Velta samstæðu Haga 121 milljarður króna

Með kaupum á Lyfju og Olís mun velta sam­stæðu Haga um 50 pró­sent og verða 121 millj­arður miðað við síð­asta rekstr­arár.

Finnur Árnason, forstjóri Haga, er til vinstri á myndinni, við skráningu Haga á markað.
Finnur Árnason, for­stjóri Haga, er til vinstri á mynd­inni, við skrán­ingu Haga á markað. Mynd: Kjarninn.

Samstæða Haga, sem inni­heldur Haga, Lyfju og Olís, velti rúmum 121 millj­arði á síð­asta rekstr­ar­ári. Félagið hefur brugð­ist við breyttu rekstr­ar­um­hverfi með því að loka versl­unum og kaupa Lyfju og Olís. Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins sem birtur var nýverið.

Breyt­ingar í rekstri sam­stæðu Haga má líta á sem við­brögð við breyttu rekstr­ar­um­hverfi, en búast má við því að sam­keppni auk­ist á dag­vöru­mark­aði með komu Costco og fyr­ir­hug­aðri komu H&M til Íslands. Sam­stæðan hefur lokað sjö fata­versl­unum á síð­asta rekstr­ar­ári, en búð­ar­pláss félags­ins minnk­aði um um 19 þús­und fer­metra á árinu. Hagar keyptu svo Lyfju í sept­em­ber á síð­asta ári og Olís í mars , en við kaupin jókst velta félags­ins um úr 81 í 121 millj­arð, eða um tæp­lega 50%.

Í Kast­ljósi þann 1. júní kom fram að með­alarð­semi eigin fjár skráðra dag­vöru­fyr­ir­tækja sé um 11% í Banda­ríkj­unum og um 13% í Evrópu, en á Íslandi sé hún um 35-40%. Í sam­tali við Kjarnann segir Finnur Árnason, for­stjóri Haga, sam­an­burð Kast­ljóss vera gall­aðan þar sem Hagar eru eina skráða dag­vöru­fyr­ir­tækið á Íslandi. Þannig er eitt fyr­ir­tæki borið saman við með­al­tal margra fyr­ir­tækja í Evrópu og Ameríku, en til eru fyr­ir­tæki í báðum heims­álfum sem hafa jafn­háa með­alarð­semi eigin fjár og Hagar.

Arðsemi eigin fjár Haga hefur lækkað úr 47,7% rekstr­ar­árið 2011/2012 niður í 23,9% síð­asta rekstr­arár. Þar sem sam­keppni mun aukast við komu tveggja fjöl­þjóð­legra fyr­ir­tækja er mögu­legt að með­alarð­semin muni að lækka hjá Högum í fram­tíð­inni. Fjár­festar virð­ast einnig vera var­kárir í kaupum í hluta­bréfum á Högum, en á síð­ustu tveimur vikum hefur hluta­bréfa­verð þeirra lækkað um 6%.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár