Forseti Alþingis minnist Helga Seljan

Stein­grímur J. Sig­fús­son minnt­ist fyrr­ver­andi þing­manns­ins, Helga Seljan, á þingi í dag. „Helgi var einkar vel lát­inn í hópi þing­manna fyrir sitt glaða skap, heið­ar­leika og hrein­skiptni í sam­starfi, svo og fyrir dugnað og alúð við þing­störfin.“

Helgi Seljan og Steingrímur J. Sigfússon, forseti Alþingis.
Helgi Seljan og Stein­grímur J. Sig­fús­son, for­seti Alþingis. Mynd: Samsett mynd

Forseti Alþingis, Stein­grímur J. Sig­fús­son, minnt­ist Helga Seljan, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, við upp­haf þing­fundar í dag en Helgi and­að­ist á Land­spít­al­anum í Fossvogi, tæp­lega 86 ára gam­all, síð­ast­lið­inn þriðju­dag, 10. sept­em­ber.

Hér fyrir neðan má lesa minn­ing­ar­orð Stein­gríms um Helga.

Helgi Seljan Frið­riks­son var fæddur á Eski­firði 15. jan­úar 1934. For­eldrar hans voru Friðrik Árnason, verka­maður þar, og kona hans, Elínborg Kristín Þor­láks­dóttir hús­móðir. Aðeins nokk­urra mán­aða gam­all var Helgi tek­inn í fóstur hjá hjón­unum Jóhanni Björns­syni, bónda í Selja­teigi í Reyð­ar­firði, og konu hans, Jóhönnu Helgu Bene­dikts­dóttir hús­móður, og ólst hann upp á þeim bæ og tók nafn sitt af því.

Helgi lauk kenn­ara­prófi 19 ára gam­all og gerð­ist þegar kenn­ari á heima­slóðum fyrir austan, fyrst á Búðum í Fáskrúðs­firði í tvö ár, en færði sig síðan 1955 að barna- og ung­linga­skól­anum á Búð­ar­eyri í Reyð­ar­firði. Hann var skip­aður skóla­stjóri þar 1962 og gegndi því starfi þar til hann var kos­inn á þing.

Helgi Seljan skip­aði sér ungur í raðir sós­í­alista, var í fram­boði þegar í alþing­is­kosn­ing­unum 1956 í Suður-Múla­sýslu, aðeins 22 ára gam­all, og var jafnan síðar ofar­lega á lista Alþýðu­banda­lags­ins í Aust­ur­lands­kjör­dæmi. Hann var hrepps­nefnd­ar­maður í Reyð­ar­firði í 12 ár. Helgi Seljan varð lands­kjör­inn þing­maður 1971 eftir ágætan árangur flokks hans í kjör­dæm­inu það sumar og síðar kjör­dæma­kjör­inn þegar Alþýðu­banda­lagið varð stærsti flokk­ur­inn í Aust­ur­lands­kjör­dæmi 1978. Helgi sótt­ist ekki eftir æðstu met­orðum í flokki sínum þótt honum stæðu þau til boða heldur kaus fremur starf alþing­is­manns­ins. Helgi sat sam­fellt á Alþingi til 1987 er hann ákvað að sækj­ast ekki eftir end­ur­kjöri. Hann sat jafnan í efri deild og var for­seti hennar 1979–1983 en var jafn­framt oft vara­for­seti þar og í sam­ein­uðu Alþingi. Sæti vara­manns tók Helgi tví­vegis, fyrst í febr­úar 1958 og í seinna sinn haustið 1969. Helgi var ald­urs­for­seti fyrr­ver­andi þing­manna í þeim skiln­ingi að lengst var liðið síðan hann hafði fyrst tekið sæti í þessum sal, tæp 62 ár, en raunar þá sem vara­maður. Hann sat sam­tals á 20 lög­gjaf­ar­þingum.

Helgi Seljan var þegar frá upp­hafi þing­setu sinnar tals­maður flokks síns í félags- og vel­ferð­ar­málum og sat í nefndum sem við þá mála­flokka feng­ust. Mörgum fram­fara­málum fatl­aðra og öryrkja kom hann áleiðis og önnur fékk hann til umræðu og athug­unar á þing­inu. Jafn­framt lét hann sér mjög annt um hag kjós­enda sinna og kjör­dæm­is­ins og sinnti því vel. Meg­in­hluta þing­fer­ils síns sat hann í banka­ráði Bún­að­ar­bank­ans og stjórn Stofn­lána­deildar land­bún­að­ar­ins.

Er Helgi Seljan ákvað að láta af þing­mennsku gerð­ist hann félags­mála­full­trúi hjá Öryrkja­banda­lagi Íslands og síðar fram­kvæmda­stjóri þess. Sat hann í mörgum nefndum og ráðum sem feng­ust við mál­efni öryrkja og skrif­aði margt um hags­muna­mál þeirra í blöð. Þá starf­aði Helgi einnig ötul­lega með eldri borg­urum.

Áfeng­is­varnir og bind­ind­is­mál voru alla tíð eitt mesta bar­áttu­mál Helga. Þegar á skóla­árum skip­aði hann sér þar í for­ustu­sveit og vann þeirri hug­sjón með fórn­fúsu starfi og skrifum alla ævi.

Helgi átt létt með að yrkja, var söngvinn og hafði gaman af að skemmta fólki með græsku­lausum gam­an­málum og leik­list. Þess nutu þing­menn, starfs­menn þings­ins og raunar margir lands­menn. Ófáir voru þeir heim­il­is­menn á dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilum sem nutu þess að þeir vin­irnir Helgi og Karvel Pálmason töldu ekki eftir sér, bæði á meðan og eftir að þing­mennsku þeirra lauk, að koma og létta mönnum lund með söng og gam­an­málum.

Helgi var einkar vel lát­inn í hópi þing­manna fyrir sitt glaða skap, heið­ar­leika og hrein­skiptni í sam­starfi, svo og fyrir dugnað og alúð við þing­störfin. Hygg ég ekki ofmælt að hann hafi verið einn vin­sæl­asti og vin­flesti þing­mað­ur­inn á sinni tíð og gekk þvert á flokks­bönd. Það segir nokkuð um mann­inn sem við minn­umst hér í þessum sal í dag.

Ég bið þing­heim að minn­ast Helga Seljans, fyrr­ver­andi alþing­is­manns, með því að rísa úr sætum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

1
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár