Skattbyrði barnafólks með lágar tekjur aukist umfram annarra

Tekju­lágt barna­fólk borgar mun meira í skatta nú en fyrir tæpum tveimur ára­tugum, sam­kvæmt úttekt hag­deildar Alþýðu­sam­bands Íslands. Barna­bætur tekju­lágra, ein­stæðra for­eldra hafa helm­ing­ast.

Börn
Börn Á Íslandi eru barna­bætur tekju­tengdar með þeim hætti að þær hverfa ef tekjur hækka. Þær hafa því hlut­verk fátækt­ar­styrks. Engu að síður hafa greiðslur barna­bóta til tekju­lágra minnkað veru­lega. Mynd: Heiða Helgadóttir

Barna­bætur á Íslandi hafa stöðugt verið skertar á síð­ustu tveimur ára­tugum. Árið 1998 fengu ein­stæðir for­eldrar með lágar tekjur 20 pró­sent af tekjum sínum í gegnum barna­bætur. Núna er sama hlut­fall um 9 pró­sent.

„Skatt­byrði þess­ara barna­fjöl­skyldna hefur því auk­ist umfram ann­arra,“ segir í úttekt hag­deildar Alþýðu­sam­bands Íslands. Í úttekt­inni kemur fram að „pör með börn við mið­gildi launa fá engar skattaí­viln­anir vegna fram­færslu barna þrátt fyrir mun meiri fram­færslu­byrði en barn­lausir“.

Þá hafa meðal ann­ars húsa­leigu­bætur ein­stæðra for­eldra lækkað veru­lega, úr 14 pró­sent í 9 pró­sent af tekjum. Nýjar breyt­ingar á hús­næð­is­bóta­kerf­inu, sem inn­leiddar voru í jan­úar í ár, hafa ekki áhrif á pör með börn. „Þau fá eftir sem áður engan stuðn­ing vegna hús­næð­is­kostn­aðar,“ segir ASÍ. Sömu breyt­ingar hafa í för með sér aukn­ingu á hús­næð­is­bótum til ein­stæðra for­eldra, en þeir eru engu að síður langt undir því sem var 1998.

Bótafjárhæðir lækka - skattbyrði eykst

„Rannsókn hag­deildar ASÍ á þróun skatt­byrði launa­fólks 1998-2016 sýnir að skatt­byrði hefur auk­ist umtals­vert, meðal ann­ars vegna lækk­andi barna­bóta sem rekja má til nokk­urra þátta. Bóta­fjár­hæðir hafa hvorki haldið í við þróun launa né verð­lags, skerð­ing­ar­hlut­föll vegna tekna hafa auk­ist allra síð­ustu ár og frá og með tekju­ár­inu 2010 voru allar barna­bætur tekju­tengdar, líka fyrir 7 ára og yngri,“ segir ASÍ.

Eðl­is­munur er á barna­bótum á Íslandi og hinum Norð­ur­lönd­unum. Hér­lendis eru barna­bætur greiddar sem eins konar fátækt­ar­styrkur, en á öðrum Norð­ur­löndum eru þær greiddar út óháð tekjum, sam­kvæmt grein­ingu ASÍ.

Lækkandi barna­bætur Grafið sýnir hvernig barna­bætur til fólks við neðri fjórð­ungs­mörk í launum hafa helm­ing­ast sem hlut­fall tekna á tæpum tveimur ára­tugum.
Aukin skatt­byrði tekju­lágraDregið hefur úr skattaí­viln­unum til barna­fólks á síð­ustu tveimur ára­tugum.
Fækkun þeirra sem fá barna­bæturEin­stæðum for­eldrum sem fá barna­bætur hefur fækkað veru­lega.

Á tíma­bil­inu 1998 til 2016 hafa margar rík­is­stjórnir komið að hag­stjórn­inni og ákvörð­unum um dreif­ingu skatt­byrði. Fyrsta hluta skeiðs­ins var Davíð Oddsson for­sæt­is­ráð­herra í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks­ins og Fram­sókn­ar­flokks­ins. Tæpum ára­tug síðar mynd­uðu Sjálf­stæð­is­flokkur og Sam­fylk­ing rík­is­stjórn, sem fór frá völdum eftir bús­á­halda­bylt­ing­una ári síðar. Árið 2009 tók við rík­is­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna. Þá tóku Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur aftur við stjórn­ar­taumunum árið 2013. Nú sitja í rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokkur, Viðreisn og Björt fram­tíð.

„Á sama tíma og fjár­mála­ráð­herra lýsir yfir áhyggjum af lækk­andi fæð­ing­ar­tíðni dregur hann úr barna­bóta­greiðslum til launa­fólks, nema þeirra sem allra lægstar hafa tekj­urnar,“ segir í til­kynn­ingu ASÍ.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár