Gengi Haga heldur áfram að hrynja niður

Hinn 23. maí, þegar Costco opn­aði vöru­hús sitt, var gengi bréfa Haga 55 og í hæstu hæðum. Það hefur hrunið niður síðan.

Mark­aðsvirði Haga hélt áfram að hrynja niður í gær, og lækk­aði mark­aðsvirði félags­ins um 2,52 pró­sent. Verð­mið­inn á þessum smá­sölurisa á Íslandi, sem rekur meðal ann­ars versl­anir undir merkjum Bónus og Hagkaup, er nú 47,8 millj­arðar króna, og hefur hann lækkað um 13 millj­arða frá því Costco opn­aði vöru­hús sitt, 23. maí síð­ast­lið­inn.

Á rúm­lega fimm vikum hefur mark­aðsvirði félags­ins lækkað úr geng­inu 55 í 41,5. Líklegt verður að telj­ast að áhrfin sem Costco hefur haft á mark­að­inn á Íslandi hafi dregið úr áhuga fjár­festa á hluta­bréfum í Högum.

Við­tök­urnar sem Costco hefur fengið á íslenskum hafa verið með ólík­indum, en innan við mán­uði eftir að banda­ríski smá­söluris­inn opn­aði vöru­hús sitt voru meira en 50 þús­und ein­stak­lingar og fyr­ir­tæki komin með Costco aðild­ar­kort.

Mark­aðsvirði Costco nemur nú um 70 millj­örðum Band­ríkja­dala, sem er upp­hæð sem nemur ríf­lega sjöföldu heild­ar­virði íslenska hluta­bréfa­mark­að­ar­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár