Gengi bréfa Haga hrynur

Gengi hluta­bréfa sam­stæðu Haga hefur hrunið það sem af er dags í kjöl­far til­kynn­ingar þeirra til Kaup­hall­ar­innar um breyttar mark­aðs­að­stæður.

Opnun Costco virðist hafa haft töluverð áhrif á rekstur Haga.
Opnun Costco virð­ist hafa haft tölu­verð áhrif á rekstur Haga.

Gengi hluta­bréfa í Högum hafði lækkað um 5,72% rétt fyrir kl. hálf 11 í morgun, en sam­stæðan sendi til­kynn­ingu til Kaup­hall­ar­innar um jún­í­upp­gjör sitt í gær eftir lokun mark­aða. Í upp­gjör­inu kom fram að sala Haga í mat­vöru­versl­unum sínum hafi dreg­ist saman um 9,4% milli júní­mán­aða 2016 og 2017.

Samkvæmt til­kynn­ing­unni hefur breytt sam­keppn­isum­hverfi hafi haft áhrif á rekstur og mark­aðs­stöðu Haga, en þessir þættir hafi komið í ljós í bráða­birgða­upp­gjöri fyrir júní­mánuð.

[links]Magnaukn­ing sölu á fyrsta árs­fjórð­ungi í mat­vöru­versl­unum sam­stæð­unnar var 1,8% milli áranna 2016 og 2017 og fjöldi við­skipta­vina jókst um 1,7%. Hins vegar, ef bornar eru saman sam­bæri­legar tölur fyrir júní­mánuð, þá minnk­aði salan um 9,4% og við­skipta­vinum fækk­aði um 1,8% milli ára. Fram­legð­ar­hlut­fallið lækk­aði sömu­leiðis um 0,4 pró­sentu­stig milli júní­mán­aða 2016 og 2017.

Einnig kemur fram að þótt sam­stæðan hafi lagt af starf­semi og verð­hjöðnun hafi átt sér stað í mat­vöru á sam­an­burð­ar­tíma­bil­inu þá hafi aðrir stórir kostn­að­ar­liðir hins vegar hækkað. Má þar nefna kjara­samn­inga og þenslu á vinnu­mark­aði, auk þess sem flestir leigu­samn­ingar félags­ins eru bundnir vísi­tölu neyslu­verðs, sem hefur hækkað á tíma­bil­inu.

[adspot]Viðbrögð mark­að­ar­ins við til­kynn­ingu Haga hafa verið nei­kvæð í fyrstu, en dag­gengi hluta­bréfa þeirra hafði lækkað um 5,72% um hálf 11 í morgun. Á sama tíma hafði OMX vísi­tala Kaup­hall­ar­inar lækkað um 1,54%. Virð­is­lækk­unin hefur gengið eitt­hvað til­baka það sem af er dags, en mbl.is greindi frá því að gengi Haga hafi lækkað um 10% þegar tæpar 20 mín­útur höfðu liðið frá opnun mark­aða.

Kjarninn hefur áður fjallað um versn­andi gengi Haga, en hluta­bréfa­verð sam­stæð­unnar hefur lækkað hratt frá opnun Costco. Rekstur Haga hefur einnig tekið nokkrum breyt­ingum und­an­farin miss­eri, en þeir keyptu Lyfju og Olís á síð­asta rekstr­ar­ári. Búast má við harðn­andi sam­keppni fram undan, en gert er ráð fyrir því að sænski fat­ar­is­inn H&M opni í ágúst.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár