift en það sem er eldra. Um 80 pró­sent náms­manna segja til að mynda að þeir séu með áskrift að Netflix og 77 pró­sent þeirra sem eru á aldr­inum 18-29 ára segja að slík áskrift sé á heim­ili þeirra. Í ald­urs­hópnum 68 ára og eldri sögð­ust 26 pró­sent vera með áskrift.

Þeir sem búa á höf­uð­borg­ar­svæð­inu eru lík­legri til að vera með áskrift en þeir sem búa á lands­byggð­inni og þeir sem starfa í sér­fræði­störfum eru mun lík­legri til að vera með áskrift að Netflix en þeir sem vinna við iðn­greinar, sjáv­ar­út­veg eða í land­bún­að­ar­störfum. Þeir sem eru ekki úti­vinn­andi eru ólík­leg­astir allra til að vera með áskrift.

Stuðn­ings­menn Við­reisnar eru lang­lík­leg­astir til að vera með Netflix, en 79 pró­sent þeirra segj­ast vera með slíka áskrift. Stuðn­ings­menn Vinstri grænna (52 pró­sent) og Fram­sóknar (55 pró­sent) eru ólík­leg­astir.

Könnunin var fram­kvæmd dag­ana 11. til 16. maí 2017 og var heild­ar­fjöldi svar­enda 943 ein­stak­lingar, 18 ára og eldri.

Staða 365 veikst umtalsvert á undanförnum árum

Kjarninn greindi fra því í síð­asta mán­uði að í sam­runa­skrá vegna fyr­ir­hug­aðs sam­runa Fjar­skipta og 365 miðla sem skilað var til Sam­keppn­is­eft­ir­lits­ins 27. apríl síð­ast­lið­inn hefðu óvart birst trún­að­ar­upp­lýs­ingar sem fjöll­uðu meðal ann­ars um stöð­una á sjón­varps­mark­aði hér­lendis. Þar kom fram að Netflix væri sú sjón­varps­veita sem væri með flesta áskrif­endur á Íslandi á sjón­varps­mark­aði. Alls eru áskrif­endur að veit­unni 54.120 og mark­aðs­hlut­deild hennar er 40 pró­sent. Stærstu íslensku einka­reknu áskrift­ar­stöðv­arn­ar, sjón­varps­stöðvar 365 og Sjón­varp Sím­ans Prem­ium, eru sam­an­lagt með 47 pró­sent mark­aðs­hlut­deild í áskrift­ar­sjón­varpi þegar ekki er tekið til­lit til RÚV, sem allir lands­menn eru skyldugir til að vera með áskrift að.

Þar segir að staða 365 miðla, sem á og rekur Stöð 2 og tengdar sjón­varps­stöðv­ar, hafi veikst á und­an­förnum árum. Þó nokkur fækkun hafi orðið á við­skipta­vinum fyr­ir­tæk­is­ins. Í sam­runa­skránni seg­ir: „Staða 365 hefur þannig veikst, á sama tíma og keppi­nautar hafa styrkt stöðu sína. Þannig hefur tölu­verð fækkun orðið á fjölda heim­ila/­kennitalna sem eru í við­skiptum hjá 365 á sl. tveimur árum[...]Þessi fækkun í fjölda við­skipta­vina hefur átt sér stað þrátt fyrir að 365 hafi leit­ast við að svara kalli neyt­enda um nýjar áskrift­ar­leið­ir, og boðið upp á Mara­þon Now, sem gerir við­skipta­vinum kleift að ger­ast áskrif­endur að heilum þátta­röð­um, líkt og Net­flix býður upp á.“ Alls eru 35.666 áskrif­endur að sjón­varps­þjón­ustu hjá 365 miðlum sam­kvæmt upp­gefnum upp­lýs­ingum og mark­aðs­hlut­deild fyr­ir­tæk­is­ins á þeim mark­aði 26 pró­sent.

Ástæðan er auð­vitað sú að áskrift að Net­flix kostar rúm­lega eitt þús­und krónur á mán­uði. Ódýr­asti pakk­inn hjá 365 sem inni­heldur Stöð 2 kostar hins vegar 9.990 krónur og sá dýr­asti 22.990 krónur á mán­uði.

Sam­kvæmt sam­runa­skránni er Sjón­varps Sím­ans Prem­ium með um 28 þús­und áskrif­end­ur, en sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans hefur sú tala hækkað á und­an­förnum mán­uðum og er nú yfir 30 þús­und.

Í skjal­inu er einnig greint frá því að Voda­fone Play sé með um níu þús­und áskrif­endur og sjö pró­sent mark­aðs­hlut­deild og að rúm­lega fimm þús­und manns séu með áskrift af bresku sjón­varps­stöð­inni Sky hér­lend­is.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár